Stéttabaráttan - 08.11.1974, Page 3
STÉTTABARATTAN lO.tbl. 8.111974
I
Ritstjórn Stéttabaráttunnar hefur ákveðið að birta í framtfðinni greinar
um baráttu íslensks verkalýðs og þá sérstaklega þær öreigasinnuðu hefð-
ir sem Kommúnistaflokkur Islands hélt á lofti á 4. áratugnum, allt fram
til þess tíma að hentistefna sigraði marxísku-lenínísku línuna í flokknum
og starfi hans var beint inn á brautir sósíaldemókratismans og þýlyndis
við auðvaldið. Skilgetið afkvæmi þessara svika er í dag Alþýðubanda-
lagið sem ljóst og leynt vinnur að skipulagningu auðvaldsframleiðslunnar,
að aukinni kúgun og auknu arðráni á verkalýðnum.
Baráttusaga verkalýðsins er ekki kennd í skólum né öðrum áróðursmiðl-
um borgaranna heldur ríða lygar og falsanir þar öllum húsum, jafnt í
augljósum árásum og loddaralegum sjónleikjum svikaranna í Alþýðubanda-
laginu og "fræðslu"námskeiðum sem uppkeypta ASf-forystan stendur fyrir.
Gegn þessu standa svo KSML, sem hafa reist rauða fánann á ný - fána
hinnar byltingarsinnuðu öreigastéttar og hafið á loft bestu hefðir verka-
lýðsins.
Takið þátt I námsstarfi KSML
Námsstarfið er liður
í flokksbyggingunni
Stéttaátökin 9. nóv. 1932
Þann 9. nóvember eru liðin 42 ár síðan verkalýð Reykjavíkur tókst undir
forystu Kommúnistaflokks Islands að hrinda einhverri svæsnustu tilraun auð-
valdsins til að leiða hundruð verkamannafjölskyldna í hreinan hungurdauða -
nokkuð sem því hefði tekist með aðstoð sósfaldemókratanna, ef ekki hefði
verið fyrir hendi framvarðarflokkur undir leiðsögn fræðikenningar öreiga-
stéttarinnar til að leiða fjöldann í varnarbaráttunni, en þannig flokkur var
KFÍ -Kommúnistaflokkur Islands-.
Tildrög málsins voru þau, að sumarið
'32 var gífurlegt atvinnuleysi í Reykja-
vík sem og annars staðar á landinu,
og fór ört vaxandi. A almennum fundi
í Dagsbrún og Sjómannafélaginu 6.
júlí var svo samþykkt krafa frá komm-
únískum verkamönnum um, að bæjar-
stjórnin stofnaði þegar til atvinnubðta-
vinnu í stórum stfl. Daginn eftir var
málið tekið upp í bæjarstjórninni, þar
sem fulltrúar íhaldsins og uppkeyptu
svikararnir í Alþýðuflokknum komust
brátt að þvf, að "ekki væru til pening-
ar" og því ekki um annað að ræða en
að láta nokkur hundruð verkamanna-
fjölskyldur dragast upp úr sulti. Mikill
fjöldi verkamanna hafði safnast fyrir
utan fundarstaðinn og þegar fréttist af
þessari afgreiðslu málsins, hugðist
verkalýðurinn sýna hug sinn til þess-
"ara morðingja og leitaði inngöngu.
Var þá lögreglunni sigað á hann með
kylfum og bareflum, fjöldinn var ekki
vel viðbúinn þvílf kum ógnaraðgerðum
og því var ákveðið eftir nokkurn bar-
daga að draga sig í hlé. Þessi fasíska
árás leiddi til þess, að nokkrir verka-
menn urðu fyrir varanlegu líkams-
tjóni og einn hlaut lömun. Boðaði KFl
nú til fundar á Kalkofnsvegi, þar sem
lagt var upp hvernig áframhald bar-
áttunnar skyldi háttað og var alger
eining meðal verkamanna um að ná
fullum sigri í þessu máli. Arangur-
inn af þessari baráttu varð, að borg-
ararnir sáu sér ekki annað fært en að
samþykkja kröfur verkalýðsins af ótta
við einhug verkamannanna og þá bylt-
ingarsinnuðu forystu, sem þeir höfðu
valið aér.
fundurinn hefðist að nýju. Eftir hléð
hóf Jakob Möller bæjarfulltrúi íhalds-
ins harðari árás á verkalýðinn en
nokkru sinni fyrr, þeir verkamenn,
sem komist höfðu inn á fundinn, en
megin þorranum var synjað inngöngu,
neituðu nú að sitja undir þessum við-
bjóði lengur og þaggaði niður í Jakobi
með kröftuglegum framíköllum.
Kröfðust nú þeir verkamenn, sem úti
voru, að staðið yrði við gefin loforð,
var þá lögreglunni sigað á mannfjöld-
ann, sem tók hraustlega á móti. A
meðanvar fundinum slitið og hugðist
fulltrúaþýið halda fast við kauplækkun-
arsamþykktina. Er útséð var um, að
verkalýðurinn mundi ekki líða þessi
málalok, ákváðu Alþýðuflokksbrodd-
arnir að bera fram "málamiðlunar-
tillögu" gegn því að fhaldsfulltrúunum
yrði leyft að ganga út ómeiddum, þess
efnis að "lækkaði kaupið ekki fyrr en
bæjarstjórninsjálf ákveddi það."
Kratarnir voru nú búnir að "gleyma"
kröfunum frá fundinum þann sj ötta og
minntust ekki á þær. Þessum tillög-
um var algerlega hafnað af verkamönn-
unum á staðnum. A meðan flýðu í-
haldsmennirnir ofan í kjallara. Af
ótta við að verða fullkomlega afhjúpað-
ir og þá festu og forystu sem komm-
únistarnir höfðu, tóku nú Héðinn Valdi-
marsson og nokkrir aðrir kratabrodd-
ar að þeyta herlúðra í von um að ná
forystunni úr höndum þeirra fyrrnefndu,
Var ákveðið að sækja svínin ofan í
kjallara, en þá var lögreglunni skipað
I annað sinn að ráðast á mannfjöldann.
Hófst þá ofsalegur bardagi, þar sem
Böldi manna hlaut alvarleg meiðeli.
9. nóvember
Þrátt fyrir stöðugt vaxandi atvinnu-
leysi og dýrtíð er líða tók á veturinn
ætluðu auðvaldsfulltrúarnir í borgar-
stjórninni að lækka kaupið I atvinnu-
bótavinnunni verulega, jjrátt fyrir að
það nægði vart fyrir brynustu lífsnauð-
synjum.
6. nóvember var farin kröfuganga og
haldinn útifimdur þar sem verkalýður-
inn samþykkti tillögu þess efnis að
sama kaup yrði áfram og fjölgað um
150 I atvinnubótavinnunni. Þegar
endurbótasinnarnir í verkalýðsforyst-
unni með Héðin Valdimarsson í broddi
fylkingar sáu hug verkamanna, lýstu
þeir sig samþykka,til að halda andlit-
inu, en þegar félagi úr KFl kom með
tillögu um víðtask verkföll til að
tryggja framgang krafnanna, neitaði
Héðinn að bera þessa tillögu undir at-
kvæði.
Bæjarstjórnarfundurinn, sem átti að
taka ákvörðun um kröfur verkamann-
anna hófst kl. 10 að morgni þess ní-
unda. Ræður fulltrúa íhaldsins inni-
héldu fáheyrðustu lygar um að ómögu-
legt væri að afla bænum fé, og svf-
virðilegustu árásir á hinn atvinnulausa
verkalýð. Fulltrúar Alþýðuflokksins
töluðu um að ástandið væri slæmt en
reyndu samtímis að draga kjarkinn úr
verkamönnunum. Eftir þessar árás-
ir var ákveðið matarhlé og verka-
mönnum lofaður frjáls inngangur, er
Lyktaði honum með því, að lögregl-
an var öll afvopnuð. En á meðan
þessu stóð, hafði íhaldinu tekist að
flýja úr kjallaranum.
Um kvöldið hélt KFl mjög fjölmennan
fund með verkamönnunum, þar sem
tillagan frá 6. nóv. var samþykkt og
svarað skyldi "hinum blóðugu höggum
lögreglunnar í dag með verkfalli við
alla þá vinnu, sem þýðingu hefur til
þess að brjóta hungurárásina á bak
aftur." (Verkalýðsblaðið 3. árg. 48.
tbl.)
Meðan fundur KFl stóð, sátu alþýðu-
"foringjarnir" að svikráðum við
verkalýðinn og sömdu við fulltrúa
auðvaldsins um sama kaup í atvinnu-
bótavinnunni til áramóta.
Verkalýðsblaðið segir ennfremur:
"Bæjarstjórnin var á undanhaldi,
skelfd við hina ágætu samfylkingu
verkalýðsins. Það var því í lófa lag-
ið að halda baráttunni áfram til sigurs.
Öll skilyrði til þess voru fyrir hendi:
1) Víðtæk samfylking og samtök verka-
lýðsins, 2) Lögreglan gjörsigruð,
3) Bæjarstjórnin á undanhaldi, 4)
Verkalýðurinn staðráðinn í því að
gera verkfall.
Hefðu krata broddarnir ekki vegið aft-
an að verkalýðnum, klofið samfylk-
ingu hins vinnandi og atvinnulausa
verkalýðs, hindrað verkfall í bæjar-
vinnunni og við höfnina, þá væri nú
fullur sigur unninn, kröfur verkalýðs-
ins uppfylltar." -/hg
Allt frá stofnun KSML hafa samtökin
sett námsstarfið sem höfuðverkefni
sitt. En hvað táknar þetta vfgorð
fyrir samtökin og starf þeirra ? Hvern-
ig hafa KSML framfylgt þessu vígorði
og hvernig hyggjast þau framfylgja
því ?
I raun og veru er námsstarfið I dag
liður I stærra verkefni sem er bygg-
ing kommúnistaflokks. I dag er náms-
starfið höfuðverkefnið á þessu sviði
(en allt starf KSML í dag miðar mark-
visst að uppbyggingu kommúnistaflokks)
Þetta þýðir, að námsstarfið er leið-
andi þáttur I flokksbyggingunni. Ilvern-
ig má það vera að mikilvægi náms-
starfsins fyrir starf samtakanna er
svo mikið? Það, Bem greinir á milli
baráttu verkalýðsstéttarinnar og bar-
áttu borgarastéttarinnar er fyrst og
fremst tvennt. I fyrsta lagi það að
borgarastéttin berst fyrir að viðhalda
arðráni og úreltu þjóðfélagskerfi á
meðan verkalýðsstéttin berst fyrir
frelsi sínu og afnámi rotnandi ríkis-
kerfis kapitalismans. I öðru lagi er
verkalýðsstéttin meðvituð í baráttu
sinni, þ. e. meðvituð um sögulegt
hlutverk sitt en borgarastéttin ekki.
Ilið síðara á ekki við um allan verka-
lýðsfjöldann á Islandi I dag og þess
vegna er það hlutverk kommúnistanna
að fræða verkalýðinn um þetta sögu-
lega hlutverk sitt og sýna honum fram
á það x gegnum starf og líf verka-
manna. Meðvitund verkamannanna
birtist síðan I hvernig þeir haga bylt-
ingarstarfi sínu gegn auðvaldsskipu-
laginu, hvernig þeir í gegnum mark-
vissa og meðvitaða baráttu byggja upp
beittasta byltingarvopn sögunnar,
kommúnistaflokkixm.
Við sjáum því að námsstarfið hefur
tvær hliðar, þ. e. námsstarf meðal
verkalýðsfjöldans sem leitt er af
kommúnistum og jafnframt frekara
nám meðal kommúnistanna sjálfra til
að hækka stéttarvitund sína enn frekar
og verða enn hæfari til að vinna með-
vitað starf gegn kapitalismanum. Ég
tek fyrst fyrir hvernig KSML vinna að
námsstarfi innan eigin raða.
KSML innihalda f dag kjarna hinna
meðvituðu verkamanna á Islandi og
aðra dyggustu stuðningsmenn sósfal-
ismans. I dag eru KSML miðstöð alls
skipulagðs kommúnísks starfs sem
unnið er á Islandi. I námsstarfinu
hafa samtökin fyrst og fremst beint
huganum að reynslu kommúnísku al-
þjóðahreyfingarinnar við uppbyggingu
kommúnistaflokksins og lýðræðislega
miðstjórnarvaldsins. I þessu sam-
bandi hafa samtökin numið fjölda
greina eftir Lenín (sem leiddi Bolsé-
vikkaflokkinn í þeirri byltingarbaráttu
sem leiddi af sér þá tqgund kommún-
istaflokks sem við þekkjum með lýð-
rasðislegu miðstjórnarafli og kallaður
hefur verið kommúnistaflokkur af
lenínískri gerð) jafnframt hafa sam-
tökin numið greinar eftir Stalín, Maó
T^-tung og Enver Hoxha um skipulag-
ið og agann.
Þar sem starf KSML á Islandi er
brautryðjendastjyf I dag er grundvall-
arleg skilgreining á fslenskum stétt-
um og stéttahlutföllum og hagfræði-
legri stöðu landsins gagnvart hinum
erlenda markaði ásamt stöðu hinna
ýmsu iðngreina hverrar til annarrar
eitt almikilvægasta verkefni okkar.
Því er það að samtökin hafa beint
námi sínu að hagfræðilegum atriðum í
síauknum mæli. Þetta er þeim mun
mikilvægara sem við höfum í huga þau
harðnandi stéttaátök sem nú eru fram-
undan sem afleiðing af kjaraskerðing-
arsókn auðvaldsins á hendur verka-
lýðnum. r sambandi við þá mótsetn-
ingu er verið hefur uppi ixman sam-
takanna varðandi starfið iiman verka-
lýðsfélagaima og stöðu þeirra (og enn
er sfður en svo afgreidd að fullu) hafa
KSML einnig unnið f þvf nambandl með
baráttuaðferðjr og reynslu kommún-
ista f kjarabaráttunni og í verkalýðs-
félögunum bæði á 4. áratugnum og
eins í dag. Þau verkefni á fræðilega
sviðinu, sem við setjum sem mikil-
vægust í námi samtakanna nú á kom-
andi mánuðum er að dýpka almennan
skilning félaga á marxísku heimspek-
inni (sem er í raun grxmdvöllur fyrir
öllu starfi kommúnista)
og einbeita okkur enn meira að aukn-
um skilningi á hinum hagfræðilegu
ferlum kapitalismans með námi á vís-
indagreinum eftir Mamc og Lenín.
Eins og ég benti á hér að framan er
skólun verkalýðsfjöldans og stuðnings-
manna verkalýðsins eitt mikilvægasta
verkefni fslenskra kommúnista á nú-
verandi tímabili á sviði flokksbygging-
arinnar. En hvernig tekst okkur að
framfylgja þessu verkefni? Að okkar
mati er aðeins ein leið til þess, og
það er með beinu starfi meðal verka-
manna. Þetta starf verður að vera
fólgið í því að útbreiða málgögn KSML
og þá fyrst og fremst Stéttabaráttuna,
fá verkamenn til að líta á hana sem
sitt málgagn og beita henni til að skóla
verkafólkið. Eiimig er útgáfa dreifi-
rita og bein þátttaka í öllum hræring-
um verkamanna þar sem ekkert tæki-
færi er látið ónotað að sýna fram á
raunverulega framtíðarhagsmuni
verkalýðsins, og forystulið verkalýðs-
ins í dag, verkalýðsaðallinn afhjúpað-
ur og verkamönnum fylkt í virkri bar-
áttu gegn honum.
En það sem er þó mikilvægast og í
raun afgerandi fyrir það hvort sam-
tökunum tekst að rjúfa einangrun sína
frá fjölda verkafólksins er hvernig
þeim tekst að efla og koma á virku
stuðningsstarfi undir foiystu hverfa-
sellna og vinnustaðasellna og I fram-
tíðinni einnig undir forystu ýmissa
sellna í fjöldasamtökum verkalýðsins.
En ef við lítum á hvernig okkur hefur
tekist að framfylgja stuðningsstarfinu
og byggja það upp í reynd, blasir við
hrapalleg vanræksla. Til skamms
tíma var það til dæmis rlkjandi við-
horf að líta á alla stuðningsmenn sem
verðandi félaga og ef þeir af einhverj.
um ástæðum vildu ekki gerast félagar
var litið á þá sem "slappa" og jafn-
vel stundum að það þýddi ekkert að
. hafa samband við þá. Starf stuðnings-
manna var bundið við fundi hálfsmán-
aðarlega sem þó voru haldnir með
i höppum og glöppum og einstaka sinn-
um var farið með þá I húsasölu sem
var þó enn sjaldnar, og einn og einn
stuðningsmaður er skipulagður í götu-
sölur, en þeir eru undantekning. Ofan
á allt þetta bættist það viðhorf, að
stuðningsmenn fengu ekki að komast í
námshring samtakanna nema þeir
hefðu sýnt frábært starf (eins og nokk-
urs konar verðlaun) og væru staðráðn-
ir í því að gerast félagar.
Þannig kom fram sú ranga skoðun að
starfið skyldi koma á undan fræði-
kenningunni, að stuðningsmennirnir
skyldu starfa áður en þeir hefður öðl-
ast skilning á eðli og markmiði starfs-
ins. Rétt skoðun er að sjálfeögðu að
fræðikenningin skuli ávallt vera númer
eitt og aukið starf að koma sem afleið-
ing af aukinni pólitískri meðvitund.
Allt þetta hefur valdið því að stuðn-
ingsstarfið hefur verið miklu fremur
fráhrindandi en hitt, þannig að einung-
is þeir stuðningsmenn sem bókstaf-
lega hafa verið brennandi af áhuga
hafa sýnt virkt stuðningsstarf. Hér
þarf greinilega að verða gjörbreyting
á. Eitt ákaflega mikilvægt atriði er
að gera stuðningsmenn að virkum
þátttakendum I að byggja upp og efla
Stéttabaráttuna með því að afla frétta
af atburðum í stéttabaráttunni, skrifa
greinar frá vinnustöðunum og vera
stöðugt vakandi fyrir því að auka út-
breiðslu hennar. Annað mikilvægt
atriði er að skipuleggja þá ekki aðeins
út frá hverfasellunum, heldur einnig
I margfalt auknum mæli á vinnustöð-
unum, og snúa þannig andliti okkar
að þeim, og jafnframt því að skipu-
leggja þá I áróðri og öðru starfi I
fjöldasamtökum verkalýðsins og öðr-
um félögum eins og t. d. Kínversk
Islensku menningartengslunum o. s. frv
Einnig verða sellurnar að leitast við
að efla stuðningsstarfið og gera það
sem fj ölbreyttast. Þannig værí það
mjög gott ef einstakar sellur skrifuðu
I Stéttabaráttuna og segðu frá árang-
ursríku stuðningsstarfi og miðluðu
þannig af reynslu sinni til annarra
félaga og stuðningsmanna.
Fræðikenningin ávallt I fyrirrúmi.
-/rb, námsfulltrúi Reykjavíkurdeild-
ar KSML
Kynningarfundur KSML i MH
Þann 14. 10. var haldinn kynningar-
fundur á KSML í Menntaskólanum
við Hamrahlíð á vegum málfunda-
félags skólans. Um 40-50 manns
sóttu fundinn. Tveir félagar mættu
fyrjr hönd KSML sem frummælend-
ur. 1 framsöguræðum sínum röktu
félagarnir uppkomu og þróun
marxismans-lenínismans-hugsunar
Maós Tse-tungs I stórum dráttum
og pólitík KSML til hinna ýmsu
mála.
Eftir framsöguræðurnar fóru fram
almennar umræður. Athyglisvert
var, að I umræðunum komu upp
tveir trotskýistar sem héldu feiki
langar ræður og var annar þeirra
með ræðu sína fjölritaða (lfklega
ræða af þingi Fylkingarinnar).
Hömuðust þeir við að "sanna", að
efnahagslífið I Sovétríkjunum hefði
þá fyrst farið að hnigna á þriðja
áratugnum, þ. e. þegar efnahagslíf-
ið var I rústum eftir nær áratugs
langa styrjöld. Málflutning þeirra
allan einkenndi lygaáróður og
þvæla, sem hingað til hefur aðal-
lega verið flutt af síðum Morgun-
blaðsins. Kom berlega I ljós á
fundinum. að Morgunblaðið hafði
eignast dyggan bandamann f árás-
Fundur KSML um Kína
17. október s.l. héldu KSML fúnd I
Lindarbæ I tilefni 25 ára afmælis
kínverska alþýðulýðveldisins, sem
var 1. okt. Á fundinum voru fluttar
rasður um pólitíska þróun kínverska
kommúnistaflokksins eftir frelsunina
og efnahagslega uppbyggingu lands-
ins. Auk þess voru flutt ljóð eftir
Maó Tse-tung I íslenskri þýðingu,
en Maó hefur hlotið almenna viður-
kenningu fyrir kveðskap sinn. Fund-
inn sóttu rúml. 60 manns, þar af
gerðust um 20 meðlimlr I Kínversk-
íslenska menningarfélaginu. Auk
þess létu nokkrir skrá sig I stuðn-
ings- og námshóp hjá KSML.
Námshringur KSML
1. Kommúnistaávarpið (Marx/Engels
tJirvalsrit I)
2. Díalektfska og sögulega efnis-
hyggjan (Stalín, bæklingur KSML)
Um starfið og Hvaðan koma rétt-
ar hugmyndir (Maó, Úrv. rit I,HI)
3. Grundvöllur pólitísku hagfrasð-
innar (Fjölr. bEdcUngur KSML)
4. Um rfkið og byltinguna (Lenín,
Ríki og bylting)
5. Um flokkinn (Lenín/Stalfn, badd-
ingur KSML)
6. Pólitík KSML (Rauði Fáninn nr. 1
fy2 frá stofnþingi KSML og Alykt-
anir 1. ráðstefnu KSML).
um sínum á kommúnista og lygum,
þar sem er Ifylking trotskýista.
Þess má geta, að fjórum dögum
seinna hélt lýlkingin kynnlngar-
fund í Menntaskólanum við Hamra-
hlíð. Fýrir fundinn var gefið út
dreifirit og því dreift til allra nem-
enda skólans þar sem menn voru
hvattir til að mæta og hlusta á
"byltingarsinnaða" pólitfk Fýlking-
arinnar. Svo gjörsamlega höfðu
trotskýistarnir afhjúpað sig á
kynningarfundi KSML, að einungis
mættu um 10 manns á fundinn að
frummælenda og Fyikingarfélögum
meðtöldum. -/isj/shk