Stéttabaráttan - 25.04.1973, Síða 8

Stéttabaráttan - 25.04.1973, Síða 8
8 7. júlí '32. Barátta atvinnuleysingjanna stendur sem hæst. Reykvískur verkalýður hefur safn- azt saman fyrir utan fundarhús bæjarstjórnar Reykjavíkur, Templarahúsið, til að fylgja eftir kröfum sínum um atvinnubótavinnu í hinu gífur- lega atvinnuleysi, sem þá ríkir. Verkamenn skjóta á skyndifundi fyrir utan húsið Þórshamar þar sem hvatt er til baráttueiningar verkafólks. Er fregnir berast um það, að borgarstjóri, Knud Zimsen, hafi sagt á fundinum, að mögu- leikar á atvinnubótavinnu séu engir, reynir mannfjöldinn að komast inn á fundarstaðinn og verður mikill þrýstingur við dyrnar, en lög- reglan, vopnuð kylfum, ryðst þá fram og ber tryllt frá sér til beggja hliða. Upphefjast þá harkaleg slagsmál milli lögregl- unnar og mannfjöldans, sem hrópar: "Niður með bæjarstjórninal", "Niður með blóðhund- anal" Margir hljóta áverka í þessum bardaga og fjórir verkamenn eru barðir svo heiftúðlega með kylfum, að þeir hníga niður og einn þeirra lamast. Leikurinn berst niður að höfn og um bæinn, aftur verða handalögmál á Hverfisgötu og á Kalkofnsvegi halda svo kommúnistar fund um málið. Arangur þessarar baráttu varð að 100 manns var heitið atvinnubótavinnu strax og loforð gef- ið um frekari úrbætur í næsta mánuði. Nokkrir forystumenn KFl voru yfirheyrðir nokkrum vikum síðar, en neituðu allir að svara spurningum meðan "hneykslismál vissra for- ystumanna burgeisastéttarinnar væru ekki tekin til rannsóknar." Þeir voru þá úrskurðaðir f fangelsi upp á vatn og braut, en neituðu að borð:. brauðið og var sfðan sleppt eftir fjögurra daga hungurverkföll vegna víðtækrar og voldugrar baráttu fyrir því, að þeir væru látnir lausir. 9. nóvember sama ár gerist svipaður atburður og 7. júlí, nema hvað í þetta sinn verða átökin miklu harðari og vfðtækari og í lok bardagans hafa verkamenn bæinn algjörlega á valdi sfnu. Bæjarstjórn hefur boðað kauplækkun verka- manna í atvinnubótavinnu og á bæjarstjðrnar- fundi í Góðtemplarahúsinu þ. 9. nóv., þegar á að ræða atvinnuleysismálin, þyrpist að múgur og margmenni til þess að fylgjast með gangi máli og berjast gegn þessari hungurárás auð- valdsins á öreigana (menn fengu aðeins eina til þrjár vikur í atvinnubótavinnu á mánuði fyrir 6 kr. dagkaup). Bæjarstjórn ætlar að keyra í gegn á fundinum kauplækkunartillögu sfna, en það fer á annan veg. Mannfjöldinn ryðst inn í húsið og lögreglunni er beitt gegn honum og brátt logar allt í slagsmálum, jafnt innan sem utan dyra. Góðtemplarahúsið er næstum lagt í rúst og lögreglan algjörlega yfirunnin og af- vopnuð - verkamenn hafa bæinn fullkomlega á sínu valdi, en þar er látið við sitjaj J Kauplækkunarárásinni er hrundið, en þeirri spurningu er enn ósvarað, hvort verkalýðurinn hefði ekki þarna átt að taka völdin og tryggja sér þau, því það virðist þá aðeins vera form- legt atriði, þar sem hann hefur bæinn algerlega á sínu valdi. Nokkrum dögum síðar hefjast hinar furðuleg- ustu yfirheyrslur yfir forystumönnum verka- manna, þar sem kölluð voru fyrir all mörg ljúgvitni og uppdiktaðar ákærur og lýsingar. Dómar eru felldir 16. maf '33 - sannkallaðir stéttardómar. Þeim er áfrýjað til Hæstaréttar, sem yfirleitt þyngir refsingar hinna ákærðu (allt upp í 6 mánaða fangelsi óskilorðsbundið). Mikil mótmælaalda reis gegn þessum dómum og mikil barátta háð fyrir sakaruppgjöf hinna dæmdu og lætur ríkisstjómin undan 15. júlí og hinum dómfelldu veitt skilorðsbundin náðun. Innanflokksbaráttan f KFf. Við marxistar-lenfnistar í KSML teljum einn mikilvægasta þáttinn í rannsókn á sögu íslenzk- rar stéttabaráttu að nema sögu KFf og stétta- baráttu þess tfma og gera okkur grein fyrir ástæðunum, sem lágu til grundvallar öfugþróun KFf; umskiptunum úr byltingarsinnuðum flokki öreiganna yfir í sósíaldemókratískan fiokk - umbótaflokk, til þess að draga af því rétta lær- dóma fyrir stéttabaráttuna nú og í framtíðinni. Það er augljóst, að öfugþróunin var ekki "slétt og felld" eða sjálfkrafa. Innan flokksins er að finna frá upphafi andstæðar pólitfskar skoðanir og ágreining, sem smám saman þróast upp f harðar deilur um grundvallaratriði og að lokum harða baráttu - opna stéttabaráttu, sem sannar- lega varðaði líf flokksins sjálfs. I formála K. G. að nýútkomnum bæklingi KSML: "Um flokkinn" er rakin saga KFf, gerð grein fyrir bakgrunni hans, baráttu hans sem forystu- afli íslenzkra öreiga og þeim innri og ytri að- stæðum, sem stuðluðu að endalokum hans. Þar er gerð grein fyrir þeirri baráttu, sem háð er innan flokksins milli marxistanna-lenín- istanna með Hjalta Arnason í broddi fylkingar , annars vegar og hægrihentistefnumannanna með Einar Olgeirsson og Brynjólf Bjarnason í farar- broddi hins vegar. Borðeyrardeilan vorið 1934 er eitt skýrasta dæmið um hina miklu stéttvísi íslenzks verkalýðs og sterku stéttarsamstöðu í hinni hörðu stéttabaráttu kreppuáranna. I stuttu máli er Borðeyrardeilan barátta verkalýðsins fyrir viðurkenningu á samtökum sínum og samningsrétti í kjarabaráttunni. Þá er nýstofnað verkalýðsfélag á Borðeyri við Ilrútafjörð hunzað af kaupfélaginu að því leyti, að það neitar að skuldbinda sig til að láta félagsmenn sitja fyrir vinnu og reynir að kljúfa íélagið. Verkamenn setja afgreiðslubanna á Lagarfoss, þegar hann kemur til Borðeyrar 7. maí, þar eð samningar hafa ekki tekizt, en kaupfélagsstjórn tekst að safna liði og láta afgreiða skipið í banni félagsins. Verkalýðsfélagið leitar nú til V. S. N. (Verkalýðssambands Norðurlands), þar sem kommúnistar eru í yfirgnæfandi meirihluta og stjórnin samþykkir að setja afgreiðslubann á Lagarfoss á Siglufirði, Akureyri, Húsavík og Siglufirði. Upp úr þessu hefjast nú hin mestu átök milli verkalýðs og borgara á hverjum staðnum á fætur öðrum. Lagarfoss fer til Siglufjarðar, en þar er afgreiðsla hindruð af verkamannafélag- inu. A Akureyri verða heiftarleg slagsmál milli verkfallsmanna og hvítliða og forystumenn verkfallsmanna handteknir, en sleppt fljótlega vegna magnaðrar ólgu verkafólks bæjarins. Nú ákveður stjórn V. S. N. að leggja afgreiðslubann á öll skip Eimskipafélagsins í höfnum norðan- lands og baráttan magnast um helming. Lagarfoss reynir næst á Húsavík og síðan á Eskifirði, en árangurslaust á báðum stöðum. Næsti þáttur er koma Dettifoss til Akureyrar, þar sem mik- ill viðbúnaður er af beggja hálfu, verkamanna og borgara, en ASI tekur afstöðu gegn Verkalýðs- félaginu á Borðeyri og baráttu norðlenzks verkalýðs fyrir viðurkenningu þess. Borgararnir gera margftrekaðar tilraunir til að múta verkamönnum og láta þá berjast gegn verkfallsmönnunum, en þær mistakast. Þeim tekst þó að láta afgreiða Dettifoss með erfiðismunum á annarr bryggju utar í firðinum (Hoepfnersbryggju). A Siglufirði verður baráttan hörðust : "En bæjarfógetinn hafði látið ganga út herútboð, og voru lagðar við sektir, ef menn mættu ekki. Urðu svo hörð átök á Siglufirði, að slagurinn þar er ein- hver sá hatrammasti, sem háður hefur verið hér á landi. Oaldarlið bæjarfógetans og atvinnurek- enda var vopnað gúmmfkylfum, íbenholtskylfum og trédrumbum, og nokkrir hvftliðar höfðu á sér skammbyssur ; einnig hafði lið þetta viðað að sér grjóti, og hóf lögreglan grjótkast á veikfalls- menn. Auk þessara vopna notuðu hvítliðarnir hin vélknúnu slölikvitæki bæjarins. Beindu þeir vatnsbogum að verkfallsmönnum... Hvftliðarnir á Siglufirði beittu einstakri grimmd í þessum átökum,konur voru t.d. barðar með kylfum niður á bryggjuna og 4-5 hvítliðar réðust á einn verkamanninn og börðu hann f höfuðið með kylfum, unz hann hné niður löðrandi í blóði..." (Jakob Arnason í Vinnunni '46.) Samningar takast 15. maí og gengið er að kröfum Verkalýðsfélags Borðeyrar og fullur sigur unn- inn. En þann sama dag er Verkamannafélagi Siglufjarðar sparkað úr ASf, nýtt stofnað í staðinn og tekið inn f ASf. I formálanum segir: "En KFf, sem hafði vax- ið upp sem andstöðuarmur innan ASI, tók með sér um margt starfshætti og hugsanagang krata- broddanna. Þær skoðanir voru aldrei að fullu kveðnar niður, að K FÍ væri nokkurs konar vinstri armur Alþýðuflokksins og sameining væri æskileg, jafnvel með broddunum. Sérstak- lega var Einar Olgeirsson skæður talsmaður þessarar rotnu skoðunar og vann kapítalinu dygga þénustu með vinstri-kratisma sínum. Sú staðreynd, að miðstjórn KFl var að meiri- hluta skipuð smáborgurum og menntamönnum, gerði flokkinn veikari en ella og olli þvf síðar, að forystan megnaði ekki að haga baráttunni eftir hinum breyttu skilyrðum og aðstæðum stéttabaráttunnar, heldur sló yfir f hægrihenti- stefnu og yfirgaf byltingargrundvöll öreigastétt- arinnar, en tók sér þess í stað stöðu í dýkjum tækifærisstefnu og þjóðrembingssósíalisma. Komintern benti í bréfi á þennan veikleika og hvatti til að stéttarleg samsetning miðstjórnar yrði bætt, en þrátt fyrir þær tilraunir, sem gerðar voru til að setja fleiri verkamenn f miðstjórnina, biðu marxistarnir-lenínistarnir ósigur í þeirri baráttu." Þessi barátta stendur hæst árið 1934 og eru þá reknir ýmsir einstaklingar úr flokknum, sem uppvísir voru að tækifærisstefnu og undanslætti, en Einar Olgeirsson og fleiri fylgifiskar hans komast undan brottvikningu úr flokknum, þrátt fyrir ófullnægjandi sjálfsgagnrýni Einars og ræður þar miklu afstaða formannsins, Brynjólfs Bjarnasonar, sem sýnir hentistefnunni mikla sáttfýsi og gerir allt til að breiða yfir mðtsetn- ingarnar. Það kemur greinilega f ljós, að hajgrimennirnir hafa náð yfirtökunum í flokknum, áður en 3. þing flokksins er haldið ('35), því þar er ger- samlega búið að kúvenda pólitíkinni, sem hægt er að sjá á mismuninum á samþykktum þess og samþykktum 1. og 2. þings flokksins (sjá fræði- legt tfmarit KFf: Bolsjevikkinn). Þá er snúið baki við sögulegu hlutverki verka- lýðsstéttarinnar og leið stéttabaráttunnar - stétt gegn stétt - , en þess í stað tekin upp sam- fylking á smáborgaralegum grundvelli, sem er færð út í sameiningarpólitík með Alþýðuflokkn- um, stéttargrundvöllur verkalýðsins yfirgefinn og flokkurinn síðan lagður niður 1938 og mynd- aður Sameiningarflokkur Alþýðu-Sósíalista- flokkurinn með "vinstra armi" Alýðuflokksins. Og þá er einnig S. U.K. lagt niður og Æskulýðs- fylkingin stofnuð! (Sjá nánar formálann að "Um flokkinn".) Stalín^ leiðtogi í sósíalískri upp - byggingu Ráð- stjórnarríkjanna fram til 1953 og í forsæti m. Int- emationale (KOM- INTERNS). Hjalti Arnason, fremstur í flokki marxistanna- lenínistanna í baráttunni gegn heegrihentistefnu- mönnunum í KFl. Hann barðist mikið fyrir aðferð gagnrýni og sjálfsgagnrýni sem undir- stöðureglu í flokksstarfinu og virku lýðræði. Einar O. & Co. óttuðust engan frekar en Iljalta og er taka átti ákvarðanir um mikilvæg mál var honum ætíð ýtt til hliðar. Iljalti benti réttilega á, hvernig fara myndi fyrir KFI, ef hentistefnan sigraði, þegar hann sagði að þar yrði um nýjan krataflokk að ræða með marg- falt hættulegri blekkingarmeisturum á oddinum. Guðmundur Skarphéð- insson, formaður Verkamannafélags Siglufjarðar. Var hann myrtur ? ? ? I júlímánuði árið 1932 verða harðvítugar deilur á Siglufirði milli verkamannafélagsins og stjómar Síldarverksmiðja ríkisins, sem fer fram á, að verkamenn samþykki mikla kaup- lækkun og breytingar á vinnutfma. Sveinn Benediktsson, stjórnarmeðlimur Síldar- verksmiðjanna, beitir sér fyrir miklum árás- um á verkamenn, en sér f lagi á Guðmund Skarphéðinsson og skrifar greinar í Morgun- blaðið, sem eru sððalegar, fasfskar ofsóknir á hendur Guðmundi, fullar af lygum og hatri á verkamönnum og baráttu þeirra og með því froðuspýjandi orðbragði, sem borgurum er tamt, þegar þeir lýsa afstöðu sinni til verka- lýðsins. Sama dag, sem önnur níðgrein Sveins birtist í Morgunblaðinu, 29. júní, hverfur Guðmundur Skarphéðinsson og finnst ekki lík hans fyrr en 14. ágúst, en þá á floti við höfn Síldarverk- smiðju ríkisins á Siglufirði og var ekki hægt að úrskurða, hvort dánarorsök væri drukknun eða hjartaslag. I millitíðinni hefur verkalýð Siglufjarðar tekizt að knýja fram fullt taxtakaup og Svein Benedikts son burt úr verksmiðjustjórninni. Sveinn var sfðan rekinn frá Siglufirði er hann kom þangað í einkaerindum síðast í júlí, af verkamönnum, sem komu honum út í varðskip- ið Oðinn - vildi almenningur í bænum ekki vita af slíkum glæpamanni í sinni nálægð. Enn hefur engin fullnægjandi skýring fengizt á láti Guðmundar. Komið var þeirri sögu af stað, að hann hefði keypt sér tvö blýlóð sama daginn og hann hvarf og hefði síðan drekkt sér. En það eru fáir, sem hafa fallizt á þessa skýr- ingu, og er það hald margra, að hér hafi í raun og veru verið um morð að ræða, en það hefur ekki verið hægt að sanna og málið þvf ennþá óútskýrt. Það eru engin sértilfelli, að einstakir forystu- menn verkalýðsins á þessum árum verði fyrir ofeóknum og árásum. Það má benda á, þegar Axel Björnsson er tekinn með valdi aðfararnótt 20. jan. '32, þar sem hann er gestkomandi og fluttur til Reykjavíkur f mb. Bjama Olafssyni og var þar 20-30 manna flokkur útgerðarmanna undir forystu Elfasar Þorsteinssonar. Sama ár gerist það á Bolungarvík, að Hannibal Valdimarsson er einnig beittur ofbeldi af hálfu atvinnrekenda og fluttur með valdi á bát til Isafjarðar. Einar Olgeirsson og Brynjólfur Bjamason, höfúðpaurar hentistefnunnar innan KFI. Einar O. var frá upphafi andvígur stofnun KFl og eftir að hann var stofnaður var hann óþreyt- andi í að hamra á þeirri hugmynd að gera K Fl að vinstri-andstöðuarmi innan ASI. Það, hversu Einar var sannur smáborgari og það hræddur smáborgari, þegar stéttabaráttan harðnaði, sést berlega á því, hvernig hann reyndi að draga úr hinni miklu framsókn og sf- vaxandi styrk norðlenzkra verkamanna á 4. áratugnum, þegar hann var í forystuliði V. S. N., með því að beygja sig fyrir ASI og bjóða því upp á samninga f stað þess að heyja sjálf- stæða stéttabaráttu, þar sem ASI var hinum megin víglínunnar. Þessi slóttugi svikari reyndi oft að dylja henti- stefnupólitík sína með fögmm orðum: "Félagar, við höfum skapað einingu flokks vors í baráttu gegn hægri og vinstri - við höfum varðveitt hana gegn rógi og klofningstilraunum liðhlaupa, - við höfum á verstu stormatímum lært að elska flokk okkar og einingu hans heit- ar en nokkru sinni fyrr, elska hann yfir allt annað - og við munum vernda flokk vorn og einingu hans sem sjáaldur auga vors, sem lff vort og frelsi, með öllum okkar kröftum, gegn hverjum, sem reynir að tvístra þessum hornsteini frelsis verkalýðsins á felandi." (tTr ræðu haldinni á IH. þingi KFI, 1935, sjá Bolsjevikkann H/2.) Og þremur árum síðar leggur þessi fagur- málgi verkalýðssvikari niður "hornstein frels- is verkalýðsins á felandi." .. Einar Olgeirsson hvflir nú vel f örmum auð- valdsins f bankaráði Landsbankans, en Brynj- ólfur Bjamason gekk sína leið, leið dulspeki og spfritisma.

x

Stéttabaráttan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stéttabaráttan
https://timarit.is/publication/344

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.