Fréttablaðið - 16.09.2009, Page 8

Fréttablaðið - 16.09.2009, Page 8
8 16. september 2009 MIÐVIKUDAGUR NOREGUR Úrslit norsku þingkosn- inganna eru fyrst og fremst sigur Jens Stoltenberg forsætisráðherra. Flokkur hans, Verkamannaflokkur- inn, bætti við sig þingmönnum og tryggði þar með stjórninni meiri- hluta en í fyrsta sinn í sextán ár heldur norsk ríkisstjórn velli í kosningum. Stoltenberg þakkaði kjósendum rauðgrænu stjórnar- innar, eins og hún hefur verið nefnd, kærlega stuðninginn á blaðamanna- fundi í gær. Norska stjórn- in hlaut alls 86 þingmenn af 169 en stjórnar- andstaðan, bandalag hægri- flokka, fékk 83 þingmenn kjörna. Skoðanakann- anir rétt fyrir kosningar höfðu sýnt að stjórnin stæði tæpt. „Þó að meirihlutinn sé ekki stór þá er hann öruggur,“ segir Birgir Her- mannsson stjórnmálafræðingur. Hann segir ekki ólíklegt að óein- ing í röðum hægriflokkanna hafi ráðið úrslitum um lokaniðurstöðu kosninganna. „Þar ræður mestu stefna stærsta flokksins, Framfara- flokksins, í málefnum innflytjenda, sem flokkurinn vill miklu strangari reglur um. Borgarlegu flokkarnir gátu ekki stillt upp sannfærandi valkosti,“ segir Birgir. Stjórnarflokkarnir komu misvel út úr kosningunum. Verkamanna- flokkurinn bætti við sig þremur þingmönnum, Miðflokkurinn stóð í stað en Sósíalíski vinstri flokkurinn tapaði fjórum þingmönnum. Talið er líklegt að ráðherrum síðast- nefnda flokksins muni fækka í kjölfarið. Stoltenberg vildi þó ekki láta neitt uppi um mögulegar breyt- ingar. Hann sagði á blaðamanna- fundi að fyrst þyrfti að gera nýjan stjórnar sáttmála, svo væri hægt að huga að skipan ráðherra. Verkamannaflokkurinn hefur verið fylgjandi aðild Noregs að Evrópusambandinu en hún er ekki á dagskrá ríkisstjórnarinnar að því er fram kom á blaðamannafundin- um. „Aðild að Evrópusambandinu er stóra málið sem menn ræða sín á milli í norskum stjórnmálum en ekki opinberlega,“ segir Birgir. „Það er ekkert í kosningaúrslitun- um sem breytir því.“ Samstarfs- flokkar Verkamannaflokksins eru andvígir aðild og segir Birgir að samkomulag hafi verið um að setja málið ekki á dagskrá. Hann segir ótímabært að spá fyrir um áhrif mögulegra aðildarviðræðna Íslendinga. „Því yrði eflaust velt upp hvort Norðmenn ættu að fylgja Íslendingum, en það er ekkert sjálf- gefið í því.“ sigridur@frettabladid.is Sigur Stoltenbergs Í fyrsta sinn í sextán ár hélt norsk ríkisstjórn velli í kosningum. Kosningarnar eru sigur forsætisráðherrans Jens Stoltenberg en flokkur hans bætti við sig þremur þingmönnum. Búist er við breytingu á ráðherraliði en ekki í stefnumálum. „Verkamannaflokkurinn vann kosn- ingabaráttuna á samskiptasíðunum Facebook og Twitter og á blogginu. Þó að það sé ekki rétt að kalla þetta nýja miðla er það nýtt fyrir okkur að nota þá í kosningabaráttunni á þann hátt sem við gerðum núna,“ sagði Jens Stoltenberg á blaða- mannafundi í gær. Að því er fram kemur á Aftenposten sagði forsætis- ráðherrann frá því með innlifun hversu ágætt honum þætti að vera í sambandi við kjósendur sína í gegn- um Facebook. Hann sagðist þó ætla að láta sérfræðingum það eftir að greina hversu mikil áhrif kosninga- baráttan á netinu hefði haft. Aftenposten greindi frá því síðastliðið vor þegar Verkamanna- flokkurinn hélt landsfund sinn að Stoltenberg hefði sérstaklega hvatt liðsmenn Verkamannaflokksins til að nota samskiptasíður í kosninga- baráttunni. Sjálfur er Stoltenberg mjög virkur á Twitter og uppfærði stöðuna sína til dæmis á kosninga- nótt þegar hann sagðist vera að fylgjast með talningu atkvæða: „Verkamannaflokkurinn bætir við sig fylgi. Spennandi að sjá hvort meirihlutinn heldur velli,“ sagði í færslunni. UNNU Á FACEBOOK OG TWITTER SIGURVEGARINN Glaðbeittur Stoltenberg á leið frá heimili sínu til skrifstofu í gær. Hann hefur verið forsætisráðherra samfellt frá árinu 2005. Hann var einnig forsætisráðherra Noregs frá 2000 til 2001 og var þá yngsti forsætisráðherra í sögu landsins, 41 árs gamall. NORDICPHOTO/AFP Verkamannaflokkurinn 35,4% 64 þingmenn +3 Sósíalíski vinstriflokkurinn 6,1% 11 þingmenn -4 Miðflokkurinn 6,2% 11 þingmenn 0 Framfaraflokkurinn 22,9% 41 þingmenn +3 Hægriflokkurinn 17,2% 30 þingmenn +7 Kristilegi þjóðarflokkurinn 5,6% 10 þingmenn -1 Frjálslyndir (Venstre) 3,8% 2 þingmenn -8 Aðrir flokkar 2,6% 0 þingmenn Meirihluti þingmanna en minnihluti atkvæða Norska stjórnin hélt þriggja þingmanna meirihluta, fékk 86 þingmenn af 169, þrátt fyrir að fá rúmlega 45 þúsundum færri atkvæði en hægriflokkarnir. Í kosningunum árið 2005 fengu rauðgrænu flokkarnir einnig færri atkvæði en hægriflokkarnir. Skýring þessa er misjafnt atkvæðavægi, atkvæði íbúa fámennra fylkja í Noregi vega þyngra en atkvæði þéttbýlla svæða, rétt eins og á Íslandi. Stærstan ósigur kosninganna biðu Frjálslyndir (Venstre) sem töp- uðu átta þingmönnum. Formaður flokksins, Lars Sponheim, sagði af sér þegar úrslitin voru ljós og norskir stjórnmálaskýrendur velta fyrir sér hvort dagar flokksins séu taldir. Hægriflokkurinn bætti mestu við sig eða sjö þingmönnum. BIRGIR HERMANNSSON DÓMSMÁL Sautján ára pólskur pilt- ur hefur verið ákærður fyrir stór- fellt fíkniefnabrot. Honum er gefið að sök að hafa reynt að taka á móti tæplega 2.000 e-töflum, ætluðum á markað hérlendis, á pósthúsi í Reykjavík í desember. Pilturinn sótti sendinguna í póst- miðstöðina að Stórhöfða 15. desem- ber í fyrra, örfáum dögum eftir sautján ára afmælisdag sinn. Böggullinn hafði borist frá Pól- landi og var stílaður á pólska konu í Breiðholtinu. Í honum hafði lög- regla fundið 1.921 e-töflu og nokk- ur grömm af e-töfludufti. Búið var að fjarlægja efnin úr bögglinum þegar pilturinn sótti hann. Hann var handtekinn í kjölfarið og sætti gæsluvarðhaldi um nokk- urra daga skeið. Ákæra Ríkissaksóknara á hend- ur piltinum var síðan þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Hann neitar sök og ber fyrir sig að hann hafi ekki vitað hvað hafi átt að vera í sendingunni. Hann gæti jafnvel átt yfir höfði sér nokkurra ára fangelsi. Aðalmeðferð í málinu fer fram 19. október. - sh Sautján ára piltur ákærður fyrir að reyna að smygla hingað um 2.000 e-töflum: Neitar innflutningi á e-töflum FÍKNIEFNI Í PÓSTI E-töflurnar fundust í bögglinum og voru fjarlægðar áður en pilturinn sótti hann. SAMSETT MYND Stilling hf. • Sími 520 8000 • www.stilling.is • stilling@stilling.is Bílavarahlutir

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.