Stéttabaráttan - 08.11.1974, Qupperneq 5

Stéttabaráttan - 08.11.1974, Qupperneq 5
ósíalisminn í framkvæm Hvert er markmið verkamanna- eftirlitsins? Sigur alþýðunnar í byltingunni og stofnun alræðis öreiganna í Albarnu færði verkalýðnum völdin, þau. völd, sem með réttu voru hans. Verka- lýðsstéttin starfar undir leiðsögn flokks síns, og í bandalagi við sam- vinnubændurna stjórnar verkalýður- inn öllu lífi lands og þjóðar. Við þessar aðstæður verður verkalýðs- eftirlitið einnig söguleg nauðsyn. Marxisminin-lenínismixm ásamt 30 ára reynslu af völdum alþýðunnar við uppbyggingu sósíalismans í landinu, færir okkur sönnun þess að aðeins alræði öreiganna er fært um að framfylgja sósíalísku, byltingunni til enda, til fullkominnar uppbyggingar sósíalismans. Einmitt þetta gerir það nauðsynlegt fyrir verkalýðsstétt- ina, að viðhafa eftirlit sitt í marg- víslegu formi gagnvart öllum, einn- ig gagnvart eigin flokki sínum og ríki. Þetta er gert til þess að verja alræði öreiganna og útrýma skriffinnsku og öðru illu, sem gref- ur undan völdum alþýðunnar. Þetta eftirlit mun halda áfram svo lengi sem stéttabaráttan varir, allt þar til endanlegri uppbyggingu kommúnism- ans er náð. Markmið verkalýðseftirlitsins er það að virma stöðugt að því að bæta og staðfesta leiðtogahlutverk verkalýðs- ins f þjóðfélaginu - að gera endur- reisn kapitalisma og uppkomu endur- skoðunarstefnu óframkvæmanlega um alla framtíð. Verkefni verka- lýðseftirlitsins er að berjast gegn skriffinnsku, að berjast gegn þeim, sem vinna gegn hagsmunum verka- lýðsins, að berjast gegn þeim, sem setja einkahagsmuni ofar sameigin- legum hagsmunum fjöldans, að berj- ast gegn öllum leifum gamla skipu- lagsins, að berjast fyrir þvf að all- ir fylgi hugmyndafræði flokksins og marxískri-lenínískri stefnu hans, og að sjá til þess að lögum og reglum, sem alþýðan við völd setur, sé fram- fylgt. Félagi Enver Hoxha benti á, að "verkalýðseftirlitið er rétt að- ferð, sem gerir verkalýðsstéttinni kleift að hafa traust tök á alræði ör- eiganna - og tryggir að stefnu og markmiðum verkalýðsflokksins sé framfylgt." Verkalýðseftirlitið er framkvæmt af flokknum, ríkisvaldi alþýðunnar og beint af verkalýðnum sjálfum. Við núverandi aðstæður í landi okkar fer verkalýðseftirlitið fram jafn- hliða leiðsögn flokksins og ríkisins. (tJr bókinni "Our friends ask" - spurningar og svör um Alþýðulýð- veldið Albaníu - útg. Tírana 1970) STÉTTABAI ÍATTA'ÍM 10.tbl. 8.111974 „Flete Rruféa Tilgangur "Flete Rrufé" er að koma á framfæri gagnrýni og sjálfsgagn- rýni og þau er að finna á öllum vinnustöðum, íbúðarhverfum og víð- ar. Ef einhverjir stunda illa vinnuna, eru lélegir í pólitísku námi, koma illa fram við vinnufélagana eða ef einhver háttsettur starfsmaður stend- ur sig illa, hefur tilhneigingu til "býrokratisma" þá setja þeir sem vilja gagnrýna villurnar upp "Flete Rrufé. " Það er skylda þeirra sem eru gagnrýndir að svara innan viss tíma. Sé gagnrýnin alvarleg er hún rasdd í verkalýðsfélagi viðkomandi verksmiðju. "Flete Rrufé" hefur sérstaklega mikla þýðingu fyrir verkameimina sem vilja gagnrýna og hafa eftirlit með stjórn verksmiðju sinnar. Eitt af merkjum þess að verkalýður Albaníu tekur aukinn þátt í stjórn landsins eru veggblöðin sem kallast "Flete Rrufé" (skyndiblað). Þau komu fyrst fram í "byltingarherferð- inni" sem hófst 1966 - og svara til menningarbyltingarinnar í Kína. "Karl Marx" virkjunin Ar námsstarfsins hefst innan flokks- ins. l>ann 6. september s. 1. hófst svo- kallað ár námsstarfsins innan Verka- lýðsflokka Albaníu. 1 samræmi við ákvörðun miðstjórnar VFA frá jan- úar s. 1. , sem dró upp mikilvægi þess fyrir kommúnista, að auka námsstarf í marxismanum-lenín- ismanum á þessu ári námsstarfs- ins, hafa verið gerðar vissar að- gerðir, sem koma námsstarfinu á skipulegri grundvöll. Verkalýðsflokkur Albaníu hefur allt- af lagt sérstaka áherslu á menntun kommúnistanna og allrar vinnandi alþýðu, á að vopna verkalýðinn með hinni byltingarsinnuðu fræðikenningu marxismans-lenínismans. Náms- starf flokksins er mjög yfirgrips- mikið og margþætt. Það fer fram á mörgum sviðum og með ýmsum að- ferðum. Markmið þess er, að hækka hugmyndafræðilegt stig félag- anna, koma þeim á grundvöll efnis- hyggjulegrar heimsskoðunar, vopna þá með lögmálum þjóðfélags- legrar þróunar og grundvallar- reglna vísindalega sósíalismans, að fá þeim í hendur hina byltingar- sinnuðu fræðikenningu öreigastétt- arinnar. Allir kommúnistar, án undantekn- ingar, taka þátt í námsstarfinu, og einnig vinnandi fólk, sem ekki er flokksbundið. Marxískir-lenínískir námshringir eru skipulagðir í hverri grunnein- ingu flokksins og einnig á vinnu- stöðvunum, í landbúnaðinum, sam- vinnufélögunum og í skólunum. 1 Tírana einni saman eru 1081 náms- hringur í gangi, og þá sækja 19.900 manns. Sérstök námskeið voru haldin fyrir áróðursmenn, til að gera þá hæfari fyrir útbreiðslu marxismans-lenínismans. 1 náms- hringjunum hafa þátttakendur að- gang að öllu efni, sem nauðsynlegt er til að kryfja málin til mergjar, og tengja þannig saman fræðilega meðferð vandamálanna og bylting- arsinnað starf. Þannig nema þeir heimspeki, pólitíska hagfræði, sögu VFA og marxíska menningu. (ATA) Ljósamaðurinn Ævi manna verður ekki eingöngu mæld í árum - æviskeið getur verið stutt á veg komið en jafnframt stór- brotið. Þannig er því háttað með ævi mannsins sem eftirfarandi grein flallar um. Hann heitir Njazi Ago. Hann er rafvirki. - Þú munt verða góður rafvirki. hafði Tuk Hasa, hinn reyndi jrfirmað- ur sagt við Njazi. Þá var Njazi að- eins fjórtán ára og faðir hans var ný- látinn. Það áfall gerði það að verk- um, að Njazi tók lífið mjög alvarlega Hann varð nú að sjá fyrir móður sinni og yngri bræðrum. Hann yfir- gaf leikstöðvar æskunnar og byrjaði að vinna við rafvirkjun. Það var nágranni hans, rafmagns- verkfræðingur, sem hafði vakið áhuga hans á rafvirkjun. Þá var árið 1946, stríðinu nýlokið í Albaníu og annað ár frelsunarinnar var gengið í garð. Rafmagnsverkfræðingurinn skýrði út fyrir honum þau miklu verkefni, sem voru framundan í rafvæðingu lands- ins. Rafvæðingu Albaníu varð að hefja að nýju úr rústum stríðsins. 1938 voru aðeins 12 rafstöðvar í öllu landinu sem framleiddu samtals 4600 kíló- wött, og megnið af þeim var eyði- lagt af ítölsku fasistunum, þegar þeir voru hraktir ur lanainu. Njazi varð ljóst, að uppbyggirtg landsins byggðist að miklu leyti á því að koma rafmagnsframleiðslunni sem fyrst á legg. Njazi vann störf sín af mikilli alvöru. 1 rauninni má segja, að hann hafi gerst fullorðinn á aðeins fáeinum mánuðum - og þar kom að því, að hann lauk námi og varð sveinn í iðn- inni. A þessum tíma var Tirana, höfuð- borgin, enn illa leikin af völdum styrjaldarinnar, borgin var þakin sárum - stræti og byggingar voru eyðilagðar, rafstöðvarnar í borginni að hálfu í rúst. 1 rauninni var myrkr- ið arfur heimabæjar Njazis. Myrkrið lá yfir íbúðahverfunum og öllum göt- um. Aðeins hús þeirra ríku voru upplýst fyrir frelsunina. Fýrir þá fátæku var rafmagnið munaður sem ekki var hægt að veita sér - það var of dýrt að fá heimtaug. En tímarnir breyttust á þeim tíma er Njazi hóf störf sín: þa var markmiðið að leiða rafmagn í hvert hús. Heimtaugaverð- ið var haft mjög lágt. Nú gat að líta Njazi, ásamt vinnufél- ögum hans, þar sem þeir fóru af einu þakinu á annað. Þeir byrjuðu snemma á morgnana og þeir luku dagsverkinu seint á kvöldin. - Hér kemur ljósamaðurinn. sagði fólkið í Ibúðahverfunum þegar það sá Njazi birtast. Það gladdi Njazi, að fólkið skyldi líkja honum við ljósið. 1 dag getur Njazi glaðst yfir framför- unum í Tirana; nú notar eitt einasta íbúðahverfi meira rafmagn en öll borgin gerði, þegar Njazi hóf starfið. Rafvæðing alls landsins. 1946 framleiddu raforkustöðvarnar um 85% þess magns sem þær fram- leiddu 1938. Hin mikla eyðilegging og skorturinn á varahlutum gerðu endurreisnina mjög erfiða. Einnig var mikill skortur á brennsluolíu. En þjóðin óx með erfiðleikunum. 1950 var raforkumagnið tvöfalt meira en 1938. Arið 1949 hóf Njazi störf úti á landsbyggðinni - þeir nefndu raf- væðingarherferðina "ljósamaraþonið" markmiðið var að byggja virkjanir í stað dieselstöðvanna , sem voru dýr- ari í rekstri og þurftu meira viðhald. Og það lá á. Albanir urðu að fram- kvæma á örfáum árum það sem aðr- ar þjóðir höfðu haft marga áratugi til Ifyrsti viðkomustaður Njazis var 29. nóvembeir n. k. eru liðin 30 ár frá þeim deg i er albanska þjóðin lýsti yfir sto fnun alb.anska alþýðu- lýðveldisins. I því t ilefni ákvað ritstjórn STÍiTTAB/iRATTUNNAR að hleypa a t stokkun.um greinaflokki um Albaníu. Greinarnar verða um 17 talsins og munu taka fyrir sér- stök málefni, tm þser skiptast í sjö höfuðflokka: 1) Un.i alræði öreig- anna, (Þessi griein hefur þegar birtst í 8. tbl. '3TB '74). 2) Sósí- alisminn í framkvæmd. Undir þeim lið' munu koma greinar sem m. a. fjalla um verk.ama.nnaeftirlitið, kosningar, pó.litíeika skólun alþýð- unnar, varni r landsins, stöðu kon- unnar, heilbrigðisþjónustuna o. fl. o. fl. 3) Sriga baráttunnar fyrir frelsi lar.dsihs. 4) Baráttan gegn endursk'oðunarstefnunni (mun birt- ant í R'auða fánanum). 5) Sigrarnir í framleiðslunni (einnig í RF) 6) Enver Hoxha, leiðtogi frelsis- baráttunnar. 7) Um MAl - Menn- ingartengsl Albaníu og íslands. "V. I. Lenín" virkjunin. Sú virkjim átti að framleiða 5000kw og vera orkuvedta fyrir hinn nýja iðnað, sem var nú sem óðast að rísa í Tirana og nágre.'mi. Og Njazi var alls staðar á ferð og' flugi, líf hans snerist nú um háspennustaura, koparvíra og virkjun vatnsaflnins. Þegar Njazi ræddi um störf sín var eins og flétt væri í þróunarsög.u alþýðulýðveldisins. Frá húsþökunurn í Tirana lá leiðin að litlu orkus töðvunum og þaðan til stóru orkuveranna í Cerrik, Stalín- borg, Marinéz, Shkozet, Lae, Shijak.... 1951 byggðu þeir Maliq- gULfuaflsstöðina og þá var hægt að reisa sykurverksmiðju þar. 1952 komst olíuiðnaðurinn f Stalínborg á lej;g eftir að aíköst raforkuversins þar voru aukin úr 3000kw í 7000kw. Svo kom "Karl Marx" virkjunin árið 1954; hún framleiddi 25.000kw. Heildarframleiðslan í landinu var þá komin upp í 50. OOOkw og allir bæir lands ins tengdir við dreifikerfið. Qrt vaxandi iðnaðurinn þurfti nú ekki að líða sökum raforkuskorts - borg- irnar voru upplýstar. Starf Njazis hélt á fram. Nýlega lauk hann störfum við "Maó Tse-tung" virkjunina. Ferill Njazis við uppsetningu rafstöðva hefur skilið eftir sig mörg spor um allt landið. Það má finna þau þar sem hann hefur þjálfað upp nýja rafvirkja, þar sem hann hefur stritað og úthellt svita. Alls staðar hefur hann skilið eftir sig minningu meðal samverka- mannanna um ósérhlífinn og traustan verkamann. Þetta er æviferill Njazis Ago fram til dagsins í dag. Nú hefur Njazi verið tilnefndur: Hetja sósíalísku vinnunnar. Samverkamenn hans og ættfólk heim- öóttu hann til að samgleðjast honum yfir heiðrinum sem honum hlotnaðist sem fulltrúi þeirra er höfðu kastað sér út í hið erfiða endurreisnarstarf. Þau ræddu lengi saman heima hjá Njazi - ekki um liðna tíma, heldur um verkefnin framundan, um fimmtu fimm ára áætlunina, sem nú stendur yfir. - Hluti áætlunarinnar er í mínum verkaliring, sagðiNjazi. Hann fékkst ekki rnn þá erfiðleika sem biðu hans. 40 ára að aldri er hann reiðubúinn að sigrast á enn stærri verkefnum. (Byggt á New Albanía no. 1 og "Elec- trification in the The Peoples Repu- blic of Albania"). Aukning raforku framleiðslunnar í Albanilí samanburði við Júgóslavíu og Grikkland: Albanska 1938 % 1950 % 1955 % 1960 % 1961 % alþýðulýðveldið 100 235 950 2.150 2.500 Júgóslavía 100 220 400 720 920 Grikkland 100 155 350 530 580

x

Stéttabaráttan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stéttabaráttan
https://timarit.is/publication/344

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.