Fréttablaðið - 16.09.2009, Síða 14

Fréttablaðið - 16.09.2009, Síða 14
ÁRLEG HAUSTGANGA Hornstrandafara Ferðafélags Íslands verður farin laugardaginn 3. október. Nánari ferðatilhögun má skoða á www.fi.is Bílasýningin í Frankfurt í Þýska- landi hófst í vikunni. 781 bíla- og bílaparta framleiðandi frá þrjátíu lönd- um kemur saman og frumsýnir um hundrað nýjar gerðir bíla. Volkswagen reið á vaðið með sýn- ingu mánudaginn á markverðustu nýjungum samsteypunnar. Þar gaf að líta nýjar gerðir Bentley, Bugatti, Lam- borghini, Skoda og Audi-bíla en nýi smábíllinn VW Up vakti einna mesta athygli. Rafmagnsbílar eru áberandi á sýn- ingunni. Til dæmis var Trabant nT raf- magnsbíll frumsýndur í gær. Trabant hefur lengi verið merki gamla Austur- Þýskalands en snýr nú aftur nýr og endurbættur og tilbúinn fyrir fram- tíðina. Bílasýningin er opin almenn- ingi frá 17. til 27. septem- ber. Rafmagnið í öndvegi RAFMAGNSBÍLAR ERU ÁBERANDI Á BÍLASÝNINGUNNI Í FRANKFURT. Vestnorden ferðakaupstefnan var sett í Kaupmanna- höfn í morgun og er þetta sú 24. í röðinni. Ferða- málasamtök Norður-Atlantshafsins (NATA), sem eru samstarfsvettvangur Íslands, Færeyja og Grænlands, standa að Vestnorden. www.ferdamalastofa.is Trabant nT rafmagnsbíll. Renault Twizy Z.E. rafmagnsbíll. „Mörkin skartar sínu fegursta og því viljum við bjóða upp á tveggja til þriggja tíma haustlitagöngur um aðra helgi og þar með starta haust- og vetrarstarfseminni,“ segir Guð- rún Ægisdóttir, verkefnisstjóri hjá Farfuglum. Félagið hefur séð um gistingu og veitingar í Húsadal í sumar og þó að Kynnisferðir hafi hætt með daglegar ferðir í Þórs- mörk eru Farfuglar langt frá því að skella í lás. „Við verðum með eðlilega starfsemi út september. Eftir það verður skálavarsla fram í miðjan október en kannski ekki hægt að ganga að vöfflum vísum í kaffi tímanum, eins og verið hefur í sumar,“ segir Guðrún glaðlega. Hún telur Farfugla þó ávallt til þjónustu reiðubúna ef hópar vilji gista í Húsadal í haust og vetur. Fólk þurfi bara að panta fyrir fram. „Við höfum umráðarétt yfir mannvirkjunum í Húsadal og þar er aðgangur að interneti, gufu- baði, heitri laug og sturtum. Smá- hýsin eru vinsæl og hægt er að gista í tveggja manna herbergjum og fjallaskála. Svo getum við boðið upp á gönguferðir, hópefli, hvata- ferðir, mat og drykk bara ef við fáum smá fyrirvara.“ Guðrún segir þetta fyrsta sumar Farfugla í Mörkinni hafa verið skemmtilegt og lærdóms- ríkt. Haustið leggst líka vel í hana. „Það er dásamlegt í Mörk- inni á öllum árstímum og við erum við opin fyrir góðum hug- myndum,“ segir hún. „Mætum bara á staðinn og getum redd- að flestu sem fólk vill. Það þarf bara hafa samband,“ segir hún og gefur upp netfangið thorsmork@ thorsmork.is og símann 552 8300. gun@frettabladid.is Haustlitadýrð í Mörkinni Þórsmörkin er alltaf heillandi og ekki síst þegar hún skartar haustlitunum. Farfuglar verða með göngu- ferðir þar dagana 26. og 27. september í tengslum við rútuferðir Kynnisferða þangað frá Hvolsvelli. Landslagið er óneitanlega tignarlegt. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Guðrún segir skálavörslu verða í Húsadal fram í miðjan október, en kannski ekki hægt að ganga að vöfflum vísum í kaffitímanum eins og í sumar. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Þórsmörk hefur sinn sjarma á öllum árstímum. MYND/GUÐRÚN ÁRMÚLA 42 - SÍMI 553 4236 BÍLSKÚRS OG IÐNAÐARHURÐIR • Hurðir til á lager • Smíðað eftir máli • Eldvarnarhurðir • Öryggishurðir Loka umferð Íslandmóts Tómstundahúsins og SBKÍ, keppni fjarstýrðra bensín torfærubíla verður haldin sunnudaginn 20. september á brautasvæði SBKÍ í Gufunesi, Grafarvogi. Hægt er að skrá sig í keppni á heimasíðu sbki.is eða á staðnum. Frekari upplýsingar á www.sbki.is

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.