Fréttablaðið - 16.09.2009, Síða 6
6 16. september 2009 MIÐVIKUDAGUR
UMHVERFISMÁL Engin lögbundin
viðmiðunarmörk gilda á Íslandi um
hámarksstyrk GSM-senda. Geisla-
varnir ríkis-
ins miða þó við
sömu mörk og
Evrópusamband-
ið mælir með.
„Það er margt
við þessi viðmið-
unarmörk sem
þarf að skoða
og rannsaka,
við tökum alveg
undir það,“ segir
Þorgeir Sigurðsson, fagstjóri hjá
Geislavörnum ríkisins. Öll geislun
eigi að vera eins lág og hægt sé að
komast af með.
Lesendur hafa haft samband við
blaðið til að þakka fyrir að greint
hafi verið frá fjölskyldu á Egilsstöð-
um sem fann fyrir óþægindum eftir
að GSM-mastur var sett upp á hæð
fyrir ofan hús hennar. Þessir lesend-
ur segjast sumir hafa fundið fyrir
svipuðum óþægindum í Reykjavík.
Fjölskyldan á Egilsstöðum flúði úr
húsinu uns slökkt var á sendinum.
í skýrslu sem rafgæðamælinga-
fyrirtæki gerði fyrir fjölskylduna
kemur fram að í löndum eins og
Sviss, Ítalíu og Kína séu viðmiðunar-
mörk fyrir GSM-aflþéttni mun
lægri en hjá Evrópusambandinu.
Þorgeir Sigurðsson segir að
starfsmenn Geislavarna hafi heyrt
af þessum lægri viðmiðum. Hins
vegar telur hann ólíklegt að í lönd-
unum sé farið eftir svo lágum mörk-
um í einu og öllu. Það leiddi að lík-
indum til verra farsímasambands.
Hann bendir á að athygli nor-
rænna geislavarna sé meiri á símtól-
unum sjálfum heldur en sendunum
og vísar í samnorræna skýrslu sem
segir að geislun sú sem fólk verði
fyrir af sendunum sé hundrað til tíu
þúsund sinnum undir viðmiðunar-
mörkum Alþjóða geislavarnarráðs-
ins og miklu minni en sú sem það
verði fyrir af símunum sjálfum. Frá
sendunum stafi þó stöðugum bylgj-
um, ólíkt símunum.
Spurður hvort Geislavarnir
ríkisins hafi mælt útsendingu Egils-
staðasendisins, segir Þorgeir nei. En
svo mikið hafi verið talað um send-
inn að ekki sé ólíklegt að það verði
gert. „Við kíkjum ekki á öll farsíma-
möstur, það hefur ekki verið talin
ástæða til þess,“ segir hann. Annan
daginn í röð svaraði bæjarstjóri
Fljótsdalshéraðs ekki skilaboðum
blaðsins. klemens@frettabladid.is
Taktu þér tíma með fjölskyldunni einu sinni í mánuði
og farið saman yfir reikningana. Var símareikningur-
inn til dæmis að hækka eða lækka? Hægt er að gera
fjármálin að skemmtilegri fjölskyldustund. Þannig
lærir barnið á skemmtilegan hátt að það sem það
telur sjálfsagt kostar í raun pening.
Kynntu þér dag fjármálalæsis nánar á fé.is
Stofnun um fjármálalæsi er sjálfstæð stofnun við Háskólann í
Reykjavík og beitir sér fyrir bættu fjármálalæsi íslensku þjóðarinnar.
Byr sparisjóður er aðalstyrktaraðili stofnunarinnar.
Okkar markmið er að efla fjárhagslega heilsu allra.
Borgaðu reikningana
með allri fjölskyldunni
Hollráð:
Dagur
fjármálalæsis
18. september
LÖGREGLUMÁL Tveir pólskir menn
á þrítugsaldri voru handteknir í
Flugstöð Leifs Eiríkssonar aðfara-
nótt laugardagsins síðasta með tæp-
lega 6.000 e-töflur faldar í farangri
sínum.
Mennirnir voru að koma frá Var-
sjá. Töflurnar fundust faldar í niður-
suðudósum í farangri þeirra. Alls
voru töflurnar 5.995 og voru 2.647 í
farangri annars og 3.348 í farangri
hins. Báðir mennirnir voru úrskurð-
aðir í gæsluvarðhald á laugardag
til 2. október. Annar þeirra kærði
úrskurðinn til Hæstaréttar, sem
staðfesti úrskurðinn í gær.
Farið var fram á gæsluvarðhald
á grundvelli rannsóknarhagsmuna,
enda ætti eftir að rannsaka aðdrag-
anda ferðar mannanna til landsins,
tengsl þeirra við hugsanlega vit-
orðsmenn á Íslandi eða erlendis og
sakaferil þeirra. Þá þykir líklegt að
þeir reyni að flýja úr landi gangi
þeir lausir.
Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins dvaldi annar maðurinn um
nokkurt skeið hérlendis fyrir nokkr-
um misserum. Hinn sagðist aldrei
hafa komið hingað fyrr.
Á öðrum stað í blaðinu í dag er
sagt frá ungum pólskum manni sem
ákærður hefur verið fyrir innflutn-
ing á um 2.000 e-töflum til landsins í
póstsendingu í desember síðastliðn-
um. - sh
Tveir handteknir við komuna frá Varsjá með fíkniefni í niðursuðudósum:
Teknir með 6.000 e-töflur í dósum
LEIFSSTÖÐ Um síðustu helgi voru þrír
handteknir vegna smygls.
Aðfaranótt sunnudagsins, rétt um
sólarhring eftir að Pólverjarnir tveir
voru teknir, handtók lögreglan
litháíska konu í Leifsstöð með
ríflega 800 grömm af amfetamíni í
fórum sínum. Sú hafði notað sömu
aðferð og Pólverjarnir, og falið
efnið í niðursuðudósum í farangri
sínum.
Konan, sem er á þrítugsaldri,
var að koma frá Litháen. Hún var
úrskurðuð í gæsluvarðhald til 28.
september og kærði ekki þann
úrskurð.
ANNAÐ SVIPAÐ MÁL SÓLARHRING SÍÐAR
Fylgist þú með átökum innan
Borgarahreyfingarinnar?
Já 28,7
Nei 71,3
SPURNING DAGSINS Í DAG
Er það að vera atvinnulaus eitt
af því versta sem fólk lendir í?
Segðu skoðun þína á Vísi.is
ÖRYGGISMÁL Samningur hefur
verið undirritaður á milli Land-
helgisgæslu Íslands og Slysa- og
bráðasviðs Landspítalans um
gagnkvæma þjálfun áhafna þyrlu
LHG og hjúkrunarfræðinga á
slysa- og bráðasviði LSH.
Samningurinn felur í sér að
auka öryggi og efla þjálfun
starfsmanna sem sinna flutn-
ingi á slösuðum og sjúkum með
þyrlum Gæslunnar. Greiningar-
sveit bráðasviðs LHG fær þjálfun
í umgengni við þyrlur og sjúkra-
flutningamenn í áhöfnum LHG fá
þjálfun á bráðasviði LSH. Sam-
komulagið hefur ekki sérstakan
kostnað í för með sér. - shá
Gæslan og Landspítalinn:
Samningur um
aukna þjálfun
Engin lögbundin
GSM-viðmið notuð
Fagstjóri Geislavarna ríkisins segir engin lögbundin viðmið gilda á Íslandi um
GSM-geislun. Samnorræn skýrsla segir að sendarnir geisli minna en símarnir
sjálfir. Geislavarnir ríkisins rannsökuðu ekki sendinn á Egilsstöðum.
ÞORGEIR
SIGURÐSSON
Geislavarnir Finnlands vöruðu við því
í byrjun árs að börn fengju að nota
farsíma að vild. Þær mæla með því
að textaskilaboð verði notuð í aukn-
um mæli og að foreldrar takmarki
fjölda og lengd símtala barnanna.
Einnig að notaður sé handfrjáls
búnaður og ekki talað í farsíma þar
sem samband er slæmt eða í bíl á
ferð.
Finnsku geislavarnirnar töldu þó
ekki rétt að banna farsímanotkun
barna, þar sem símarnir auki öryggi
með því að auðvelda samskipti
barna og foreldra.
Stofnunin tók fram að þetta væri
gert þar sem ekki væri hægt að meta
langtímaáhrif af GSM-notkun fyrr
en eftir nokkra áratugi. Varúðar væri
þörf þótt ekki hefði verið sýnt fram á
nein heilsufarsleg áhrif ennþá.
Þorgeir Sigurðsson hjá Geisla-
vörnum ríkisins tekur undir með
finnskum kollegum sínum að gæta
eigi varúðar um notkun barna á
GSM-símum.
VARAÐ VIÐ GSM FYRIR BÖRN
GSM-VÆTT ÍSLAND Í ESB eru viðmiðunarmörk fyrir rafsegulsvið á GSM-tíðni tíu
vött en í Sviss eru þau 0,4 vött. Svo lág mörk fást með því að fjölga sendum og
draga úr afli hvers og eins, segir í skýrslu fyrirtækisins Héloga. FRÉTTABLAÐIÐ/HARI
ÞJÓFNAÐUR „Ég á ekki orð yfir að
nokkur skuli stela vagni frá barni.
Þetta er ótrúlegt,“ segir Aðalheiður
Þorsteinsdóttir. Barnavagni tíu
mánaða sonar hennar og Adams
Bjarka Ægissonar var stolið fyrir
utan heimili þeirra á Holtsgötu í
fyrrakvöld.
Að sögn Aðalheiðar var vagninn
horfinn þegar Adam hugðist setja
hann inn í geymslu klukkan níu
um kvöldið. „Enginn nágrannanna
sá neitt. Þjófurinn hefur greini-
lega verið á höttunum eftir barna-
vagni, því hann snerti ekki við glæ-
nýju grilli, hjóli og hlaupahjóli sem
líka stóðu fyrir utan. Þetta er mjög
rólegt hverfi og við bjuggumst alls
ekki við þessu,“ segir Aðalheiður.
Hrafnkell Ingi, tíu mánaða
gamall sonur hjónanna, er hjart-
veikur. „Hann á sína erfiðu daga
vegna veikindanna. Þessi vagn
hefur bjargað okkur alveg, því í
honum hvílist Hrafnkell vel og
sefur kannski í þrjá klukkutíma
samfleytt. Í dag [í gær] höfum við
reynt að láta hann sofa inni, en það
hefur alls ekki gengið vel.“
Aðalheiður keypti vagninn, sem
er svartur og grár Brio-kerru-
vagn, árið 2007 þegar dóttir henn-
ar fæddist. „Þá kostaði hann 80.000
krónur en kostar núna 145.000, og
bara kerrupokinn kostar 20.000 í
viðbót. Við fáum tjónið bætt, en
konan sem ég talaði við hjá trygg-
ingarfélaginu sagðist því miður
hafa heyrt fleiri dæmi um barna-
vagnaþjófnaði að undanförnu,“
segir Aðalheiður Þorsteinsdóttir.
- kg
Barnavagni tíu mánaða hjartveiks drengs í Hafnarfirði var stolið í fyrrakvöld:
Bíræfinn þjófur stal barnavagni
MEÐ BÖRNUNUM Aðalheiður ásamt
börnunum sínum. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
KJÖRKASSINN