Stéttabaráttan - 11.08.1976, Qupperneq 1
Sjómenn!
Fellum
svika-
samningana
SJA GREIN A BLAÐSlÐU 3
MOTMÆLUMINNRASINNI
í TÉKKOSLOVAKÍU!
Aðfaranótt 21 ágúst 1968 réðust
sovéskir skriðdrekar inn yfir
landamœri Tékkoslovakiu.
Eftir nokkurra daga átök höfðu
þeir brotið á bak aftur alla
mótstöðu, og handsamað leið-
toga tékknesku þjóðarinnar.
Undir byssustyngjum sovét-
manna voru þeir neyddir til að
undirrita "samning" sem hei-
milaði "tfmabundna" dvöl so-
véska hersins í Tékkoslovakiu.
Sú tímabundna dvöl hefur nú
staðið í átta ár.
Með ríkisstjórn föðurlands-
svikarans Gustav Husak sem
skjöld hefur sovéska heims-
valdastefnan komið á fasfskri
stjórn í landinu. Tugir þúsunda
heiðarlegra kommúnista sem
ekki vildu una ofbeldisstjórn
sovétmanna hafa verið reknir
úr kommúnistaflokknum, og
þústmdir Imepptir í fangelsi.
Fangelsanir og pólitískar of-
sóknir eru daglegt brauð í
Tékkoslovakiu. Harðstjórn
sovésku heimsvaldastefnunnar
nær til allra sviða þjóðlífsins.
1 gegnum "ráðunauta" sína
stjórnar hernámsliðið ráðu-
neytunum, hernurh, lögreglunni
og vinnustöðvunum.
En andspyrna tékknesku alþýð-
unnar gegn innrásarliðinu fer
stöðugt vaxandi. Hinir fjöl-
mörgu fangelsisdómar fyrir
"andsovéska starfsemi" tala
sínu rnáli. Fréttir af skipu-
lagðri andstöðu meðal verka-
manna í CKD-Iðnaðarsvæðinu
(Skoda) hafa borist út fyrir
landamærin.
Tékknesk alþýða.á fyrir hönduir
langa og harða baráttu gegn
hernaðarlega öflugum fjand-
manni. En hún mun rísa upp
gegn föðurlandssvikaranum
Husak á sama hátt og hún reis
upp gegn föðurlandssvikaranum
Hacha sem seldi land sitt í
hendur þýska fasismanum árið
1938. Sovésku fasistarnir mum
mæta sömu örlögum og Hitler.
A Islandi getum við stutt bar-
áttu tékkneskrar alþýðu með
þvf að vinna að því að afhjúpa
sovétríkin og þau myrkraverk
sem þau standa fyrir f Tékko-
slov£ú?iu og um allan heim.
.Við verðum að berjast gegn
lygunum um að ástandið í
Tékkoslovakiu sé eðlilegt og
sýna fram á að sjálfstæði þjóð-
ar er ekki eitthvað sem hægt
er að vinna og tapa í sjúku
uppskiptakapphlaupi heimsvalda
rílijanna, með risaveldin í
broddi fylkingar. Við verðum
að sýna að þjóðlegt sjálfstæði
er eitt af því dýrmætasta sem
nokkur þjóð getur átt, og grund
völlur þess að verkalýðsstéttin
geti leyst gjörvallt þjóðfélagið
úr ánauð með sósfalismanum.
Hernám Tékkoslovakiu, skipt-
ing Pakistan, fasistisering
Indlands, flotauppbygging um
öll heimsins höf, fhlutun í mál-
efni Angóla. stórveldapólitík
fyrir botni Miðjarðarhafs,
allt ber þetta heimsvaldastefnu
Sovétríkjanna vitni og sýnir
svo ekki verður um villst að
Sovétríkin eru í villtri baráttu
við Bandaríkin um heimsyfir -
láð. Þessi barátta risaveldann:
er í dag helsta ógnunin við
heimsfriðinn.
Að berjast fyrir sjálfstæði og
frelsi til handa Tékkoslovakiu
er því liður f baráttunni gegn
heimsvaldastefnunni og fyrir
varðveislu friðar.
Þess vegna hvetjum við alla
til að taka undir kröfuna um að
Sovétrfkin fari út úr Tékko-
slovakiu. Allir sem styðja
baráttu tékka fyrir sjálfstæði
eiga samleið f baráttunni gegn
heimsvaldastefnu Sovétríkjanna
Sovétríkin út úr Tékkoslovakiu!
Fullan stuðning við frelsisbar-
áttu tékkneskrar alþýðu!
Gegn stríðsundirbúningi risa-
veldannaf
Mótmæla-
aðgerðir
21. ág úst
Laugardaginn 21. ágúst n. k.
mun Kommúnistaflokkur
Islands gangast fyrir mót-
mælaaðgerðum fyrir utan
sovéska sendiráðið til að
mótmæla innrásinni í Tékko-
slóvakíu og hernámi landsins
sem enn stendur. Tilgangur
aðferðanna er að benda á að
Sovétríkin eru í dag heims-
valdasinnað risaveldi sem
skirrist ekki við að beita
hernaðarofbeldi til að fram-
fylgja arðránsstefnu sinni ,
ogað vekja upp á íslandi sam.
stöðu með kúgaðri alþýðu
A-Evrópu og Sovétríkjanna.
Haldinn verður fundur fyrir
utan sovéska sendiráðið
kl. 2 og mun formaður K t’í-
/ML, Gunnar Andrésson,
halda ræðu og borin verður
upp til samþykktar mót-
mælayfirlýsing sem afhent
verður í sendiráðinu.
Við skorum á einstaklinga
og félagasamtök að lýsa yfir
stuðningi við aíigerðirnar
21. ágúst og leggja þannig
lóð á þær vcgarskálar að
afhjúpa Sovétríkin sem heims
valdasinnað stórveldi
Tékknesk æska var mjog virk í baráttunni gegn sovétska
innrásarliðinu. Mótspyrnan tók á sig mörg form, allt frá
skotbardögum til þess að rffa niður götumerkingar til að
gera innrásarliðinu erfiðara fyrir.
Myndin: Verkamenn brenna flokksskrifstofur Komm-
únistaflokksins í Stettin f uppreisninni 1970.
Mjólkurbúðamálið
Verkalýðsstétt Póllands hefur í
dag, eins og 1970 risið upp til
baráttu gegn arðráni og kúgun
endurskoðunnarstefnunnar, og
stendur f dag í fararbroddi fyrir
baráttu allra verkamanna A-
Evrópu gegn kúgun sósíalheims-
valdastefnunnar. Þó verkföllin
hafi enn sem komið er ekki ver-
ið mikil að umfangi, sýna þau
svo ekki verður um villst að sá
byltingareldmóður sem fyrst
blossaði upp 1970 f baráttunni
gegn hinni nýju borgarastétt
Póllands og sovésku kúgurunum
hefur magnast, og að endur-
skoðunnarstefnan er valtari í
sessi en hún vill vera láta.
Með baráttu sinni var pólska
borgarastéttin þvinguð tii að
hætta vlð fyrirhugaðar verð-
hækkanir. Af hræðslu við að á-
standið yrði verra en 1970,
þar sem baráttan tók mjög á-
kveðna pólitíska stefnu, gaf
borgarastéttin undan.
Sjágreinbls. 5.
Brauða- og mjólkurbúðir eru
þær búðir sem hver fjölskylda
verslar í svo að segja daglega.
En nú er svo komið að leggja
á þessa nauðsynlegu þjónustu
niður. Alþingi hefur, að und-
irlagi stórkaupmanna samþykkt
að afnema einkasöiuleyfi
Mjólkursamsölunnar. Við-
brögð Samsölunnar við því
eru þau, að hún hyggst loka
búðum sínum, þar sem hún
telur að ekki sé lengur rekstr
argrundvöllur fyrir mjólkur-
búðirhar. Hins vegar hefur
ekkert verið gert til að koma á
skipulagi í mjólkursölunni
sem gæti leyst af þessar 53
mjólkurbúðir Samsölunnar.
Það er því ijóst að þjónustan
við neytendur mun versna
mjög við breytinguna.
Breytingin hefur enn alvar-
legri afleiðingar I för með sér
fyrir afgreiðslustúlkurnar í
mjólkurbúðunum. Um 160
konur missa þá atvinnu sína,
og allt bendir til þess að fleiri
réttindi þeirra verði skert -
og þá sérstaklega hvað varðar
lífeyrissjóð þeirra. Þegar
fréttamenn STÉTTABARÁTT-
UNNAR fóru og spjölluðu við
nokkrar kvennana kom í ljós
að gífurleg óvissa ríkir í öll-
um málum þeirra, en ekki náð-
ist í forsvarsmenn stéttarfé-
lags þeirra (Félag afgreiðslu-
stúlkna f brauða- og mjólkur-
búðum), til að fá nánar upplýs-
ingar um gang mála.
Þar sem störf þeirra verða
lögð niður er Ijóst að flytja
verður lífeyrissjóðinn og önn-
ur réttindi þeirra yfir í önnur
félög. Þetta er sérstaklega
brýnt fyrir eldri konur sem
koma til með að hætta störfum
við iokunina og eru búnar &ð
borga í sjóðinn í tugi ára, og
einnig þær sem nú þyggja lff-
eyri frá honum.
Kaupmenn hafa gefið opin-
bert loforð fyrir því að þessar
konur sitji fyrir um vinnu ef
þeir bæti við sig starfsfólki
næsta árið. Ljóst er að þetta
tryggir þó engan veginn atvinnu
fyrir þær í framtfðinni, og
margar kvennanna sem unnið
hafa þessi störf í langan tíma
og eiga óhsegt um breytingu á
vinnutíma og vinnutilhögun.
ASl virðist ekki hafa í hyggju
að taka upp mál þeirra sérstak-
lega, t. d. með því að skipu-
leggja stuðningsaðgerðir með-
al annarra félaga ASÍ.
Rétt væri að félagskonur ASB
hæfu þegar baráttu gegn þeirri
réttindaskerðingu sem mun
fylgja lokun búðanna, og fá al-
menning í lið með sér, t. d.
með þvf að hefja undirskrifta-
söfnun gegn lokun búðanna. Það
ætti að vera auðvelt, því megin
þorri fólks vill hafa þessa þjón-
ustu áfram.
A blaðsíðu 3 eru viðtöl við
nokkrar starfsstúlkur f mjólkur-
búðum um þetta mál.