Fréttablaðið - 16.09.2009, Síða 22

Fréttablaðið - 16.09.2009, Síða 22
14 16. september 2009 MIÐVIKUDAGUR timamot@frettabladid.is MICKEY ROURKE ER 56 ÁRA Í DAG. „Ég var mjög óþroskaður lengi framan af ævinni og ekkert var í jafnvægi. Hjá mér var það annað hvort allt eða ekkert.“ Bandaríski leikarinn Mickey Rourke vann til Golden Globe og BAFTA-verðlaunanna fyrir leik sinn í The Wrestler fyrr á þessu ári en hann var fjarri sjónarsviðinu í mörg ár vegna eiturlyfjaneyslu. MERKISATBURÐIR 1810 Mexíkó lýsir yfir sjálfstæði frá Spáni. 1893 Lög sem taka Austur- Skaftafellssýslu undan Suðuramti og leggja hana til Austuramtsins eru sam- þykkt. 1963 Lyndon B. Johnson, vara- forseti Bandaríkjanna, kemur til Íslands í opin- bera heimsókn. Rúmum tveimur mánuðum síðar, þegar Kennedy er myrtur, verður Johnson forseti Bandaríkjanna. 1979 Minnisvarði er afhjúpað- ur um Hermann Jónasson ráðherra í Hólmavík. 1989 Erró, Guðmundur Guð- mundsson listmálari, gefur Reykjavíkurborg tvö þúsund listaverk eftir sig. Þennan dag árið 1936 fórst franska rannsóknar- skipið Pourquoi-Pas? við Álftanes á Mýrum og með því franski vísindamaðurinn og landkönn- uðurinn Jean-Baptiste Charcot og 37 aðrir skip- verjar. Charcot leiddi tvo mikilvæga könnunarleið- angra til Suðurskautslandsins og kortlagði þar haf- og landsvæðin. Hinn fyrri var farinn á skip- inu Français á árunum 1904 til 1907 og hinn síð- ari á sérútbúna rannsóknarskipinu Pourquoi- Pas? frá 1908 til 1910. Síðan fór hann í rann- sóknarleiðangra á sama skipi til Færeyja, Grænlands og Svalbarða en skipið var búið þremur rannsóknarstofum og bókasafni. Á leið sinni frá Grænlandi kom Charcot við á Íslandi, eins og oft áður, til að sækja kol og vistir. Á leiðinni frá Íslandi til Kaupmannahafnar lenti skipið í miklu óveðri úti af Mýrum í Borgarfirði og fórst. Aðeins einn komst lífs af. ÞETTA GERÐIST: 16. SEPTEMBER 1936 Pourquoi-Pas? ferst Ástkær móðir mín, tengdamóðir, amma og langamma, Svanhildur Guðnadóttir Hörgshlíð 6, Reykjavík, lést á Landspítala Landakoti laugardaginn 12. september. Útförin verður auglýst síðar. Guðrún Þ. Þórðardóttir Þorvaldur K. Þorsteinsson Svanhildur Þorvaldsdóttir Þór Tryggvason Margrét Á. Þorvaldsdóttir Georg Garðarsson og barnabarnabörn. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og systir, Ástrós Sigurbjörg Jónsdóttir Lingaas Faxabraut 13-15, Keflavík, áður til heimilis að Hólmgarði 2, lést á Hjúkrunarheimilinu Hlévangi, föstudaginn 11. september. Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju, föstudaginn 18. september kl. 11.00. Per Snorri Lingaas Carola Lingaas Edda Lingaas Aina, Sofia, Pétur, Baldur, Ragnhildur S. Jónsdóttir og Ársæll Jónsson. Elskuleg dóttir okkar, sambýliskona, móðir, tengdamóðir, systir, mágkona og besti vinur, Bylgja Hrönn Nóadóttir frá Tálknafirði, Tjaldhólum 52, Selfossi, lést á bráðamóttöku Landspítalans aðfaranótt mánu- dags 14. september sl. Útför verður auglýst síðar. Fríða Sigurðardóttir Nói Marteinsson Bjarki Hrafn Ólafsson Hildigunnur Kristinsdóttir Ívar Pétur Hannesson Fríða Hrund Kristinsdóttir Róbert Árni Jörgensen Atli Fannar Bjarkason Börkur Hrafn Nóason Helena Rut Hinriksdóttir Ingibjörg Jóna Nóadóttir Birgir Már Gunnarsson Hannes Kristinn, Róbert Maron og aðrir aðstandendur. Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Þórarinn Jens Óskarsson húsasmíðameistari, Skúlagötu 20, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Seljakirkju fimmtudaginn 17. september kl. 15.00. Gunnar Þórarinsson Steinunn Sighvatsdóttir Ágúst Þórarinsson Sigríður Hanna Jóhannesdóttir Sæmundur Þórarinsson Kristjana Daníelsdóttir Katrín Þórarinsdóttir Haukur Ingason Sigrún Þórarinsdóttir Stefán Örn Bjarnason barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Margrét Guðmundsdóttir frá Leiðólfsstöðum, Laxárdal, Dalasýslu, áður til heimilis Hraunbæ 87, Reykjavík, lést fimmtudaginn 10. september að hjúkrunar- heimilinu Skógarbæ. Útför hennar fer fram frá Langholtskirkju þriðjudaginn 22. september kl. 15.00. Svanur Ingvason Rán Einarsdóttir Sigmar Hlynur Sigurðsson Anna Guðný Guðjónsdóttir Eygló Björk Sigurðardóttir Elfa Brynja Sigurðardóttir Sigfús Haraldsson ömmubörn og fjölskyldur þeirra. Systir okkar, mágkona og frænka, Katrín Vigfúsdóttir frá Sunnuhvoli, Vopnafirði, sem lést fimmtudaginn 10. september, verður jarð- sungin frá Vopnafjarðarkirkju laugardaginn 19.09.2009 klukkan 14.00. Herdís Vigfúsdóttir Fanney Vigfúsdóttir Haukur Vopni og aðrir vandamenn. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, fyrr- verandi eiginkona, amma og langamma, Erna Guðlaugsdóttir frá Vík í Mýrdal, Grænumörk 2, Selfossi, lést á Fossheimum að morgni mánudagsins 14. sept- ember. Útförin fer fram frá Víkurkirkju laugardaginn 19. september kl. 16.00. Óskar Jóhann Björnsson Sigríður Haraldsdóttir Guðlaugur Gunnar Björnsson Elsa Birna Björnsdóttir Guðmunda Rut Björnsdóttir Pétur R. Gunnarsson Sigurður Guðni Björnsson Lilja Guðrún Viðarsdóttir Björn Jóhann Óskarsson barnabörn og barnabarnabörn. MOSAIK Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og útfarir má senda á netfangið timamot@frettabladid.is. Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is eða hringja í síma 512 5000. Kvæðamannafélagið Iðunn var stofn- að 15. september 1929 og átti því áttatíu ára afmæli í gær. Í tilefni af því efna fé- lagsmenn til veglegrar tveggja daga af- mælisdagskrár í Menningarmiðstöðinni Gerðubergi um helgina. Haldnir verða tónleikar með rímnakveðskap og hljóð- færaslætti, kvæðafólk og skáld fjalla um kveðskaparhefðina, sýning verð- ur á munum úr eigu Iðunnar í hliðar- sal og tekið á móti upptökum af rímna- söng sem fólk lumar á í heimahúsum. Steindór Andersen kvæðamaður er einn þeirra sem koma fram á hátíðinni. „Ég byrja dagskrána með því að troða upp ásamt félögum mínum í Sigur Rós og Hilmari Hilmarssyni á laugardag,“ segir Steindór. „Við flytjum parta úr tónverkinu okkar og fjöllum um tildrög tónsmíðanna. Fjöldi listamanna treður síðan upp.“ Steindór hefur verið félagsmaður Kvæðamannafélagsins Iðunnar síðan 1993. „Það var forvitnin sem laðaði mig að þessu. Um leið og ég kynntist þessu uppgötvaði ég hversu stórkost- legur heimur er í kringum rímurnar og merkilegri en margur gæti ætlað.“ Hann segir sérstakt fyrir þjóð að eiga óslitna hefð í kveðskap eins og Íslend- ingar státa af. „Við eigum mikið dýr- mæti í þessum sjóðum.“ Hann bætir við að ekki hafi þó verið farið að safna kveð- skap saman með skipulögðum hætti fyrr en með sjálfri stofnun Kvæðamanna- félagsins Iðunnar árið 1929. „Að stofn- un félagsins stóð fólk, með systkinin frá Vatnsnesi í fararbroddi, sem vildi halda utan um þessa gömlu hefð að kveða rímur og varðveita það sem það þekkti frá þessum heimi. Sjálfsagt hafði eitt- hvað gleymst en þarna var gerð krafa um að rifja þetta upp. Svo var nú hluti af þessu gefinn út á plötu.“ Steindór segir markmið félagsins hafa verið að safna saman efni, kenna yngra fólkinu og halda reglulega fundi. „Þarna voru margir að flytja á mölina og þeir söknuðu baðstofuandans, sem gæti hafa ýtt undir stofnun félagsins.“ Hann bætir við að góðu skipulagi megi þakka að fé- lagið er enn við lýði eftir öll þessi ár en félagsmenn eru nú um 250. „Hluti kemur fram á hátíðinni, þar sem kveðið verð- ur úr rímum þekktra manna og Lúðra- sveit Reykjavíkur, Spilmenn Ríkinís og Voces Thule troða upp. Dagskráin er frá klukkan 14 til 17 báða daga.“ Nánar á www.gerduberg.is. roald@frettabladid.is KVÆÐAMANNAFÉLAGIÐ IÐUNN: Á 80 ÁRA AFMÆLI Merkilegra en margur gæti ætlað FJÁRSJÓÐUR Steindór segir mikil dýrmæti að finna í rímunum. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.