Fréttablaðið - 16.09.2009, Side 17
MIÐVIKUDAGUR 16. SEPTEMBER 2009
Leikfimisalir Tækjasalur Sundlaug Spa Meðferðir Nudd Snyrtistofa
Nýbýlavegi 24, Kópavogi | 511 2111 | www.meccaspa.is
Leikfimi Morgunþrek Pilates Nýr lífsstíll Vaxtamótun
Salsafjör Teygjutímar Göngur Tækjasalur
Gleym -þér- ei
Leikfimi og heilsurækt fyrir konur á öllum aldri
í fallegu og notalegu umhverfi
Námskeið hefjast 7. sept.
Kynningarvika er frá 7. til 12. sept. Prufutímar eru í boði alla vikuna.
Þeir Jón Margeir Sverrisson og
Skúli Steinar Pétursson hafa
æft sund frá því að þeir voru
litlir strákar og ætla sér stóra
hluti á Evrópumóti fatlaðra í
sundi sem verður haldið hér á
Íslandi dagana 15.-25. október.
Þeir keppa í flokki S14 sem er
flokkur þroskaheftra íþrótta-
manna.
„Við erum bestu vinir en æfum
samt ekki með sama félagi,“ segir
Jón Margeir, sautján ára, sem
æfir með Ösp/Sunddeild Fjölnis
en Skúli Steinar, 23 ára, æfir með
Firði. Þeir segja að það sé svolítið
erfitt að útskýra hvað sé svona
gaman við sundið. „Flugsund er
mín sterkasta grein,“ segir Skúli
Steinar, sem hefur æft í sautján
ár og sigrað á mörgum mótum er-
lendis. Hann ætlar samt að keppa
í 100 metra baksundi og 100 metra
bringusundi á mótinu því ekki
er keppt í flugsundi. Jóni Marg-
eiri hefur ekki síður geng-
ið vel. „Ég er tvöfaldur
Íslandsmeistari í 100
metra baksundi og
100 metra skriðsundi,“
segir hann.
Þeir segja að þetta sé
í fyrsta skipti sem
Ísland heldur Evrópumeistaramót í
sundi. „Þetta er líka í fyrsta skipti
síðan 2001 sem þroska hamlaðir
fá að taka þátt í stórmóti á vegum
Alþjóðaólympíuhreyfingar fatl-
aðra. Það er víst út af því að þá
svindluðu Spánverjar á stórmóti
og sendu nær heilbrigt lið í körfu-
bolta sem þroskahamlaðir áttu að
vera í. Þetta er búið að vera voða-
lega mikið vesen,“ segja þeir báðir.
„Það er búið að þurfa að skrifa fullt
af bréfum og undirrita alls kyns
skjöl svo við megum keppa,“ segir
Skúli Steinar og hristir höfuðið en
alls keppa þrettán íslenskir sund-
menn á mótinu.
Finnst ykkur þroskahömlunin
trufla ykkur í daglegu lífi? „Ekki
finnst mér það neitt,“ segir Jón
Margeir en Skúli Steinar er á öðru
máli. „Við erum að berjast fyrir
svo mörgu í lífinu, eins og að kom-
ast í grunnskóla, framhaldsskóla
og háskóla. Mamma og pabbi eru
búin að berjast fyrir mig að kom-
ast í almennilega skóla.“
Og nú eru þið búnir að berj-
ast fyrir því að komast á Evrópu-
meistaramót fatlaðra í sundi? „Já,
og við ætlum að gera okkar besta.
Það eru 37 þjóðir sem keppa á
þessu móti svo það verður erf-
itt en við erum alveg óhrædd-
ir og ætlum að synda til sigurs.
Svo viljum við hvetja
alla Íslendinga til
þess að koma og
horfa á okkur í
Laugardags-
lauginni.“
- uhj
Synda til sigurs
Jón Margeir er óhræddur við erlendu keppendurna, sem koma frá 37 löndum.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Skúli Steinar er
búinn að æfa í
sautján ár og
segir flugsund
sína sterkustu
grein.
Söfnum kröftum − breytum
vandamálum í verkefni nefnast
fjögurra vikna námskeið sem
hefjast 29. september. Þau eru
haldin á vegum Lífs og sálar, í
húsakynnum þess að Fiskislóð 75.
Leiðbeinendur eru sálfræðingarn-
ir Þórkatla Aðalsteinsdóttir, Einar
Gylfi Jónsson, Áslaug Kristins-
dóttir og Rakel Davíðsdóttir.
Markmiðið með námskeiðinu er
að leggja þátttakendum lið við að
glíma á jákvæðan hátt við erfiðar
aðstæður. Fjallað verður um við-
brögð við áföllum og breytingum,
árangursríkar leiðir til að byggja
upp sjálfsmynd og mikilvægi já-
kvæðra viðhorfa til viðfangsefna
tilverunnar. Þátttakendur verða
aðstoðaðir við að setja sér mark-
mið, auka virkni sína og gefa dag-
lega lífinu innihald.
Námskeiðið er í allt sex skipti,
tveir tímar í senn. Starfsmennta-
sjóðir stéttarfélaga og Vinnu-
málastofnun niðurgreiða það.
Nánari upplýsingar í síma 511
5508 og lifogsal@lifogsal.is. - gun
Glímt við erfiðleika
Einar Gylfi Jónsson sálfræðingur er
meðal leiðbeinenda á námskeiðinu.