Fréttablaðið


Fréttablaðið - 16.09.2009, Qupperneq 12

Fréttablaðið - 16.09.2009, Qupperneq 12
12 16. september 2009 MIÐVIKUDAGUR greinar@frettabladid.is FRÁ DEGI TIL DAGS FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík SÍMI: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir arndis@frettabladid.is, Kristján Hjálmarsson, kristjan@frettabladid.is Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is og Höskuldur Daði Magnússon (dægurmál) hdm@frettabladid.is MENNING: Páll Baldvin Baldvinsson fulltrúi ritstjóra pbb@frettabladid.is VIÐSKIPTARITSTJÓRI: Óli Kr. Ármannsson olikr@markadurinn.is HELGAREFNI: Anna Margrét Björnsson amb@frettabladid.is og Sigríður Björg Tómasdóttir sigridur@frettabladid.is ALLT OG SÉRBLÖÐ: Roald Eyvindsson roald@frettabladid.is og Sólveig Gísladóttir solveig@frettabladid.is ÍÞRÓTTIR: Henry Birgir Gunnarsson henry@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Kolbrún Ingibergsdóttir kolbrun@frettabladid.is ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald RITSTJÓRI: Jón Kaldal jk@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Steinunn Stefánsdóttir steinunn@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871 Við fréttir af slæmri meðferð barna fyrir nokkrum ára- tugum á vistheimilum og öðrum stofnunum er freistandi að hugga sig við að nú sé öldin önnur. Við erum hætt að taka börn frá fátækum eða illa stöddum for- eldrum og senda þau úr augsýn. Við lokum ekki lengur fötluð og veik börn inni á stofnunum og meinum þeim að hitta foreldra sína. En sem samfélag sitjum við uppi með skömm og sektar- kennd yfir heimsku okkar og dugleysi. Hvernig datt okkur í hug að koma bágstöddum börnum fyrir í framandi umhverfi innan um blá ókunnugt fólk sem hafði takmarkaða eða enga menntun í umönnun barna? Af hverju tókum við ekki mark á þeim sem kvört- uðu? Hvað vorum við að hugsa? Það má kannski segja okkur til málsbóta að við vorum ekki eins vel upplýst þá og við erum nú. Við vorum uppteknari af líkam legum en tilfinningalegum þörfum fólks og vissum ekki hve alvarleg áhrif aðskilnaður barna frá foreldrum þeirra getur haft á líðan þeirra, sjálfsmynd og tengslamyndun. Kynferðislegt ofbeldi gagnvart börnum var ekki komið í almenna umræðu og fæstir höfðu hugmyndaflug til að ímynda sér þær þjáningar sem börn máttu, og mega enn, þola. Við gátum samt gert betur. Í dag vitum við mun meira um þarfir barna og mikilvægi fyrstu áranna. Börn eru frá fæð- ingu ofurnæm á þá sem annast þau og því hefur líðan og ástand foreldranna áhrif á þeirra líðan. Vanlíðan foreldra dregur úr getu þeirra til að sinna þörfum barna og halda streitu þeirra innan viðráðanlegra marka. Viðvarandi streita ungra barna getur skaðað heila þeirra og minnkað mótstöðuafl gegn lang- vinnum heilsufarsvanda fram á fullorðins ár. Börnum er sérstök hætta búin ef foreldrar þeirra voru sjálfir vanræktir eða mis- notaðir í barnæsku, njóta lítils stuðnings, stríða við fíkn eða geðheilsuvanda eða búa við fátækt eða heimilisofbeldi. Þá kennir reynslan börnum að öðru fólki sé ekki treystandi, sjálfs- mynd þeirra verður neikvæð og þau skortir forsendur til að setja sig í spor annarra. Við núverandi þjóðfélagsaðstæður má búast við að fjölgi í þessum hópi. Það er ekkert launungarmál að hættulegasti staðurinn fyrir sum börn er heimilið. Þetta þýðir ekki að foreldrar þeirra séu vont fólk eða vilji ekki gera betur. Þeir eru einfaldlega ekki færir um að setja þarfir barna sinna í forgang og veita þeim vernd. Eftir sem áður þrá börnin foreldra sína og enginn leggur meira á sig til að leyna ofbeldi og vanrækslu foreldranna en börnin þeirra. Það er skylda okkar sem sam- félags að snúa ekki aftur blinda auganu að börnum illa staddra foreldra. Lausnin felst ekki lengur í að taka þau frá foreldr- um sínum, nema í undantekn- ingartilvikum, og það er ástæða til að ætla að betur sé staðið að þeim málum í dag. Stundum dugar hjálp nánustu fjölskyldu eða vina, oft nægja inngrip frá heilsugæslu eða félagsþjónustu, en stundum er þörf á sérhæfðri meðferð fyrir foreldrana. Höfum við á þessum síðustu og verstu tímum efni á að veita illa stöddum foreldrum meðferð? Á móti má spyrja hvort við höfum efni á, siðferðilega og fjárhags- lega, að sitja með hendur í skauti á meðan geðræn og félagsleg vandamál flytjast til næstu kyn- slóðar. Í kreppunni sem reið yfir Finnland voru fjárframlög til fjölskyldna í vanda skorin verulega niður. Í kjölfarið jókst örorka vegna þunglyndis um 120% hjá fólki sem var á barns- aldri þegar kreppan reið yfir. Heldur einhver að það sé ódýrari lausn? Er skárra að ýta þeim vanda á undan okkur en Icesave? Tækifæri til forvarna eru aldrei jafn stórkostleg og á fyrstu æviárum barna og illa staddir foreldrar eru aldrei jafn móttækilegir fyrir breytingum og þegar börnin þeirra eru lítil. Þess vegna felst bæði skynsemi og mannúð í að veita þeim með- ferð, einmitt þá. Vonandi átta stjórnmálamenn sig á að kostn- aður sem af því hlytist er smá- aurar miðað við sparnaðinn sem kæmi á móti í heilbrigðis-, mennta- og félagskerfinu. Bregð- ist kerfið börnum enn og aftur getum við ekki skýlt okkur á bak við fáfræði, hvorki nú né eftir eftir nokkra áratugi. Höfundur er sálgreinir. Börn þurfa betri hjálp SÆUNN KJARTANSDÓTTIR UMRÆÐAN | Kreppan og börnin Engin skúringakona rekin Á flokksráðsfundi VG á Hvolsvelli á dögunum komu fram áhyggjur af því að niðurskurður í heil- brigðiskerfinu mundi bitna illa á ófaglærðu starfsfólki og þeim sem ættu minnst undir sér í kerfinu. Ögmundur Jónasson heilbrigðisráðherra svaraði afdráttarlaust; Það verður engin skúringakona rekin á minni vakt, sagði ráðherrann við góðar undir- tektir. En svo leið vika og þá bár- ust fregnir af fyrstu uppsögnum allra þrjátíu starfs- manna í eldhúsi Landspítalans. Til hlés Jóhanna Sigurðardóttir forsætis- ráðherra lét kröftuglega til sín taka þegar skýrslur um meðferð barna á vistheimilum og í Heyrnleysingja- skólanum komu fram um daginn. Hún tók strax af skarið og baðst afsökunar fyrir hönd þjóðarinnar. Jóhanna hefur fengið gagnrýni fyrir að veita ekki nægilega sterka forystu. Það er rifjað upp að hún lét lítið fara fyrir sér í umræðum um þau stórmál sem voru á dagskrá í sumar og forðaðist að ræða við erlenda fjölmiðla. Þegar spurt er út í þetta í forsætisráðuneytinu er því svarað að forsætisráðherra „haldi sig til hlés“ um þessar mundir. Hún hafi ekki fengið sumarfrí og geti ekki farið frá vegna annríkis en sé að reyna að draga úr álaginu með því að fá sig lausa utan þess að sækja bráðnauðsynlega fundi. Því er tekið víðsfjarri að hún sé að forðast erlenda blaðamenn. Slík viðtöl eru sögð á döfinni. peturg@frettabladid.is UMRÆÐAN Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir skrifar um bíla og orku Á mikilvægri ráðstefnu um orkumál sem lauk í gær voru ræddar tegundir orkugjafa fyrir bifreiðar. Umræðan hefur færst frá því að ræða einungis hvaða eini orkugjafi taki við af bensíni í þágu umhverfisins í að ræða marga ólíka orkugjafa (t.d. metan og rafmagn). Mikilvægt er að muna í þessari umræðu að hver borg þarf að nálgast sínar umhverfislausnir út frá sínum sérkennum. Þannig er til dæmis Kaupmanna- höfn vel í stakk búin til að leggja meiri áherslu á hjólreiðar en nú þegar nýta 39% íbúar þar hjól sem ferðamáta til og frá vinnu. Í Reykjavík er þessu öfugt farið þar sem einkabíllinn varð sífellt meira áberandi undanfarin ár. Frá 1990 hefur fólksbíl- um í borginni fjölgað um ríflega 70% til ársins 2007 og 75% allra ferða á eru farnar á einkabíl. Reykvíkingar fara 6% ferða sinna með almennings- samgöngum og 12% gangandi eða hjólandi. Þrátt fyrir að stór hluti ferða sé farinn á einkabíl eru vegalengdir innan borgarinnar stuttar og því tækifæri í að nýta aðra orkugjafa en bensín. Um 60% allra ferða sem farnar voru innan höfuðborgar- svæðisins árið 2002 voru styttri en 3 km. Í þessu felst mikið tækifæri fyrir Reykvíkinga að breyta um orkugjafa á bílum sínum. Samgöngur í Reykjavík eru ein af aðaluppsprettum losunar gróðurhúsalofttegunda og tækifærin til umbóta hafa ekki farið framhjá borgarfulltrúum. Borgarstjórn hefur markvisst unnið að því síðustu þrjú ár að bjóða upp á aðra valkosti í samgöngu- háttum með metnaðarfullum grænum skrefum, samgöngustefnu borgarinnar og loftlags- og loft- gæðastefnu. Fjölgun hjólastíga, fjölgun forgangs- reina fyrir Strætó, bætt umhverfi fyrir gangandi, stæði til að hlaða rafmagnsbíla, frí stæði fyrir eyðslugranna bíla og setningu orkustöðvastefnu í stað bensínstöðvastefnu eru bara nokkur dæmi um aðgerðir. En það þarf meira til – nú af hendi ríkis- stjórnarinnar – sem talar og talar um umhverfis- mál, nýjar leiðir í samgöngum og rafmagnsvæð- ingu en gerir ekkert. Þvert á móti er raunin sú að höfuðborgar svæðið fær nær engar samgöngubætur, ekkert er gert í að breyta skattaumhverfi umhverfis- vænna bíla og ríkið viður kennir ekki að göngu- og hjólastígar séu hluti af samgöngukerfi. Ríkis stjórnin stundar umræðustjórnmál í þessu sem öðru. Höfundur er borgarfulltrúi. Sérkenni höfð að leiðarljósi ÞORBJÖRG HELGA VIGFÚSDÓTTIR bílaperur Quarts allt að 80% meira ljós NÝJAR bílaperur frá K ynbundið ofbeldi er sannarlega mein í íslensku sam- félagi. Miðað við umfang þessa meins og, sem betur fer, vaxandi umræðu um það á undanförnum árum verður að teljast sérkennilegt að ekki skuli hafa verið dregin upp heildarmynd af umfangi vandans hér á landi. Rannsókn hér, og önnur þar, eru eins og púslukubbar í heldur dökkri mynd. Þeir (eða öllu heldur oftast þær) sem í starfi sínu fást við ofbeldið og afleiðingar þess, svo sem talskonur Stígamóta og Kvennaathvarfs, koma einnig ötullega til skila upplýsingum um tilteknar birtingarmyndir ofbeldisins, púslum í myndina, en heildarsýn hefur engu að síður skort. Bók Þórdísar Elvu Þorvaldsdóttur, Á mannamáli, sem út kom í gær er því fagnaðarefni öllum þeim fjöldamörgu sem eiga sér þann draum að útrýma þessu meini og vinna að því eftir mis- munandi leiðum. Þar er ekki bara safnað saman miklum upp- lýsingum sem snerta kynbundið ofbeldi og raðað saman í mynd heldur eru þessar upplýsingar settar í samhengi, samhengi sem stundum kemur á óvart. Spurningum er varpað fram, sumum svarað og öðrum ekki. Bókin er að auki einstaklega aðgengileg, vel skrifuð og lifandi. Þórdís bendir í bók sinni meðal annars á að kynbundnir ofbeldis glæpir kosti íslenskt samfélag að lágmarki hálfan annan milljarð króna á ári og er þá átt við bein og óbein útgjöld ríkis- ins ásamt útgjöldum brotaþola og atvinnurekenda þeirra. Þá er vitanlega ótalinn sá miski sem brotaþolinn verður fyrir og ekki er hægt að meta til fjár en brotaþolinn getur engu að síður þurft að glíma við allt sitt líf. Svo virðist sem ákveðið tregðulögmál sé á ferðinni þegar kemur að markvissum aðgerðum á vegferðinni til upprætingar á kynbundnu ofbeldi. Sú glíma virðist standa við drauga aftur- halds, hugmyndaheim þar sem það er liðið að þeir sem valdið hafa beiti á grundvelli aflsmunar ofbeldi án þess að verða sóttir til saka. Þetta er ömurlegur veruleiki og rímar ekki við hug- myndir um siðað samfélag þar sem mannréttindi eru í hávegum höfð. Fjarri því. Við lestur bókar Þórdísar Elvu vakna margar spurningar. Hvers vegna hefur refsiramminn í nauðgunarmálum, sem hefur í heil sjötíu ár verið sá sami, sextán ára fangelsi, aldrei verið nýttur nema til hálfs? Af hverju er fyrir dómstólum einblínt svo mjög á hversu ofbeldisfull nauðgun er í stað þess að skoða nauðgun ina sjálfa og afleiðingar hennar sem skipta brotaþola margfalt meira máli en skrámur og ör. Og hvers vegna eiga úrræði sem að gagni koma í baráttunni gegn kynbundnu ofbeldi ævinlega í vök að verjast fjárhagslega meðan ríkissjóður getur, af rausn, stutt ýmis ágæt verkefni sem þó hafa tæplega jafn mikla samfélagslega vigt? Til að leita svara við þessum spurn- ingum og mörgum öðrum þarf að fara í naflaskoðun. Sumum kann að þykja fyrirsögn þessa pistils helst til hástemmd en sú sem hann ritar hyggur að þannig muni mörgum verða innanbrjósts við lestur bókar Þórdísar. Ef þær upplýsingar sem fram koma í bókinni verða ekki virtar að vettugi mun hún reynast mikilsverð varða á leið okkar til siðaðs samfélags. Haldgóð samantekt um kynbundið ofbeldi: Loksins, loksins STEINUNN STEFÁNSDÓTTIR SKRIFAR

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.