Stéttabaráttan - 14.03.1975, Blaðsíða 1
ORE/GAR ALLRA LANDA SAME/MST!
Viðtal við Tran-Van An fulltrúa Námsmannasamtak-
anna fyrir frelsun Suður-Víetnam
USA og Saigon
virða ekki Parísar
samkomulagið
GEGN ATVINNULEYSI OG VERÐ-
BÓLGU-LÁTUM AUÐVALDID BORGA
Hver er undirrót kreppunnar?
Auðvaldið stendur í dag frammi fyrir geigvæn-
legri kreppu sökum offramleiðslu og skipulagn-
ingarleysis í framleiðslunni. Gróða undanfar-
inna þensluára hefur verið komið fyrir í ýmis
konar arðbærum fjárfestingum og nú þegar að
kreppir eru auðmennirnir ekki á þeim buxunum
að skerða á nokkurn hátt þennan gróða sinn,
heldur á að bjarga gervallri borgarastéttinni,
jafnt útflutningsatvinnuvegunum sem verslun
og iðnaði á kostnað verkalýðsins. I gegnum
gffurlegustu kjaraskerðingar sem enn hafa dun-
ið yfir verkalýðinn á jafn skömmum tíma hafa
borgararnir seilst í vasa hvers vinnandi manns
og skert stórlega afkomu hans. Geir Hallgrfms-
son og aðrir talsmenn borgarastéttarinnar tala
um að þjóðin hafi lifað of hátt og nú sé kominn
tfmi til að hætta öllu bruðli og herða f staðinn
sultarólina. En spurningin er: Hverjir hafa
bruðlað, og hverjum er ætlað að herða sultar-
ólina ? SJA GREIN A BLAÐSIÐU 3
TRAN-VAN AN
Fyrir skömmu voru hérlendis á
vegum Víetnam-nefndarinnar og
S-túdentaráðs Hl tveir fulltrúar
námsmannasamtaka í Suður-Víet-
nam sem vinna fyrir frelsun lands-
ins.
Megintilgangur ferðar þeirra hér,
var að kynna ástandið í Suður-Víet-
nam eins og það er nú - einnig áttu
þeir viðræður við Einar Agústsson
utanríkisráðherra um viðurkenningu
íslensku rikisstjórnarinnar á BBS.
Stéttabaráttan notaði tækifærið og
hitti þá að máli.
Stb: Hvað vilt þú segja lesendum okk-
ar um ástandið f Suður-Víetnam nú?
Tran: Astandið er þannig, að USA og
Thieu brjóta sífellt Parísarsamkomu-
lagið - og nú hefur Ford-stjórnin far-
ið fram á aukna hernaðaraðstoð við
Thieu-stjórnina, um 300 milljón doll-
ara. Við verðum að hafa það í huga,
að frá því að Parísarsamkomulagið
var undirritað hafa USA sent Saigon-
stjórninni 800 flugvélar, 1100 skrið-
dreka og önnur brynvarin farartæki,
800 fallbyssur, 200 tundurskeyta-
báta, 1,5 milljðn lestir af skotfærum
og 2 milljón lestir af eldsneyti.
Og undir leiðsögn 25.000 bandarískra
hernaðarráðgjafa sem leynast í borg-
aralegum fötum hefur Thieu-stjórnin
gert daglegar árásir á frelsuðu
svæðin og daglega framkvæmir hún
s.k. friðunaraðgerðir, þ.e. herinn
smalar saman fólkinu sem býr á
mörkum yfirráðasvæðanna og setur
það í fangabúðir. Og nú biður Ford-
stjórnin um aukið fjárframlag til
þess að Thieu geti haldið áfram árás-
um sfnum gegn alþýðu Suður-Víet-
nam og gegn Bráðabirgðabyltingar-
stjórn Suður-Víetnam. Tilgangur-
inn er sá að tortíma frelsuðu svæð-
unum og BBS og framkvæma ný-ný-
lendustefnu Bandaríkjanna f Suður-
Víetnam.
I Suður-Víetnam er fleira að gerast -
í þeim borgum sem eru á yfirráða-
svæði Thieu-stjórnarinnar er sterk
hreyfing gegn Thieu, sem er að áliti
fbúanna í Suður-Víetnam verkfæri
USA. Það er skráð í Parísarsátt-
málann að öll lýðréttindi skulu vera
tryggð í landinu. En nú er það þann-
ig á yfirráðasvæði Thieu-stjórnar-
innar, að lýðréttindi eru engin, blöð-
in eru ritskoðuð og fólkið býr við
fasíska ógnarstjórn. Það er af þess-
um sökum sem alþýðan krefst þess
að Thieu verði steypt, því að svo
lengi sem Thieu er við völd mun
stríðið halda áfram og fasfska ógnar-
stjórnin verður áfram.
Stb: Hvernig er ástandið á frelsuðu
svæðunum ?
Tran; Eins og ég sagði áðan gerir
Saigonherinn stöðugar árásir á frels-
uðu svæðin. Alþýðan á frelsuðu
svæðunum gerir sitt fremsta til þess
að endurreisa landið og bæta lífskjör
sín. Mér er það mikil ánægja að
geta skýrt ykkur frá því að hrís-
grjónaframleiðslan á frelsuðu svæð-
unum hefur nú náð því marki að nægja
öllum íbúum þar. Við höfum á nýjan
leik um það bil 2 milljónir hektara
lands. A sama tfma ríkir skortur
hjá alþýðunni á Saigon-svæðinu sök-
um efnahagskreppunnar - og fjöldi
fólks sveltur. A frelsuðu svæðunum
hefur nú verið skipulagt menntakerfi
og víðtæk heilbrigðisþjónusta, og
nær hvorttveggja bæði til barna og
fullorðinna.
FRAMHALD A BAKSÍÐU.
GEGN GERDARDÓMUM 0G
VINNULÖGGJÖF AUÐVALDSINS
Tillögur VSI til „úrbóta" á vinnulöggjöfinni:
„SKERÐUM VERKFALLSRÉTTINN“
Eins og Stéttabaráttan hefur sýnt fram á í grein-
um að undanförnu hyggjast fslensklr kapitalist-
ar koma á breyttri vinnulöggjöf sem miðar að
þvi að skerða lagalegna rétt verkalýðsins til
þess að berjast fyrir bættum kjörum. Það er
deginum ljósara að þessar fyrirætlanir auð-
•valdsins eru nátengdar því ástandi sem nú rík-
ir - yfirvofandi kreppa og stórkostleg skerðing
á lffskjörum verkalýðsins. Með þessari nýju
lagasetningu reyna íslenskir "vinnuveitendur"
að bæta stöðu sína gagnvart verkalýðnum f
komandi baráttu. SJA GREIN A BLAÐBlÐU 3
BURT MEÐ ASÍ BR0DDANA - LIFI SJÁLF
STÆÐ SKIPULAGNING VERKALÝÐSINS
Sérstæðar baráttuaðferðir
ASI - broddanna
E>ví verður ekki mótmælt að forystu ASf hefur
farið fram á undanförnum árum á einu sviði -
þjónkun hennar við borgarastéttina hefiir orðið
liprari og undanslátturinn gagnvart árásum
auðvaldsins hefur aukist. Nú er svo komið að
ASÍ broddarnir eru farnir að sjá betur hags-
muni auðvaldsins en sjálf borgarastéttin.
SJA GREIN A BLAESlÐU 3
SLÍTIÐ SAMBANDINU VID
SAIG0N - VIÐURKENNID BBS
Einar Agústsson, utanríkisráð-
herra, upplýsti þá Tran-Van-An og
Huynh-Thai-Son um það, að það
væri ófrávíkjanleg rcgla, að sú
ríkisstjórn sem íslcnska ríkis-
stjórnin tæki upp stjórnmálasam-
band við, yrði að geta sannað raun-
veruleg yfirráð sín yfir viðkomandi
landi. Þessi ófrávíkjanlega regla
hefur m. a. birst í því, að það liðu
21 ár frá því að kínverska alþýðu-
lýðveldið var stofnað þar til að ís-
lenska ríkisstjórnin fekk sönnur
fyrir yfirráðum Kfnverja yfir eigin
landi. Ennfremur hefur Saigon-
leppunum, sem ráða yfir 1/5 Suð-
ur-Víetnam, tekist að sanna yfirráð
sín yfir landinu - en þessi ófrávíkj-
anlega regla hefur þann einkenni-
lega eiginleika að fylgja afstöðu
Bandarikjanna gagnvart þessum
löndumi
Islenska rikisstjórnin hefur nýlega
tekið upp stjórnmálasamband við
leppstjórn bandarísku heimsvalda-
stefnunnar í Saigon. Þessi aðgerð,
sem var tilkynnt um svipað leyti og
bandaríski herinn tilkynnti um
auknar byggingar I Keflavíkurher-
stöðinni, er beinn stuðningur við
ný-nýlendustefnu bandarfsku heims-
valdasinnanna.
Astandið í Suður-Víetnam er nú
þannig, að tveir þeirra aðila, sem
undirrituðu Parísarsamkomulagið
um frið í Víetnam, Bandaríkin og
Saigonstjórnin, neita að virða sam-
komulagið og gera allt til þess að
reyna að brjóta á bak aftur þjóð-
frelsisöflin, sem hafa alla tíð fylgt
Parísarsamkomulaginu til fullnustu.
1 ljósi þessa ástands er það mjög
mikilvægur liður til þess að raun-
verulegur friður komist á í landinu,
að allir aðilar haldi gerða samninga
um frið. Ein leið til þess að skapa
þrýsting á Bandaríkjastjórn og
Thieu-klíkuna er fordæming al-
menningsálitsins í heiminum á
glæpaverkum þeirra. Ónnur leið er
sú að berjast fyrir því, að sem
flestar ríkisstjórnir viðurkenni
Bráðabirgðabyltingarstjórnina
(BBS) og stuðli þannig að því, að
bandaríska stjórnin og leppur henn-
ar einangrist á stjórnmálasviðinu.
Nú þegar hafa 43 ríkisstjórniif við-
urkennt BBS sem hinn raunverulega
fulltrúa fólksins í Suður-Víetnam.
Einnig má benda á það, að Parísar-
samkomulagið, sem Bandaríkin
undirrituðu, viðurkennir tilveru
tveggja ríkisstjórna í Suður-Víet-
nam. Það er því augljóst, að viður-
kenning íslensku rfkisstjórnarinnar
•stuðlar eingöngu að því að vinna
gegn friði í Suður-Víetnam.
Gagnvart þeim öflum hér á landi,
sem vilja vinna að friði og styðja
alþýðu Víetnam í frelsisbaráttu
hennar, blasir því það verkefni að
hefja öfluga baráttu fyrir jieirri
kröfu, að ríkisstjórnin slfti sam-
bandinu við Saigonleppa Bandaríkj -
anna og viðurkenni BBS sem hinn
eina rétta fulltrúa íbúa Suður-Víet-
nam.
-/hh
Þegar stjórn BSRB lagði fram til-
lögu til stjórnar ASl um sameigin-
legan fund samtakanna - þá neitaði
Björn Jónsson á þeirri forsendu
að þaðgæti spillt samningavið-
ræðum ASl broddanna við Vinnu-
veitendasambandið. Sem sagt -
fjöldafundur verkalýðsins og skrif-
stofufólks truflar makkið hjá for-
ystunni.