Fréttablaðið - 16.09.2009, Qupperneq 10
10 16. september 2009 MIÐVIKUDAGUR
FRÉTTASKÝRING: Fangelsismál
Fangelsismál í landinu eru
í ólestri sökum fjárskorts
og plássleysis. Á annan
tug nefnda og starfshópa
hafa unnið að úrlausn í nær
fimmtíu ár. Nýtt fangelsi er
enn óbyggt.
Á annan tug nefnda og starfs-
hópa hafa verið skipuð síðastliðin
fimmtíu ár til að vinna að bygg-
ingu nýs fangelsis á höfuðborgar-
svæðinu. Þessir vinnuhópar eru
allt að fjórtán talsins. Fangels-
ið er enn ekki
risið og raun-
ar hefur öllum
hugmyndum um
það verið sópað
út af borðinu.
Hins vegar
leitar Ragna
Árnadóttir
dómsmálaráð-
herra nú allra
leiða til að fjölga
afplánunarplássum fyrir dæmda
brotamenn. Meðal annars er í
athugun að leigja húsnæði undir
slík pláss.
Fréttablaðið hefur að undan-
förnu fjallað um óviðunandi stöðu
fangelsismála hér á landi. Um 240
dæmdir brotamenn eru á boðunar-
lista til afplánunar. Fangelsin eru
troðfull, svo tvísetja þarf í klefa
í sumum tilvikum. Ekki líður svo
vika að ekki séu einhverjir, jafn-
vel heilu hóparnir úrskurðaðir í
gæsluvarðhald vegna afbrota.
„Þetta er orðin býsna löng saga
hvað varðar byggingu fangelsis í
Reykjavík, eiginlega sagan enda-
lausa,“ segir Guðmundur Gísla-
son, forstöðumaður fangelsisins
í Kópavogi, Hegningarhússins og
fangelsisins á Akureyri. „Það hafa
allnokkrar nefndir verið að vinna
að byggingarmálinu í gegnum tíð-
ina, en sagan nær allar götur aftur
til 1960, þegar reisa átti fangelsi
við Korpúlfsstaði. Það var teiknað
upp, en síðan kom hlé og bygging-
in leit aldrei dagsins ljós.“
Nokkrum árum síðar var Síðu-
múlafangelsið tekið í notkun. Það
gegndi hlutverki gæsluvarðhalds-
fangelsis fyrir lögregluna og var í
fullum rekstri til ársins 1996.
Næsta tilraun til fangelsisbygg-
ingar var í kringum 1975, þegar
ákveðið var að stefna að byggingu
fangelsis við Tunguháls 6.
„Botnplata byggingarinnar var
steypt á áttunda áratugnum,“ rifj-
ar Guðmundur upp. „Hins vegar
var aldrei byggt ofan á hana
þannig að hún varð ónýt með tím-
anum. Svo var einfaldlega mokað
yfir hana. Síðan þá hafa nefnd-
ir og hópar verið að störfum við
að reyna að skipuleggja þetta.
Ein nefndin skilaði mjög ákveðn-
um tillögum um nýja fangelsis-
byggingu í Reykjavík 1992. Hún
lagði eindregið til að fangelsi
yrði reist í Reykjavík, en Litla-
Hraun yrði fyrst og fremst fyrir
langtímafanga sem annaðhvort
væru í námi eða vinnu í fangels-
inu. Þáverandi dómsmálaráðherra
tók annan kost og lét stækka Litla-
Hraun. Þegar Síðumúlafangelsið
var lagt niður var gæsluvarðhald-
ið fært austur, sem var ekki mjög
skynsamlegt að ég tel. Lögreglan
tekur áreiðanlega undir það núna í
þeim mannahalds- og fjárhagsörð-
ugleikum sem þar er við að stríða,
að það er ekki gæfulegt að þurfa
að setja mannskap, bíla og fjár-
muni í að flytja gæsluvarðhalds-
fanga, kannski mörgum sinnum í
viku, milli Litla-Hrauns og Reykja-
víkur vegna yfirheyrslna, fyrir
dómara eða í öðrum erindum, á
sama tíma og kvartað er undan
því að lögreglan geti ekki sinnt
brýnni þjónustu vegna öryggis
borgaranna.“
Um 2001 var farið að vinna
að því að reisa nýtt fangelsi á
Hólmsheiði. Ágreiningur varð um
hvernig fangelsið ætti að vera, auk
þess sem upp kom sterk umræða
um að reisa flugvöll á heiðinni.
Ekki varð neitt út neinu.
„Byggingamálin í Reykjavík
eru í ólestri,“ segir Guðmundur.
„Nóg hefur verið um starfshópa
og tillögur, en fjármagn hefur enn
ekki fengist.“
GUÐMUNDUR
GÍSLASON
FANGELSIÐ Í KÓPAVOGI Til stendur að loka fangelsinu í Kópavogi um leið og fjármagn fæst til afplánunarúrræða annars staðar.
Sagan endalausa
BOÐUNARLISTAR
– fjöldi dæmdra brotamanna sem
bíða afplánunar
Ár fjöldi
2001 65
2002 63
2003 53
2004 75
2005 97
2006 105
2007 142
2008 148
2009 240*
*15.09.2009
HEIMILD: FANGELSISMÁLASTOFNUN
TVÍSETT Í FANGAKLEFA
Staður fjöldi pláss
Akureyri 10 10
Hegningarhúsið 15 14
Kvíabryggja 22 20
Litla-Hraun 81 77
Kópavogur 10 11
HEIMILD: FANGELSISMÁLASTOFNUN
„Að láta dæmda brotamenn bíða eftir að
geta afplánað refsingu svo árum skiptir,
er ekkert annað en mannréttindabrot.“
Þetta segir Vigdís Hauksdóttir
alþingis maður, fulltrúi framsóknar-
manna í allsherjarnefnd Alþingis. Hún
hefur farið fram á fund í nefndinni vegna
stöðunnar í fangelsismálum. Formaður
nefndarinnar hefur ákveðið að verða við
beiðninni og mun fundurinn verða hald-
inn síðar í vikunni. Þangað verða kvaddir
fulltrúar frá Fangelsismálastofnun og
fangelsunum sjálfum.
„Ég vænti þess að við getum farið yfir stöðuna
með fulltrúum fangelsismála og fengið mynd af
því hver staðan nákvæmlega er,“ segir Vigdís.
Hún kveðst ekki hafa áhyggjur af því
að ekki finnist húsnæði sem hægt sé að
leigja undir fangapláss. Hún hafi frekar
áhyggjur af því að fá starfsmenn í það
viðbótarhúsnæði fyrir fangelsin. Ein-
hvern veginn verði að finna úrræði til
að stytta biðlistann því þegar menn hafi
hlotið dóm verði þeir að fá að afplána
hann sem fyrst. Aðstæður manna geti
breyst til betri vegar frá því að þeir voru
dæmdir. Þá sé þeim allt í einu kippt út úr
daglega lífinu til að taka út gamlan dóm.
„Þessi mál eru komin í algjört óefni og
fjármagn bráðvantar til fangelsismála,“ segir
Vigdís.
- jss
VIGDÍS
HAUKSDÓTTIR
Allsherjarnefnd Alþingis ræðir stöðu fangelsismála síðar í vikunni:
Þetta er mannréttindabrot
■ 1960 Dómsmálaráðuneytið felur Valdimar Stefánssyni sakadómara að
gera áætlun um að koma fangelsismálum í nútímalegt horf. Hann leggur
til að ríkisfangelsi rísi á Korpúlfsstöðum.
■ 1961 Ný lög um ríkisfangelsi samþykkt þar sem ákveðið er að stofna
deildaskipt fangelsi fyrir bæði kynin, afplánun, gæsluvarðhald, öryggis-
gæslu og geðsjúka.
■ 1965 Nefnd dómsmálaráðherra leggur til gæsluvarðhaldsdeild í Síðu-
múla, utan ríkisfangelsis.
■ 1974 Reykjavíkurborg veitir vilyrði fyrir lóð undir fangelsi við Tunguháls 6.
■ 1976 Samstarfsnefnd um opinberar framkvæmdir samþykkir að gerð
verði áætlun um byggingu fangelsis við Tunguháls.
■ 1978 Framkvæmdum við grunn og botnplötu lokið. Vegna fjárskorts verð-
ur ekki af frekari framkvæmdum.
■ 1991 Dómsmálaráðherra skipar nefnd til að gera úttekt á fangelsismálum
og skila tillögum.
■ 1992 Nefndin skilar skýrslu og vill nýtt afplánunar- og gæsluvarðhalds-
fangelsi í Reykjavík. Ný bygging er reist á Litla-Hrauni og plássum fjölgað
þar.
■ 1995 Dómsmálaráðherra skipar nefnd til að gera áætlun um byggingu
gæsluvarðhalds- og afplánunarfangelsis á Tunguhálsi 6.
■ 1996 Skipaður starfshópur til að hafa umsjón með frumathugun, áætl-
anagerð og framkvæmdum við nýtt Tunguhálsfangelsi.
■ 1998 Nefndin skilar tillögum sínum um móttöku-, gæsluvarðhalds-, og
afplánunarfangelsi á Tunguhálsi 6. Ekki verður af framkvæmdum.
■ 2001 Dómsmálaráðherra kallar saman hóp til að taka upp þráðinn við
undirbúning nýs fangelsis á höfuðborgarsvæðinu.
■ 2001 Fangelsismálastofnun ríkisins falið að vinna að frekari undirbúningi
verkefnisins.
■ 2001 Reykjavíkurborg úthlutar lóð undir nýtt fangelsi á Hólmsheiði.
■ 2004 Starfshópur Framkvæmdasýslu skilar drögum fyrir alútboð fyrir
byggingu gæslu- og afplánunarfangelsis.
■ 2004 Fangelsismálastofnun skilar ítarlegri heildarlausn um uppbyggingu
fangelsa til dómsmálaráðherra.
■ 2005 Fangelsismálastofnun skilar framkvæmdaáætlun um uppbyggingu
fangelsa til dómsmálaráðherra.
■ 2005 Áætlun Fangelsismálastofnunar samþykkt í ríkisstjórn.
■ 2009 Fangelsismálastofnun skilar þarfagreiningu til dómsmálaráðuneytis
með fjórum útfærslum að lausnum.
BYGGINGARFERILL NÝS FANGELSIS Í 50 ÁR
FRÉTTASKÝRING
JÓHANNA S. SIGÞÓRSDÓTTIR
jss@frettabladid.is
KORPÚLFSSTAÐIR Fyrir tæpum fimmtíu árum
stóð til að reisa fangelsi á Korpúlfsstöðum.
með ánægju
Rödd skynseminnar
Það er alveg málið að fara í
matvöruverslun og kaupa í
matinn þegar maður er úti. Um
að gera að sleppa því að fara á
veitingahús á hverju kvöldi.
Þannig spararðu og getur
keypt alls kyns gúmmelaði
sem þú finnur ekki á klakanum.
Hlustaðu á rödd skynseminnar,
bókaðu flug til Evrópu og fáðu
góð sparnaðarráð á
www.icelandexpress.is
Farðu út
í búð!
Verð frá:
Aðra leið með sköttum
og öðrum greiðslum.
14.900 kr.
icelan
dexpr
ess.is
Finndu
ódýras
ta
flugið
á
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
F
I
0
3
0
5
6
1