Stéttabaráttan


Stéttabaráttan - 04.04.1978, Síða 3

Stéttabaráttan - 04.04.1978, Síða 3
STÉTTABARÁTTAN 4.4.1978 -------------------------------^ Fjöldastef na eða f yrirsláttur Marxíska-leníníska hreyfingln hefur vaxið að afli og áhrifum á undanförnum árum. Hún setti sér við upphaf ferðar sinnar orð Lenfns að kjörorði: Án byltingarsinnaðrar fræðikenningar getur ekki verið um byltingarhreyfingu að ræða. Þetta var skilyrðis- laust nauðsynlegt þá, þar sem ýmis konar falsspámenn endur- skoðunarstefnunnar höfðu dregið fræðikenninguna niður f svað- ið, snúið út úr henni og afskræmt á allan hátt. Þegar 8. tugur aldarinnar gekk í garð, var "íslenski marxisminn" hljómlítið bergmál sovéskrar endurskoðunarstefnu. Byltingarsinnuðu inni- haldi marxismans hafði verið varpað fyrir róða og eftir stóð aðeins borgaraleg þingræðisbarátta flokks, sem misst hafði nær öll tengsl við hinn vinnandi fjölda og var fullkomlega orðinn samdauna kapitalismanum. Þá var sérstakiega mikilvægt að draga skýrar markalínur milli endurskoðunarstefnu og marx- isma að skilja hismi frjálshyggjunnar frá byltingarstefnunni. ; Enn er þetta verkefni brýnt, en nýr þáttur þess verður æ meir aðkallandi. Nú er mikilvægast að aðlaga hin almennu sannindi marxismans að baráttu íslenskrar verkalýðsstéttar fyrir frelsi sínu og framtíð. Hin fræðilega barátta sem háð var gegn endur- skoðunarstefnunni í byrjun áratugsins og fjallaði að mestu um skilgreiningar á íslenska auðvaldsþjóðfélaginu og stéttunum sem takast á í því, víkur hægt en markvisst fyrir framkvæmd þeirra marxísku stefnumála sem mótast hafa í fræðilegu baráttunni. Fræðilegu baráttunni er ekki lokið. Svo lengi sem stéttir verða til - og þess er langt að bíða að þær hverfi af vettvángi sögunn - ar - mun verkalýðsstéttin heyja fræðilega baráttu gegn borgara- stéttinni. En fræðin eru leiðsögn til athafna, framkvæmd marx- ískrar stefnu við íslenskar aðstæður er hið mikilvæga og knýj- andi verkefni sem íslenskir kommúnistar standa frammi fyrir. Mynd eftir rúmenska teiknarann Eugen Taru. Pólitikin er afgerandi. Gervallt þjóðfélagið er nu í gerjun. Stéttirnar eru að undirbúa sig undir þau átök sem eru í vændum. Þessi undirbúningur birtist m. a. í hörðum átökum um starf og stefnu innan samtaka fjöldans. I verkalýðshreyfingunni er að vaxa fram skipulögð andstaða gegn stéttasamstarfi og borg- aralegri pólitík forystunnar. Innan andheimsvaldahreyfing- arinnar er barist um stefnu- mótun, tekist á um leiðirnar til að skipuleggja baráttuna. Alþýðubandalagið er smám saman að missa hefðbundna forystustöðu sína innan Sam- taka Herstöðvaandstæðinga, vegna undansláttar- og eigin- hagsmunastefnu sinnar. Innan kvennahreyfingarinnar takast tvær andstæðar stefn- ur á. Hið vaxandi og nýja innan fjöldahreyfinganna er marxisminn-Ienínisminn. Hið ganila og deyjandi 'er borgaraleg endurskoðunar- stefna. En sjálf stefnumótun marxismans verður ekki án innri átaka. Þar sem annars staðar birtist barátta stétt- anna f ágreiningi um stefnuna, Deilurnar milli Kommúnista- flokksins og EKm-1 varða einmitt stefnumótun íslensk- ra marxista-lenínista. Póli- tíska stefnan er afgerandi á þessu skeiði. Bett pólitísk I stefna mun sigra, jafnvel I þótt talsmenn hennar séu fá- I liðaðir í dag. Hentistefna og I röng pólitik er dæmd til að bíða ósigur. 1 þessu ljósi verður að skoða háværar yfirlýsingar EKm-1 um eigið ágæti og falsmarxisma ann- ara. En það er ekki sigur- vænlegt eitt sér, að vera sjálfsánægður og hrokafullur. Starf EIKm-1 er til frásagn- ar um og mælikvarði á það hvort póiitik þeirra er rett eða röng. Tal um þjónustu við fjöldann til að dylja ðtta við fjöldann. Fjöldahreyfingarnar á ís- landi eru undir forystu og áhrifum borgaralegra afla. Þetta jafngildir því, að fjöld- inn sé undir forystu og áhrif- um borgaralegra afla. Is- lenskir marxistar setja sér það verkefni að vinna fylgi og stuðning fjöldans og snúa honum til baráttu gegn auð- valdsþjóðfélaginu. Augljóslega verður þetta ekki gert á annan hátt, en með því að afhjúpa borgara- lega forystu sem svikula og fjandsamlega hagsmunum __ fjöldans, og svipta hana nú- verandi fylgi sínu. Jafnaug- Ijóst er, að slík barátta get- ur hvergi annars etaðar farið fram en innan fjöldahreyf- inganna. ísfenskum marxist- um er nauðugur einn kostur að starfa af alefli innan fjöldahréyfiiiganna og heyja návígi við fulltrúa borgara- legra skoðana þar um stefnu og starf fjöldahreyfinganna. Og það er einmitt í þessu at- riði, sem EIKm-1 verður á í messunni. í stað þess að berjast innan fjöldahreyfing- anna, velja samtök þessi að beita gamalkunnri en sérkenni legri baráttuaðferð. Jafnframt háum yfirlýsingum um byltingarstefhu og fjölda- stefnu sína, draga þau sig út úr fjöldahreyfingunum. í stað þess að takast á við hin flóknu og erfiðu verkefni baráttunn- ar, bregða þau sér í hin ýmsu dulargervi, allt eftir því hvaða málefni baráttunnar um ræðir. Á 1. maí heita shmtökin "Samfylking'fy þann 21. ágúst kalla þau sig "?1. ágústnéfnd- ina", þegar háustar breytast þau í "1. des. nefndina" og í marsmánuði bera þau nafnið "8. marsnefndin". Á milli þessara baráttudaga, h^ita* þau svo EIKm-1 og eru Leið- togar ofantalinna fjöldahreyf- inga. Þessi sérkennilega bar- áttuaðferð einangrunarstefn- unnar hefur ýmsa kosti fyrir EKm-1 sjálf, Þau slá aðgerð- um "fjöldahreyfinganna" upp í málgagni sínu og hælast um í málgögnum systurflokka sinna erlendis fyrir mátt sinn og megin. Fyrir fjöldann hef- ur þessi baráttuaðferð nánast ' bara ókosti í för með sér. Fyrir það fyrsta kæmi þetta fólk áreiðanlega að notum í baráttunni innan fjöldahreyf- inganna, ef það veldi leið baráttunnar í stað sjálfum- gleði einangrunarstefnunnar. Þess utan valda EKm-1 klofn- ingi og skemmdarverkum á baráttunni gegn endurskoðun- arstefnunni innan fjöldahreyf- inganna og veita foringjum hennar tækifæri til að stimpla kommúnistana sem klofnings- menn í augum fjöldans. Þau veifa rauðum fána til þess eins að dylja klofningsaðgerð- ir sínar. Allri gagnrýni um klofnin|sstarf er umhugsunar- laust vísað á bug með fullyrð- ingum um að EIKm-1 séu að skilja sig að frá endurskoðun- arsinnum og hentistefnumönn- um. Þau gæta þess hins vegar ekki að þau skilja sig að fra fjöldanum og einangrast. Og það gildir einu hversu oft EKm-1 lýsa því yfir að þau starfi í þágu fjöldans, meðan starf þeirra ber greinileg merki þess að þau óttast bar- áttuna um fylgi fjöldans. Af- leiðingin af einangrunarhyggj- unni verður skiljanlega sú, að samtökin megna ekki að gera greinarmun áborgara- legri forystu og fjöldanum. Þau hefja sig upþ yfir baráttu stéttanna og stimpla alla aðra "tækifærissinna og falsmarx- ista". ________ Nokkur dæmi um þess stefnu EIKm-1. Þann 21. ágúst klufu EIKm-1 sig út úr samstarfi við Herö stöðvaandstæðinga og stofnuðu "21. ágústnefndina" sem rauu ar hlaut stuðning SHÁáð vissu leyti. A hinn bóginn varð þetta klofningsstarf EIKm-1 til þess að veikja aðstöðu þeirra afla innan SHA sem berjast vilja gegn sósíal- heimsvaldastefnu Sovétrikj - anna. Þetta veitti endurskoð- unarsinnum tækifæfi til að draga sig út úr starfinu og kraftur mótmælanna varð minni en skyldi, tvímælalaust vegna hentistefnu EKm-1. Samtökin réðust m. a. s. að mótmælaaðgerðum SHA með rógi og lygum til að bæt'a gráu ofan á svart. Hið sama var uppi á teningnum I mót- framboðinu innan Dagsbrúnar. Þar setti EKm-1 sig af heift gegn þeim sem stóðu að framboðinu og veittu þannig forystu Dagsbrúnar "gagnrýn- inn stuðning" sinn. Þetta kom sem beint framhald af stuðn- ingi EIKm-1 við stefnu ASl- forystunnar I síðustu kjara- samningum, en þá snerust samtökin einkum gegn stefnu Kommúnistaflokksins, en höfðu sömu kröfu á oddinum og ASI-forystan. Nú eftir að forystan hefur ógilt framboð- ið hafa samtökin tvíeflt árás- ir sínar á þá verkamenn sem að framboðinu stóðu og kallað það "stuðning við Dagsbrúnar- forystuna". Það er erfitt að gera sér I hugarlund hvernig slík rök- semdafærsla er soðin saman. Hún er í anda þeirra fullyrð- inga EKm-1 að mótmælaað- gerðirnar gegn sovésku sósíal heimsvaldastefnunni þann 21. * ágúst s. 1. hafi I raun verið stuðningur við Sovétríkin. Eins og fólki er kunnugt, eru þetta nákvæmlega sömu rök og leigupennar Morgunblaðs- ins notuðu í árásum sínum á aðgerðir SHA. Þann 1. des. héldu EKm-1 sérstakar aðgerðir sem beint var m. a. gegn aðgerðum stúdenta í Háskóla íslands. Hið sama skeði nú, þann 8. mars. Vaknandi barátta á grundvelli stéttabaráttunnar innan Rauðsokkanna er alls stuðnings verð, en EIKm-1 valdi samt leið klofningsfns. Og það gagnar Verkalýðs- blaðinu lítið að titla alla sem ekki taka þátt I aðgerðum EKm-1 "endurskoðunarsinna" | osfrv. Það er að kunna ekki að skilja á milli fjöldans og tiltölulega fámenns hóps endurskoðunarsinna. Leggjum traust okkar á fjöldann.~ EIKm-l hafa gegnt sundrung- arhlutverki I byltingarhreyf- ingunni og aðalmarkmiðið í þessu sundrungarstarfi er að reyna að kljúfa og brjóta nið- ur Kommúnistaflokkinn. Þess vegna hafa allra handa henti- stefnumenn á borð við Ölaf Ingólfsson og Hjálmtý Heið- dal átt griðastað innan EIK að launum fyrir svik þeirra og trotskíska klíkustarfssemi gegn flokknum. EKm-1 hafa einkum og sér í lagi fært einangrunarstefnu KSML á árunum 1972-74 í tal og reynt að stimpla Komim únistaflokkinn "endurskoðun- arsinnaflokk", þrátt fyrir að hann hafi fyllilega gert upp við þessar villur. Það sem er þó merkilegast er að EIK ástundar nú sams konar einangrunarstefnu og KSML gerði á fyrstu árum starfs slns. Vilji félagar EIKm-1 berjast gegn einangrunarstefn unni I einlægni og ekki bara sem lýðskrum, ættu þeir að snúa sér að því af krafti að gera upp við þá fáu einstakl- inga I forystu samtakanna sem standa fyrir einangrunar- stefnu og sundrungu ÉIKm-1. Þannig og aðeins þannig er hugsanlegt að hægt sé að sam- eina alla íslenska marxista- lenínista undir merkjum eins og sama flokks. Kommúnistaflokkuriim hafnar sundrungarstefnu EKm-1 og falskri "fjöldastefnu" full- komlega. Kommúnistaflokk- urinn leggur traust sitt á fjöldann og hvetur alla ein- staklinga sem raunveruiega vilja berjast fyrir byltingar- sinnuðum hagsmunum fjöld- .ans til samstarfs gegn fjand- mönnum okkar - risaveldun- um tveimur, íslenska einok- unarauðvaldinu og endurskoð- unarsinnuðum talsmönnum þeirra innan verkalýðshreyf- ingariimar. Meginstefna ( Kommúnistaflokksins er að sameina alla þá sem hægt er að sameina gegn stéttarovin- inum, en einangra hinn fá- menna hóp endurskoðunar-' sinna og hentistefnumanna sem vinna að sundrungu innan raða alþýðunnar. vífill. Beóió eftir flokksstofnun Lesandi Stéttabaráttunnar sendi blaðinu þessa mynd I tilefni þess að Ari T. Guðmundsson for- maður EK(m-l) ætlar sér að stofna Kommúnistaflokk fyrir árið 1980. Eins vegna ummæla hans að "íslenskir kommúnistar nú á dögum standa betur að vígi en kommúnistar þá og hafa náð betri árangri á sama tíma". Samkvæmt skilgreiningu EIK(m-l) þá eru Eikarar einu komm- únistarnir á íslandi og það sem Ari á við með fyrrgreindum orðum er, að EIK(m-l) hafi náð meiri og betri árangri en gamli Kommúnistaflokkur Islands á jafn löngum tíma. Dramb er falli næst. (Sjá nánar um sama mál 112. tbl. STB.)

x

Stéttabaráttan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stéttabaráttan
https://timarit.is/publication/344

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.