Fréttablaðið - 16.09.2009, Page 13

Fréttablaðið - 16.09.2009, Page 13
Sölufulltrúi Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 „Mongólía er gróið menningarsam- félag og þótt Íslendingum finnist hún fjarlæg kannast þeir við margt þegar þeir koma þangað. Hún er víð- áttumikil og strjálbýl því stór hluti hennar er eyðimörk en ótrúlega víða er landslagið líkt og á Íslandi. Hest- arnir sem bændur nota mikið eru í ætt við þá íslensku en þó ekki eins glæsilegir og á borðum er oft matur sem minnir á íslenskan heimilismat, lambakjöt, kartöflur, hrísgrjón og súrmjólk.“ Þetta segir Ásta eftir að hafa dvalið í Mongólíu í nokkrar vikur árið 1999. Mongólía liggur langt inni í Asíu, á milli Kína og Síberíuhluta Rúss- lands. Ásta segir landið harðbýlt en íbúa þess nægjusama og yndis- lega. „Hirðingjar eru hluti þjóðar- innar. Þeir flytja tjöld sín nokkrum sinnum á ári til að nýta hagana því þeir hvorki rækta né heyja handa bústofni sínum heldur halda honum til beitar. Það er ríkt í fólki að hirð- ingjalífið sé hið frjálsa líf,“ segir hún. „En höfuðborgin Ulan Bator fer samt ört stækkandi og kringum hana eru víðfeðm svæði sem sveita- fólk hefur sett niður tjöld sín á og býr í þeim áfram með aðeins garð í kring með kartöflum og rófum. Í borginni er skólakerfi og heilsu- gæsla og fólkið er meðvitað um nauðsyn menntunar.“ Vegakerfið er ófullkomið og Ásta kveðst hafa fest jeppann sem hún var á, í leðju. „Þá fékk ég að gista í hirðingjataldi og kynntist siðvenj- um sem hafa verið viðhafðar frá því fyrir Krist. Smjörið er heimagert og osturinn líka eins og hér var áður til sveita og svo eru allir í nokkurs konar þjóðbúningum. Ég fór í smá útreiðartúr en hnakkarnir eru úr tré og mjög harðir. Ég var hálf aum í skrokknum næstu daga.“ Ásta segir auðvelt að finna ferðir til Mongólíu á netinu og mælir með heimsókn þangað. Hún sé ævintýri. „Stór hluti þjóðarinnar lifir enn eins og á þeim tíma þegar �ngólfur steig á land hér og Íslendingar þekkja flest vandamálin sem upp koma á ferða- lagi um landið eins og að vegurinn sem var fær í gær sé kannski ófær í dag.“ En er ekkert erfitt að gera sig skiljanlegan? „Nei, nei, sumir kunna ensku og svo er kurteisi alþjóðlegt fyrirbæri. Þú lendir ekki í neinum vandræðum með að dást að hestin- um eða leika við litlu börnin.“ gun@frettabladid.is Hið frjálsa líf hirðingja Ásta Ólafsdóttir listakona brá sér til Mongólíu fyrir nokkrum árum. Þótt ýmislegt væri framandi minnti annað á Ísland, þar á meðal hestarnir sem hirðingjarnir nota er þeir halda búsmalanum til beitar. MiðvikudagSganga ferðafélagsins Útivistar verður farin á Helgafell í Mosfellsdal í dag. Lagt verður af stað klukk- an 18.30 en sameinast verður í bíla og lagt af stað frá Topp- stöðinni í Elliðaárdal. Í vetur verða síðan miðvikudagsgöngur í Elliðaárdalnum. www.utivist.is Ásta í forláta fínum jakka sem hún festi kaup á í Mongólíu. UPPLÝSINGAR O

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.