Verklýðsblaðið - 28.06.1935, Síða 3
VERKLYÐ8BLAÐIÐ
Barátta fólksins á Eskifirði
fyrir tilvern sinni.
VERKLÝÐSBLADIÐ
t'tgefandi: Kommúnistafl. fslands.
Ábyrgöarm.: Brynj. Bjamason.
Ritnefnd til viötals þriöjudaga
og fimmtudaga 6—7.
Afgr.: Vatnsstíg 3 (þriöju hœð).
Sími 2184. — Póstbox 57.
Prentsm. Acta.
KOMMÚNISTAFLOKKUR
ÍSLANDS
(Deild úr Alþj.samb. kommúnista)
Skrifstofa: Vatnsstíg 3 (3. hœÖ).
Viðtalstimi íramkv.n. dagl. 6—7.
REYKJAVÍKURDEILD KFÍ
Skrifstofa: Vatnsstig 3 (3. hϚ).
Viðtalst. deildarstj. virka daga 6-7
Sameiginl. viötalst. fastra nefnda
flokks- og deildarstjóma:
Frœðslu- og útbreiðsluneínd
mánud. 6—7.
Skipulagsnefnd miövd. 8—9.
Fjárhagsneínd miðvd. 8—9.
Faglegur leiðtogi þrd. 6—7.
Landheigisgsslan
um sildveiðitímann.
Skrit Alþýdnfl.bl \ðan».s.
Alþýðublaðig bírti á þriðjud.
langa grein, eftir „Skutli“, blaði
Alþýðuflokksins á ísafirði, um
landhelgisgæzluna yfir síldveiði-
tímann; í sumar. Krefst blaðið
strangrar landhelgisgæzlu, þar
sem ekkert sé til sparað, gegn er-
lendumj síldveiðiskipum. — Að
visu, segir blaðið, er ekki hægt
að verja Norðmönnum þau rétt-
indi, sem þeir hafa í landhelgi, en
allur hinn þjóðafansinn, sem
sendir síldveiðaflota hingað í
suínar — hann á svei mér að fá
að kenna á íslenzkri réttvísi(!)
Koma þeir með tillögu um, að
á síldveiðaskiplxnum séu stöðugt
launaðir menn til landhelgis-
varna, er standi í stöðugu sam-
bandi við varðskip, er sé alla síld-
arvertíðina fyrir norðan land. —
Út af fyrir sig ágæt tillaga —
ef íslendingar væru þess um-
komnir að verja landhelgina —
n.eðan þjónustuménn erlendra yf-
irgangsmanna stjóma landinu.
Nú vita þessi blöð eins vel og
2 og 2 eru 4, að „stjóm hinna
vinnandi stétta“, sem þau eru
leigð til að vera málsvarar fyrir,
er nýbúin að gera samning við
Þýzkaland — landráðasamninginn
fræga — þar sem! Þjóðverjum
eru! tryggð sömu réttindi og
Norðmönnum í íslenzkri íand-
helgi. — Þau vita vel að fyrir ís-
leijzkán síldarútveg stafar aðal-
hættan af Þjóðverjum, sem munu
strax í sumar senda hingað
geysistóran flota til veiða. Enn-
fremur vita þessi blöð vel, að
Pólverjar og ef til vill fleiri þjóð-
ir, senda hingað síldveiðiflota
undir norsku flaggi. — Þau vita
líka vel, að á sama tíma, seml
þau voru að skrifa, þessa hræsni,
lýsti Haraldur Guðmundsson því
yfir á þingmálafundi á ísafirði
og á öðrum fundum víðsveg-ar um
landið, að það væri rétt að Þjóð-
verjar hefðu hér sömu fríðindi,
að því er sildveiðar í landhelgi
snertir, og Norðmenn. — Og
Eins og Verklýðsbíaðið ihöfir
áður skýrt frá, lýsti ríkisstjómin
hreppsnefndarkosninguna á Eski-
firði, sem fram fór í júní, ólög-
lega, og fékk gömlu, brott-
hlaupnu hreppsnefndina, til að
gangast fyrir nýjum kosningum,
sem fram eiga að fara í byrjun
júlí.
Hreppsnefndin, sem alþýðan á
Eskifirði kaus, þrátt fyrir bann
ríkisstjómarinnar, hefir lýst því
yfir, að hún telji sig hinn eina
rétta aðila til að stjóma bænum,
þar til nýjar kosningar fara fram.
Hvaða ráðstafanir hefir hún þá
gert?
Þegar hún tók við, gaf hún
yfirlýsingu um! næsttí verkefni
sín og er þetta aðalinnihaldið:
1. Hún starfar í anda 10-
r.ianna nefndarinnar, sem alþýðan
kaus til bráðabyrgða, og er hún
eini réttmæti stjómandi hrepps-
ins fram yfir næstu kosningar.
2. Amfinnur Jónsson er fyrst
og fremst oddviti hennar. — En
hann er einnig reiðubúinn til að
gegna oddvitastörfum fyrir
gömlu hreppsnefndina, að svo
miklu leyti, sem það gæti orðið
til framgangs hagsmunamálum
nauðlíðandi hreppsbúa.
3. Sveitastjórn samfylkingar-
innar er reiðubúin til samVinnu
við gömlu hreppsnefndina, og þá
um leið að viðurkenna hana sem
löglegan boðanda næstu kosninga,
á eftirfarandi grundvelli:
a. Að hún taki höndum saman ö
við samfylkinguna, um áðuf sam-
þykktar kröfur til ríkisstjórnar-
innar.
b. Að hún, ásamt sveitastjóm,
samfylkingarinnar, framkvæmí
úthlutun nauðsynjavara til nauð-
„Þér viljið vita um störf
kvennanefndarinnar gegn stríði
og fasisma, sem ég starfa í“,
segir frú Ellen Hörup við frétta-
ritara vorn.
„Ég get sagt yður, að skilning-
ur kvennanna fyrir baráttunni
gegn stríðinu og fasisma — hann
er mjög míkill. Konurnar skilja
skilja það vel að þetta tvennt er
óaðskiljanlegt. í „kvennanefnd-
inni gegn stríðinu og fasisman-
um“, sem hélt alheimsþing í á-
gúst í fyrrasumar, eru konui- af
öllum stéttum! og flokkum, og
þær starfa prýðilega, ég er ný-
ennfremur sagði hann, að úr því
að Norðmenn hefðu fengið þenn-
an rétt, þá væri yfirleitt ekki
hægt að neita öðrum! þjóðum um
hann.
Allt þetta vita þau og um allt
þetta þegja þau — en hlaupa í
stað þess til, og skrifa grein, þar
sem heimtuð er ströng landhelg-
isgæzla, gegn þeimj þjóðum, sem
staddra heimila í hreppnum, af
vörumj þeim, sem þar kýnnu að
liggja hjá birgustu verzlunarfyr-
irtækjunum, svo framarlega sem
ríkisstjórnin hefir ekki sent til
bjargar hreppsbúum minnst 10
þús. krónur til reksturs og 10
þús. krónur til atvinntíbóta fyrir
tiltekinn tíma. *
Samkomulag þetta sé svo rætt
og staðfest á opinberum fundi.
Brotthlaupna hreppsnefndin
hefir hafnað samvinnu á þessum
grundvelli. Þrír íistar eru komnir
fram, 1 frá íhaldinu, 1 frá flokk-
um ríkisstjómarinnar og einn frá
alþýðunni á Eskifirði, verkalýðs-
félögunum og Kommúnistaflokkn-
um.
Alþýðan á Eskifirði og hrepps-
nefnd hennar búa sig nú undir
nýjtf kosningarnar. — Hún mun
gera allt sem auðið er til að
koma í veg fyrir þáð, að það
glæpsamlega tiíræði ríkisstjómar-
innar takist, að hafa sprengilista
í kjöri, til þess að hindra það,
að alþýðan geti neytt sameigin-
legra krafta sinna. — Á Eskifirði
eru aðeins tvær fylkingar hags-
munalega séð. Annarsvegar al-
þýðan, fólkið, sem líður skort, og
hinsvegar örfáir burgeisar og
taglhnýtingar þeirra, sem hægt
er að telja á fingrum sér. Neyð
fólksins er sameiginleg, hagur
þess er sameiginlegur og kröfur
þess eru sameiginlegar. — Þess
vegna verður fólkið að ganga
sameinað til kosninga.
Ef fulltrúar ríkisstjórnarinnar,
þrátt fyrir allt, halda sprengi-
lísta sínum1 til streitu, þá treyst-
ir öll vakandi alþýða íslands fólk-
inu á Eskifirði til að gefa þeim
verðugt svar.
komin frá París af síðustu, ráð-
stefnu, sem haldin var dagana
25.—27. maí“.
„Með hverjukn' hætti starfar
kvennanefndin aðaJlega?“
„Hún gefur út mánaðarrit,
sem heitir „Konur í alheimsbar-
áttu“. Það kemur út í 15000 ein-
tökum, ágætis rit um kjör
kvenna um allan heim. Auk þess
eru stofnaðar fjölmargar nefndir
í hverju landi til þess að standa
fyrir slíkri baráttu. Hreifingin
hefir vaxið geysilega þetta síð-
asta ár‘.
„Hafið þér þá ekki hugsað yð-
búið er að veita leyfi til að nota
landhelgána (!-). — Tilgangurinn
er auðsær. — Greinarnar eru
skrifaðar til að draga athyglina
frá landráðunum, til þess að er-
lendar ránshendur geti í friði lát-
ið greipar sópa um lífsbjörg ís-
lenZkrar alþýðu.
Þeim verður ekki flökurt af
öllu, þessum körlum.
ur að stofna neina slíka nefnd
hér á íslandi á meðan þér stand-
ið við?“
„Ég veit það ekki ennþá, ég
hefi ekki kynnt mér allar að-
stæður svo nákvæmlega. Annars
sagði nú frú Duchéne við mig,
þegar hún heýrði að ég ætlaði í
þetta merkilega ferðalag hingað
til íslands, að ég skyldi endilega
stofna hér smáhóp. — Frú Du-
chéne er frönsk og formaður
kvennanefndarinnar gegn stríði
og fasisrna. Yfirleitt eru frönskui
konurnar afar duglegar í barátt-
unni og hafa unnið mikið starf í
þessa átt — enda binda þær
þessa baráttu við baráttuna fyr-
ir kosningarrétti. Hugsið þér yð-
ur, frönsku konumar hafa ekki
ennþá fengið kosningarrétt“!
Við ræðum um Indlandsmálin
og tímarit það sem frúin gefur
út í Genf og hún kallar „Indian
Press“. Og hún segir mér frá
fyrirlestri, sem1 hún ætlar að
halda hér um þau mál, og hin
erfiðu kjör, sém vinnandi fólk á
við að búa í Indlandi.
„Vitið þér það, að sumir þrá
ekkert heitar en það að Island
komist. undir yfirráð Breta, ai
því að þeir sétí svo göfug þjóð!“
„Það er brjálað fólk“, hrópar
frú Hörup upp yfir sig, full skelf-
ingar og stekkur upp úr sæti
sínu. „Ég vil annars sem minnst
láta hafa eftir mér um þessi efni
af því ég vil heldur tala til fólks-
ins sjálfs um það sem ég þeklri
og veit um þessa nýlendu Eng-
lendinga“.
„Hvert búist þér við að fara
héðan og hvert verður næsta
starf yðar?“
„Héðan fer ég til Danmerkur
og þaðan til Genf. Þar ætlum við
nefnilega að undirbúa kröfu-
göngu um miðjan september til
Þjóðabandalagsins fyrir jafnrétti
kvenna,. Við höfum fengið því til
leiðar komið að Þjóðabandalagið
íekur þetta mál til umræðu, og
við erum þegar famir að safna,
skýrslum um' kjör kvenna í hin-
um ýmsu löndum til þess að
leggja fyrir þing Þjóðabandalags-
ins. Ég hefi þegar birt skýrslur
mínar um þjóðfélagsafstöðu kon-
unnar í Indlandi í „Indian Press“
og hér á íslandi ætla ég mér líka
að kynna mér kjör konunnar 3rfir-
leitt, stéttarafstöðu hennar og
þjóðfélagsafstöðu, svo við getum!
tekið kröfur íslenzkra kvenna
með í baráttu vora“.
Rakosúbarátían
Tékkneskur verka-
lýdur kretst trelsis
fyrir XLakosi.
EINKASKEYTI
TIL VERKLÝÐSBLAÐSINS.
Prag 27. júní 1935.
Fjöldi ungra verkamanna og
studenta söfnuðust saman fyrir
framan bústað ungverska ræðis-
mannsins og kröfðust þess, að
Rakosi yrði látinn laus. Þegar
í æðismaðurinn ekki vildi veita
þeim viðtaJ, brutu þen- aJIar rúð-
ur í höll hans.
NORDPRESS.
Viðtal við frú Elíen Hörup
SkilningUr kvenna á baráttunni gegn fasisma og stríði
er geysilegur.