Stéttabaráttan - 11.08.1976, Page 5
Stéttabaráttan 11. ágúst. 1976.
CS
Viðtal við Daoud Kaloti fulltrúa PLO
Við munum sigra!
Áthygli umheiinsins beinist nú í æ ríkari mæli að
löndunum fyrir botni Miðjarðarhafs. Risaveldin og
heimsvaldasinnarnir reyna að skara eld að sinni köku
og eiga i harðri baráttu sín á milli. Jafnframt vex
hinum framsæknu og framfarasinnuðu öflum í araba-
lcndunum fiskur um hrygg í baráttunni gegn yfirgangi
zionisma og annari heimsvaldastefnu. Það eru
palestínumenn sem standa þar i fremstu víglínu
(bókstaflega og óbeint). En það eru ekki bara heims-
valdasinnarnir sem skelfast hina palestxnsku byltingu,
hin afturhaldssama yfirstétt f arabalöndunum sér sfna
sæng útbreidda og óttast um gróða sinn og völd. Þetta
er meðal annars baksvið þess sem er að gerast í
Líbanon þessa dagana. En það er ekki bara meðal
arabfskrar alþýðu sem stuðningur við palestínuaraba
fer vaxandi. A vesturlöndum ljúka æ fleiri upp augum
fyrir því að málstaður hinna landræku palestínumanna
gegn hinum fsraelska zionisma og heimsvalda-
stefnunni krefst fulls stuðnings allra framfaraafla.
Það er ein af ástæðunum fyrir því að hinn eini lög-
mæti fulltrúi palestfnuaraba, samtökin PLO, opnuðu
í vetur upplýsingaskrifstofu í Stokkhólmi. Blaða-
maður Stéttabaráttunnar tók þar eftirfarandi viðtal við
forstöðumann skrifstofunnar Daoud Kaloti, þann
13. júlf síðastliðinn;
Kaloti hóf viðtalið á því aðlýsa
yfir fyllsta stuðningi við bar-
áttu íslendinga við breska og
bandaríska heimsvaldastefnu.
"Og" sagði Kaloti "viðstyðj
um ekki bara baráttu ykkar,
við tökum beinlínis þátt f
henni. Palestfnska byltingin
hefur nefnilega tvær hliðar,
jafnframt þjóðlegri baráttu um
rétt til síns eigin lands, sjálfs-
ákvörðunarréttar, frelsis og
fyrir lýðræðislegu palestínsku
rlki; þá er palestínska bylt-
ingin barátta gegn heimsvalda-
stefnu f hvaða mynd sem hún
birtist, gegn yfirgangi og kúg-
un. Baráttan gegn heimsvalda-
stefnunni í Palestfnu er stuðn-
ingur við baráttu fslendinga,
eins og baráttan gegn heims-
valdastefnunni á Islandi er
stuðningur við baráttu palest-
fnumanna. "
Stb: Nú eru fjölmiðlar með
stöðugar fréttir af blóðugum
átökum f Líbanon. Hvert er
baksvið þessara atburða, og
geta palestínumenn og vinstri
öflin unnið sigur yfir aftur-
haldsöflunum ?
Kaloti: Við munum sigra, á
þvf er ekki nokkur vafi. Við
getum farið halloka um sinn,
jafnvel orðið fyrir geigvænlegu
tjóni, en við erum viðbúin öllu
og erum viss um sigur í fram-
tíðinni. Þjóð sem hefur verið
svipt öllu, rekin f útlegð og
rænd sínu eigin landi, þegar sú
þjóð öðlast vitund um kraft
sinn og rétt getur ekkert stöðv-
að hana. Alþýða arabalandanm
verkalýðsstéttin og þjóðernis-
sinnaðir menntamenn munu
heldur aldrei leyfa að palest-
ínska verði brotin á bak aftur.
En hvað varðar bakgrunn
þess sem er að gerast. I Líb-
anon er alls ekki um að ræða
neins konar trúarbragðastyrj -
öld þótt ýmsir fjölmiðlar vest-
urlanda vilji halda því fram,
vissulega eru helstu leiðtogar
fasistanna, falangistanna,
kristnir, en það kemur ekki í
veg fyrir að margir kristnir
berjist með vinstri öflunum.
En þessi styrjöld byggist held
ur ekki á stéttarandstæðum í
Lfbanon, það er að vísu hár-
rétt að falangistarnir fá stuðn-
ing borgarastéttarinnar í bar-
áttunni gegn verkalýðsstéttinni,
alþýðunni og framfaraöflunum.
Nei, orsakirnar eru alþjóð-
legar. Bandaríkin eru á niður-
leið sem heimsveldi, þau eiga
í miklum erfiðleikum með að
viðhalda arðránsstöðu sinní.
i’leiri og fleiri öfl rísa upp til
baráttu fyrir sjálfstæði og rétti
til að ráða yfir sfnum eigin
auðlindum. Sósíalísk og fram-
farasinnuð öfl fara ört vaxandi
f Évrópu. Efnahagskreppa auð-
valdslandanna vekur upp stöð-
ugt nýja andstöðu og.óánægju
hópa, hergagnaiðnaðurinn í
Bandaríkjunum verður að kom-
ast í gang aftur, annars dýpk-
ar kreppan enn. Evrópulöndin
eru ekki eins fylgisspök og áð-
ur og hefur jafnvel komið til
alvarlegra efnahagsárekstra,
milli Evrópu og Bandaríkjanna.
Sovétríkin hafa orðið stöðugt
áhrifameiri. En kjarni máls-
ins er olían. Það er um
yfirráðin yfir olíuauðlindunum
sem baráttan stendur milli
risaveldanna og heimsvalda-
landanna. Vesturlönd verða
sífellt háðari olíustreyminu frá
löndum araba. Bandaríkin
fá um 54%, Vestur-Evrópa 60-
80% og Japan 90% af sinni olíu
frá löndum araba. Það er þvf
mikið í húfi hverjir ráða yfir
þessari olíu og öllum brögðum
er beitt.
Stb: En hvar kemur Lfbanon
og palestínuarabar inn í mynd-
ina ?
Kaloti: Jú, andstaðan við
heimsvaldasíefnuna hefur vaxið
gífurlega meðal araba undanfar.
in ár, þjóðnýtingar á olíulindurr
verið framkvæmdar í flestum
arabalöndum og áhrif risaolíu-
hringanna hafa minnkað mikið.
En það eru því sem næst ein-
göngu borgarastéttir þessara
landa sem hafa setið að gróðan-
um, alþýðan hefur orðið að
sitja álengdar. Nú eflast þau
öfl sem krefjast réttlátari skipt
ingar þjóðarauðæfanna og berj- ■
ast fyrir lýðræðislegum, sósíal
ískum þjóðfélögum. Barátta
palestínuaraba hefur verið
leiðarljós þessara afla og hættu
legt fordæmi að mati afturhalds
aflanna. Palestfnumenn hafa
einnig lengi verið sérstakur
þyrnir í augum bandarísku
heimsvaldastefnunnar. Hún
hefur þvf hvað eftir annað
reynt að eyðileggja hin palest-
ínsku byltingu f gegnum leppa
sína f afturhaldsstjórnum bæði
í Líbanon og Jórdaníu.
En palestínska byltingin er
ekki neitt einangrað fyrirbæri.
Hún er hluti af hinni arabísku
byltingu, hún er framvarðar-
sveit hennar! Þess vegna sam
einast síonistar, bandarískir
heimsvaldasinnar og arabískir
afturhaldsmenn um að reyna
að knésetja hina palestínsku
byltingu áður én hún hefur vax-
ið þeim yfir höfuð!
Eftir að stefna Henry Kiss-
ingers beið ósigur bæði í Afr-
íku og í Indókfna hefur hann
einbeitt sér að miðausturlönd-
um. Hann hefur uppi ráðagerð
ir um að færa Bandaríkin fet
fyrir fet aftur í þá aðstöðu sem
þau höfðu á blómatíma heims-
valdastefnunnar. Sú leið átti
að hefjast í Líbanon. Hún átti
að hefjast með því að mola
sundur andstöðuöflin, öH
palestínumanna. En þar mis-
reiknaði CIA sig heldur betur.
Þeir höfðu áætlað að falangist-
arnir (hægri menn) myndu
vinna skjótan sigur, en veru-
leikinn varð algjör andstæða,
hinn opinberi her Lfbanon er
uppleystur og að mestu geng-
inn f lið með okkúr, hinir áður
sundurleitu hópar vinstri
manna hafa snúið bökum saman
og síðast en ekki síst, hin lfb-
anska alþýða hefur snúist til
fylgis við okkur.
Afturhaldið tapar fótfestu en
byltingin sækir fram. Og það
er þá sem Sýrland gerir inn-
rásina.
Stb: Heldur þú að Bandarfk-
in hafi vitað um hana áður ?
Kaloti: Já, alveg efalaust.
Bandarfkin stóðu örugglega
bakvið innrásina og Israel hef-
ur einnig vitað um hana áður,
þvf það er síonistunum mjög
í hag að binda sveitir palest-
ínumanna við varnir Hótta-
mannabúða inni í Líbanon í
stað þess að berjast inni í Isra
el.
En það er ófyrirsjáanlegt
enn hvaða áhrif innrásin hefur
á ástand mála í Sýrlandi. Allir
raunverulegir þjóðernissinnar
og andheimsvaldasinnar þar
mótmæla innrásinni, þeir og
öll arabísk alþýða munu ekki
samþykkja að palestínska bylt-
ingin verði þurrkuð út.
Stb: En hvað um afstöðu
Sovét til innrásarinnar ?
Kaloti: Við höldum að Assad
(Sýrlandsforseti) hafi leikið á
rússa. Við höldum að þeir
hafi ekki vitað hvað til stóð.
Kosygin og Assad undirrituðu
yfirlýsingu meðan á heimsókn-
inni stóð, þar sem ma. var
tekið fram, að vandamál sín
yrðu líbanir að leysa sjálfir
án íhlutunar annarra, einnig
að tryggja yrði sjálfstæði Líb-
anon, og reyna að koma í veg
fyrir óþarfa blóðsúthellingar.
Við palestínuarabar erum sam-
mála þvf að líbanir verðir að
leysa sfn eigin vandamál, en
við erum líka andvígir öllum
stórveldalausnum, þe. að risa-
veldin semji yfir höfðum fólks
án þess að það fái neinu ráðið.
En við höldum sem sagt ekki
að Sovét hafi verið með f ráð-
um um innrásina, enda for-
dæmdu þeir hana harðlega
nokkrum dögum seinna og í-
trekuðu stuðning sinn við pal-
estínsku byltinguna.
Stb: Baráttan mun halda á-
fram ?
Kaloti: Við berjumst af
hörku, við höfum misst marga
fallna og særða, við munum
berjast áfram. Móti þessu
bandaríska samsæri gegn
palestínsku byltingunni, sam-
særi gegn öllum framfaraöflum
f arabalöndum. Við, vinstri
Ifbanir og palestínumenn lítum
þessa baráttu sem sögulega
nauðsyn, nauðsynlega til að
sýna og sanna fyrir arabískri
alþýðu að það borgar sig að
taka upp baráttuna, að það er
einungis hægt að vinna ef mað-
ur berst.
Einmitt núna eru hörðustu
bardagarnir um flóttamannabúð
irnar Tal al-Zaatar f Beirút.
Þar hafa 20.000 Hóttamenn,
þar af nokkur þúsund vopnfær-
ir karlmenn, barist gegn ofur-
efliliðs, fyrst einungis falang-
ista en sfðar einnig liðsstyrk
Sýrlands. I dag eru 22 dagar
sem búðirnar hafa að mestu
verið í herkví, um 6000 hand-
sprengjum hefur verið varpað
á búðirnar, í nótt sem leið
gerðu falangistarnir innrásar-
tilraunir um það bil þrisvar á
mínútu. Og enn berjumst við.
Reyndar erum við farin að tala
um Tal al-Zaatar sem Stalín-
grad, ekki vegna þess að búðir-
nar séu hernaðarlega mikilvæg-
ar, heldur vegna hins pólitíska
og siðferðilega styrks sem
þær veita okkur.
Stb: Og sýrlendingarnir berj-
ast við hlið falangistanna ?
Kaloti: Já, það er ekki bara
í Tal al-Zaatar. f dag hófu
þeir árás ásamt falangistum á
borgina Baalbac. Þar hefur al-
þýðan risið upp sem einn mað-
ur okkur til aðstoðar.
En þessi fasistaaðstoð stjórn-
ar Sýrlands er ekki tekið með
þegjandi þögninni heima fyrir.
Miklar mótmælaaðgerðir hafa
verið hafðar í frammi. Þús-
undir á þúsundir ofan hafa ver-
ið fangelsaðar, þvf sem næst
allir foringjar andstöðunnar
hafa verið handteknir, samt
halda mótmælin áfram. Innan
sýrlenska hersins hefur einnig
verið ólga vegna innrásarinnar
I sfðustu viku voru 9 flugmenn
hengdir þegar þeir neituðu að
varpa sprengjum á palestfnsk-
ar flóttamannabúðir í Lfbanon.
Margir sýrlenskir hermenn
hafa slegist í lið með okkur.
Assad og hans lið er aðlosna
í stólunum. Fýrr eða síðar
mun hann falla. En hann beit-
ir öllum ráðum til að reyna að
þagga niður andstöðuna. Hann
hefur sent stórar sveitir her-
manna og látið umkringja
Hóttamannabúðir palestínu-
manna í Damaskus. Enn hefur
hann ekki látið til skarar
skríða, en við erum við öllu
búin. Við reynum að forðast
ögranir, við viljum nota öll
vopn gegn Israel og bandarísku
heimsvaldastefnunni.
Stb: Að lokum vildi ég spyrja
um annað atriði sem mjög hef-
ur borið á góma undanfarið.
Hver er afstaða PLO til Hug-
rána sem pólitísks tækis ?
Kaloti: PLO fordæmir Hug-
vélarán. Við höfum alltaf ver-
ið á móti þeim. Við fordæmd-
um það fyrsta og við fordæm-
um það síðasta og öll þar á
milli. Við erum algjörlega
andvfgir öllum sfíkum aðgerð-
um sem hvergi snerta sjálfa
baráttuna gegn síonismanum og
heimsvaldastefnunni. Við er-
um andvígir þvf að leggja
mannslíf í hættu að óþörfu.
Reyndar er sennilegast að
þetta sfðasta flugrán hafi verið
skipulagt af sýrlendingum að
undirlagi CIA einmitt til að
sverta PLO. Nú, þegar stöð-
ugt Heiri eru farnir að sjá að
barátta okkar er réttmæt, þá
er þetta upplagt tæki til að
reyna að stimpla palestfnu-
menn sem glæpamenn ogfjölda-
morðingja. En ég fordæmi
þetta flugvélarán af jafn mikl-
um krafti og ég fordæmi árás
fsraela á flugvöllinn í Uganda.
Þeir brutu þar gegn öllum al-
þjóðalögum og reglum, og
sýndu sig sem þá glæpamenn
sem þeir eru. Reyndar sann-
aði þessi árás einnig það sem
við höfum sagt, að síonismi
er kynþáttastefna, þeir leggja
allt undir til að bjarga hvítum
mönnum, gyðingum, evrópu-
mönnum, en láta eins og ekk-
ert sé þótt það kosti nokkra
tugi svartra manna Iffið!
En það er einmitt innan Isra-
els sem við höfum eignast nýj-
an bandamann. Það eru austur
landagyðingarnir, arabagyð-
ingarnir sem eru meðhöndlað-
ir sem þriðja flokks borgarar.
Þeir eru nefnilega farnir að
skilja að barátta okkar er jafn-
mikið fyrir þá eins og hún er
fyrir okkur!
Daoud Kaloti, forstöðumaður upplýsingaskrifstofu PLO
í Stokkhólmi. A veggnum fyrir ofan hann hengur mynd
af einni frægustu frelsishetju Palestínumanna frá
8tríðinu 1948, Abdel Qader al-Husseini.
Stéttabaráttan 11. ágúst. 1976,
Barátta pólsks verkalýðs:
Lýsandi fordæmi kúgaðra
alþýðu A-Evrópu
Orsök verkfallanna
1 Póllandi ríkir í dag borgara-
stétt, sem heldur völdum með
fasfskum aðferðum. Studd sov-
éská herveldinu er sérhver til- /
raun til mótmæla gegn stjórninni
barin niður, og lýðræðisleg rétt
indi fótumtroðin. Eins og í öðrum
auðvaldslöndum þar sem gróða-
sóknin situr f fyrirrúmi, er
í landinu verðbólga og landið er
þjakað af erlendum skuldum.
A árinu 1974 uxu skuldir erlend-
is úr 1.7 milljcrðum dollara í
3 milljarða dollara. Borgara-
stétt Póllands hefur svarað
þessu með að skerða kaupmátt
alþýðunnar og reyna þannig að
velta byrðum kreppunnar yfir
á herðar hennar. En verkalýðs-
stétt Póllands hefur nú í annað
sinn á 6 árum sýnt að hún lætur
ekki kúga sig.
Uppreisnin 1970
óku sovéskir skriðdrekar, sem
skutu á allt sem hreyfðist.
Aður en herinn náði bænum,
höfðu verkamennirnir brennt
niður floksskrifstofur endurskoð
unarsinnanna. 1 eystrasaltsborg
inni Gdansk fóru 16000 manns í
mótmælagöngu, syngjandi Inter-
nationalinn undir myndum af
Lenin og Stalin. 1 Warsjá tóku
23000 manns þátt í setuverk-
falli.
Afleiðingar þessarar uppreisnar
voru víðtaskar handtökur og fang
elsanir á verkamönnum. Allt
síðan þá hafa hafnarverkamenn
í Gdansk og iðnverkamenn í
Szczecin unnið undir vörslu
vélbyssuhreiðra og fallbyssa.
Astandið í dag:verðbólga og
vöruskortur.
1970 hófst uppreisnin í desem-
ber með því að byltingarsinnað
verkamannaráð tók völdin í
bænum Szczecin. Svar stjórnar-
innar var að senda her gegn
verkamönnunum. I fararbroddi
Nú í sumar voru fyrirhugaðar
miklar verðhækkanir á matvæl-
um. Aætlaðar voru 60% meðal-
talshækkanir á matvörum, semer
gffurlega mikið ef það er haft f
huga að laun hafa aðeins hækkað
um 38% sfðustu fjögur árin.
Samkvæmt opnberri skýringu á
verðhækkununum var markmið
þeirra "að koma f veg fyrir bið-
raðir við verslanir, svartamark
aðsbrask, og til að fá fólk til að
kaupa annan iðnvarning". Þetta
á að gera á sama tfma og
mikill skortur er á kjötvörum
í landinu. Landbúnaður Póllands
hefur átt við gífurlega erfiðleika
að etja sem m. a. stafar af því
að Sovétríkin hafa velt kreppu
sinni að hluta til yfir á Pólland
með þvf að kaupa af pólverjum
ódýrar landbúnaðarafurðir, en
þvinga þá til að kaupa af sér
dýrar iðnaðarvörur. T. d. er
búið að drepa algerlega niður
dráttavélaframleiðslu f Póllandi
og allar vélar til landbúnaðar er
eru fluttar inn frá Sovét.
Þetta ástand, ásamt atvinnuleysi
og pólitískri kúgun hefur orðið
þess valdandi að pólskur verka-
lýður rís nú upp.
Umfang uppreisnarinnar f dag
Uppreisnin hófst með víðtæku
verkfalli þar sem verkamenn í
Eystrasaltsborgunum og Warsjá
höfðu forystuna. Verkfallsmenn
í Ursus-dráttavélaverksmiðjun-
um í nágrenni Warsjár rifu upp
teina hraðlestarinnar milli
Parísar og Warsjár og neituðu
að lofa lestinni að halda áfram
nema stjórnin hætti við fyrir-
hugaðar verðhækkanir. Verka-
menn í Zeran-bifreiðaverk-
smiðjunni við Warsjá, og verka-
menn í skipasmfðastöðvum í
Eystrasaltsbæjunum fóru í verk-
fall og lýstu því yfir að þeir
myndu ekki fara til vinnu aftur
nema verðstöðvun yrði sett á.
I iðnaðarbænum Radom fyrir
sunnanWarsjá voru höfuðstöðvar
endurskoðunarsinnannabrenndar
til ösku. Vfða um Pólland kom
til átaka milli mótmælenda og
lögreglunnar, og samkvæmt
fréttum var lögreglan óspör á
táragas og kylfuhögg.
En sökum reynslunnar frá 1970
þorði stjórnin ekki að senda
herinn gegn verkafólki, því það
hefði getað kostað allsherjar-
uppreisn.
Eftirmáli uppreisnarinnar
Það er ljóst, að stjórn endur-
skoðunnarsinna er skelfingu
lostin yfir hinum hörðu við-
brögðum almennings. Hún hefur
lofað að endurskoða ákvörðun
sína um verðhaskkanir, en það
er aðeins til að friða alþýðuna.
Víðtækar handtökur hafa verið
framkvæmdar, og nú þegar hafa
margir af leiðtogum verkfalls-^
manna vérið dæmdir til langra
fangelsisvista. A sama hátt og
fasistar allra tfma, heldur
stjórn Póllands að hún geti með
fangelsunum brotið á bak aftur
baráttu alþýðunnar fyrir frelsi
og brauði. En nýir leiðtogar
munu koma upp í rás baráttunnar
og baráttan mun breiðast út.
Hinn ólöglegi marx-leniniski
Kommúnistaflokkur Póllands
hefur skorað á alla framsýna
menn að fordæma hina fasísku
ofbeldisstjórn Póllands og þá
sem standa á bak við hana,
heimsvaldasinnana f Kreml.
KFl/ML lýsir yfir fullum stuð-
ningi við baráttu pólskrar alþýðu
og mun gera allt sem í hans
valdi stendur til að afhjúpa og
einangra talsmenn endurskoð-
unnar s tefnunnar.
Ol
Verkfallsnefnd f Warski-skipasmfðastöðinni.
Tilgangur utanrikisstefnu Kína:
Sundra heimsvaldasinnunum til að
skjóta heimsstyrjöldinni á frest
Afstaða kínverja til Atlantshafs-
bandalagsins hefur orðið
mörgum umhugsunarefni á
síðustu árum. Margir halda því
fram, að kfnverjar styðji NATO
í því skyni að hafa betur í
deilum sínum við Sovétríkin.
Hægri öflin hafa jafnvel gert því
skóna, að Bandaríkin hafi
eignast bandamann í Kína og að
Kína styðji aðgerðir og tilgang
NATO. Ekkert er fjarstæðu-
kenndara en þessi skoðun, enda
mun hún eiga rætur sínar að
rekja til áróðursmaskínu
sovésku endurskoðunarsinnanna
og er spunnin upp til þess að
breiða yfir raunverulegt eðli
sovéskrar sósíalheimsvalda-
stefnu og beina athyglinni frá
gagnbyltingarsinnuðu framferði
nýju zaranna í Kreml.
NATO er heimsvaldasinnað
árásarbandalag,
Afstaða kínversku kommúnist-
anna er þessi. Þeir álíta NATO
vera heimsvaldasinnað áráaar-
bandalag, sem beint er gegn
alþýðu heimsins og byltingar-
baráttu hennar. Þess vegna for-
dæma þeir aðgerðir NATO og
sérstaklega hernaðarlega fhlutun
Bandaríkjanna í V-Evrópu. Þetta
kemur hins vegar ekki í veg
fyrir að kínverjar fordæmi heims
valdastefnuna hvar og hvenær
sem hún birtist, hvort sem er í
Japan, V-Evrópu eða Sovét-
ríkjunum. Þeir benda þvert á
móti á, að endurskoðunar-
sinnarnir í V-Evrópu reyna að
beina augum fólks frá heims-
valdastefnu Sovétrfkjanna og
heimsstyrjaldarhættunni sem
stafar af henni, með því að út-
mála Bandarísku heimsvalda-
stefnuna og NATO sem einu
óvinina. Styrkur marxismans-
lenínismans í V-Evrópu er lítill
í dag, þótt hann fari ört vaxandi.
Kæmi til þess, að varnarsam-
starf evrópskra heimsvalda-
sinna leystist upp og Evrópa
stæði berskjölduð gagnvart inn-
^rás frá Sovétríltjunum, myndi
ekkert aH vera neegilega sterkt
til þess að hindra styrjöldina.
Hin unga og hratt vaxandi marx-
leníníska hreyfing í V-Evrópu
myndi ekki geta fylkt verkalýð og
alþýðu Evrópu til alþýðustríðs
gegn sósíalheimsvaldastefnunni
og strfð sem hæfist á næstu
árum myndi tákna ótaldar
hörmungarog þjáningar fyrir
alþýðu Evrópulandanna. Afstaða
kínverskra kommúnista byggist
sem sé á því, að styrjaldarhættan
komi frá Sovétríkjunum, sem sé
gráðugt og vaxandi heimsvalda-
ríki og veiktar varnir Evrópu eða
sundrung meðal Evrópurfkjanna,
myndi Hýta fyrir því að heims-
styrjöld skylli á. Kínverjar
segja: "Helst vildum við að alþýða
Evrópulandanna tæki völdin í
byltingu, því að það er besta
tryggingin fyrir ósigri heims-
valdastefnunnar". Þetta er ein-
mitt í anda stefnu Maó formanns,
sem hann setur fram í orðunum
"annað hvort hindrar heims-
byltingin heimsstyrjöldina, eða
heimsstyrjöldin mun snúast upp
í heimsbyltingu". Utanríkisstefm
Kína mótast af þessu viðhorfi.
Að varðveita friðinn eins lengi og
unnt er, til þess að byltingaröflin
fái vaxtarmöguleika og verði þess
umkomin að hindra ófriðinn.
Þess vegna verður afstaða kín-
verja til NATO og varnarsam-
starfs Evrópuríkjanna að skoðast
í þessu ljósi.
Endurskoðunarsinnar eru heims-
valdaslnnar.
Endurskoðunarsinnar Evrópu-
landanna hafa reynt að gera sér
mat úr þessu til þess að ófrægja
Kína og slá ryki í augu Evrópskar
alþýðu, svo hún verði ófriðar-
hættunnar ekki vör og trúi blint á
"detente" og "friðarhjal"
Brésneffs. Þess vegna eru það
raunverulega endurskoðunar-
sinnarnir sem styðja heimsvalda-
stefnuna, þótt þeir gapi sem hæst
gegn NATO. Því þeir þegja um
hættuna sem alþýðu heimsins
Kínverjar láta ekki blekkjast af
friðarhjali USSR og USA,og
benda sífellt á hættuna á 3ju.
heims fy r j öldinni.
stafar af Sovétrílcjunum. Þannig
ryðja þeir brautina fyrir nýrri
heimsstyrjöld og reyna að sundra
samstöðu verkalýðsins gegn
heimsvaldastefnu og sósíalheims-
valdastefnu. Ef Helskini-sátt-
málinn er raunverulega trygging
fyrir friði, ef "detente" er fram-
tíðin og afvopnun og bann við
eyðingarvopnum er framkvæman-
legt, eins og endurskoðunar-
sinnarnir halda fram, hvers
vegna þarf þá að óttast Banda-
rílcin og NATO? Nei, sami-
leikurinn er sá, að með því að
útbreiða þvættinginn um "detente"
og afvopnun, eru endurskoðunar-
sinnarnir að hylma yfir útþenslu
og árásarstefnu Sovétríkjanna
og draga alþýðu Evrópu á tálar.
Þeir sem tala hæst um frið og
afvopnun, samtímis sem heims-
styrjöldin nálgast óðfluga, eru
hinir raunverulegu stuðnings-
menn heimsvaldasteínunnar.
Þetta sanna líka afstaða Portú-
galska, Italska og annara endur-
skoðunarsinnaflokka(það eru
hlnir svokölluðu kommúnista-
flokkar Portúgal, Italíu o. s. frv.)
, en þeir styðja veru landa
sinna í NATO. Þeir sem ekki
berjast gegn heimsstyrjaldar-
hættumii og reyna að fela upptök
hennar í sovésku sósíalheims-
valdastefnunni, eru raunveru-
legir fjandmenn verkalýðsins,
raunverulegir heimsvaldasinnar.
-/KG
”Söguleg málamiðlun”
Arni Bergmann, blaðamaður
Þjóðviljans, gisti Italí þegar
kosningarnar fóru þar fram fyr.
ir skömmu. Athygli hans og
annarra endurskoðunarsinna
beinist mjög að tiitektum Berl-
inguer og félaga vegna þess að
ítalski endurskoðunarsinna-
flokkurinn er stærstur þeirra
flokka á vesturlöndum sem
fylgja rangfærslum Krúsjofs o.
fl. um "þingræðislegu leiðina"
til sósíalismans, Hið sérstaka
afbrigði ítalskra endurskoðun-
arsinna gengur undir nafninu
"söguleg málamiðlun" og felur
m. a. í sér að flokkurinn hefur
lýst þvf yfir að hann muni elcki
berjast gegn veru Italíu í NATO
Þessi yfirlýsing Berlinguer
setti nokkurn vanda á herðar
Arna Bergmann - því að NATO-
andstaðan hefur aldrei verið
meiri á Islandi en einmitt nú.
Laumulegur áróður Þjóðviljans
o. fl. hefur til þessa gengið út
á að sýna fram á að það væru
kínverjar sem styddu NATO og
að Alþýðubandalagið væri
brjóstvörn herstöðvaandstæð-
inga. Arni Bergmann snaraði
sér þvf út á ritvöllinn undir
fyrirsögninni "Italskir kommún-
istar og við". Greininni var
ætlað að útskýra þær mismun-
andi aðstæður sem eru til stað-
ar á Islandi og í Italíu og hví
ítalskir endurskoðunarsinnar
geti samþykkt NATO-aðild en
þeir íslensku ekki,
En pistill Arna gerir betur,
hann afhjúpar þá staðreynd að
höfundurinn er reiðubúinn til
að samþykkja NATO-aðild Is-
lands ef aðstæður hér væru
svipaðar og í Italíu. Arni seg-
ir: "Það er f sambandi við
NATO og afleiðingar aðildar að
því bandalagi næsta auðvelt að
telja upp mismun á þessum
tveim löndum. Annarsvegar
vopnlaust smáríki með hefð-
bundinn vilja til hlutleysis,
hinsvegar fjölmennt ríki í
miðri hinni oft vanstilltu Evr-
ópu, sem er þá búið umtals-
verðum her, sem hvort er eð
hlýtur að ganga upp f einhvern
hernaðarlegan útreikning. 1
annan stað er þessi fjölmenna
þjóð, ítalir, sem stendur á
miklum menningararfi, hvergi
nærri eins viðkvæm fyrirraski
því, er umsvif bandalagsins í
formi bandarískra herstöðva
hafa á efnahag, menningu og
sjálfstæða framkomu hins ör-
litla íslenska samfélags. "
Kjarninn í þessari útlistun er
sá að ef Island væri vopnað
ríki og öllu stærra og þyldi því
betur veruna í NATO (eða upp-
fyllti þau skilyrði sem Arni
telur upp), þá væri forsvaran-
legt fyrir Alþýðubandalagið að
gera sögulega málamiðlun" og
hætta að berjast gegn NATO-
aðildinni! ! Það bólar ekkert á
andstöðunni gegn bandalaginu
sem slíku. Ennfremur telur A.
B. að "kanski væri það ill-
skárra fyrir NATO ef PCI
héldi áfram að hamast gegn að-
ild Italíu að bandalaginu. " (PCI
er skammstöfun fyrir flokk ít-
clsku endurskoðunarsinnamia).
Kér skfn í gegn viljinn til þess
að aðlaga stefnuna hagsmunum
auðvaldsins. A. B. hefur fund-
ið "réttlætingu" fyrir því að
berjast elcki gegn NATO við
"vissar aðstæður". Og hver
kannast ekki við þá stefnu sem
gjarnan er framfylgt af forystu
Alþýðubandalagsins að einbeita
baráttunni gegn herstöðvunum
en láta NATO-aðildina liggja á
milli hluta ? Það þarf ekki ann-
að en að minna á örlög sfðustu
herstöðvaandstæðingasamtaka -
en þar réði Alþýðubandalagið
ferðinni að mestu.
Að sögn Arna byggir PCI af-
stöðu sína "fyrst og síðast á
raunsæi", þetta "raunsæi" á
greinilega mikið fylgi imian for-
ystu Alþýðubandalagsins. Allt
þingsæta- og ráðherrastóla-
brölt hennar sannar það.
Andstaða Alþýðubandalagsfor-
ystunnar gegn veru Islands í
NATO er þvf ekki heilsteypt.
Arni Bergmanna o. fl. hafa í
raun lýst sig sammála stefnu
ítalskra endurskoðunarsinna
sem haia gert all-sögulega
málamiðlun við höfuðfjanda
verkalýðsins, auðvaldið.
Slíkt "raunsæi" eru svik hvern
ig sem pennaliprir náungar
reyna að snúa hlutunum og láta
þá líta vel út!
-/hh