Fréttablaðið - 16.09.2009, Page 27
MIÐVIKUDAGUR 16. september 2009 19
Raftónlistarmaðurinn Rúnar
Magnússon er um þessar mund-
ir á sinni fyrstu tónleikaferð
um Bandaríkin til að fylgja
eftir útgáfunni
Options. Útgáf-
an er USB-lykill
sem er framleidd-
ur í bambuskassa
og geta kaupend-
ur valið hvaða
lög fara á lykil-
inn. Á honum er
grunnútgáfa með
nýjum lögum
eftir Rúnar en
kaupendur geta síðan keypt
meira af nýju og eldra óútgefnu
efni frá Rúnari og hljómsveit
hans Vindva Mei. Rúnar hefur
síðustu árin farið í tónleika-
ferðir um Asíu og í vor spilaði
hann í Mexíkó. Options er fyrsta
útgáfan sem kemur út hjá fyrir-
tækinu Hljóðaklettum.
Ferðast um
Bandaríkin
Tæplega eitt hundrað flytjendur
koma fram á tónleikaseríunni
Réttum í næstu viku, 23. til 26.
september. Á meðal þeirra sem
hafa bæst í hópinn eru Hanne
Hukkelberg frá Noregi, Bode-
brixen frá Danmörku, Dr. Spock
og XXX Rottweiler. Áður höfðu
flytjendur á borð við Hjaltalín,
Hjálma, Jesse Hartman og The
State, the Market & the DJ boðað
komu sína. Tónleikarnir fara
fram á fimm tónleikastöðum: á
Grand Rokk, Nasa, Sódómu, Batt-
erí og Jacobsen. Miði sem veitir
aðgang að öllum tónleikum kost-
ar 3.500 krónur. Nánari upplýs-
ingar má finna á síðunni Rettir.
is.
Eitt hundrað
í Réttum
DR. SPOCK Hljómsveitin Dr. Spock spilar
á tónleikaseríunni Réttum í næstu viku.
Hátt í þrjátíu erlendir blaðamenn eru væntanlegir á
Alþjóðlega kvikmyndahátíð í Reykjavík, RIFF, sem
stendur yfir frá 17. til 27. september.
Wendy Mitchell frá kvikmyndasíðunni Screen-
daily.com kemur hingað, auk blaðamanna frá Pol-
itiken, Jyllandsposten, Berlingske Tidende, Boston
Phoenix, Tagesspiegel, Sight and Sound og fleiri
fjölmiðlum. „Þetta er mesti fjöldi blaðamanna sem
hefur komið á hátíðina. Það hefur aldrei verið meiri
áhugi á henni,“ segir Hrönn Marínósdóttir hjá RIFF.
Jessica Hausner, sem er í dómnefnd á RIFF, fékk
nýverið hin virtu Fipresci-verðlaun á kvikmynda-
hátíðinni í Feneyjum fyrir mynd sína Lourdes. Hún
gerist á samnefndum pílagrímaslóðum í Pýrenea-
fjöllum Frakklands og fjallar um Christine, sem
er sjónskert og bundin í hjólastól. Myndin verður
sýnd á RIFF 17. september, sama dag og hátíðin
verður sett í Háskólabíói með sýningu kanadísku
myndarinnar Ég drap mömmu. Katrín Jakobsdóttir
menntamálaráðherra setur hátíðina auk þess sem
leikstjórinn Ólafur Jóhannesson og Alan Bones,
sendiherra Kanada á Íslandi, halda ræður. - fb
Þrjátíu erlendir blaðamenn
HRÖNN MARÍNÓSDÓTTIR Aldrei hafa fleiri erlendir blaðamann
komið á Alþjóðlega kvikmyndahátíð í Reykjavík. MYND/RIFF
Norræna netsíðan dvoted.net
hefur boðið ungum kvikmynda-
gerðarmönnum að sýna stutt-
myndirnar sínar á hátíðinni
Nordisk Panorama. „Þetta
er gríðarlega skemmti-
legt tækifæri fyrir unga
kvikmyndagerðarmenn,“
segir Grímur Hákonar-
son leikstjóri. Hann
verður viðstaddur ásamt
leikstjórunum Rúnari
Rúnarssyni og Benedikt
Erlingssyni og veita
þeir opna gagn-
rýni á hverja
stuttmynd á
sérstakri Nord-
isk Panorama-
sýningu. Þar
verða fimm sérvaldar íslenskar
stuttmyndir frá vefnum dvoted.net
sýndar. Áhugasamir ungir kvik-
myndagerðarmenn sem vilja
eiga möguleika á að mynd-
in þeirra verði sýnd geta
hlaðið inn stuttmyndunum
sínum fyrir 22. september
inn á dvoted.net. Sýning
dvoted.net fer fram í Regn-
boganum í sal 3, laugardag-
inn 26. september kl. 16, og
er aðgangur ókeypis.
Stuttmyndir á netið
GRÍMUR HÁKONAR-
SON Grímur
tekur þátt í
kvikmynda-
hátíðinni
Nordisk
Panorama.
RÚNAR
MAGNÚSSON
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
Miðvikudagur 16. september 2009
➜ Tónleikar
20.00 Blokkflautaleikarinn Michala
Petri og gítarleikarinn Lars Hannibal
flytja verk eftir m.a. J.S. Bach, A. Vivaldi
og A. Piazzolla á tónleikum í Norræna
húsinu við Sturlugötu.
20.30 Bubbi Morthens verður með
tónleika í félagsheimilinu Klifi í Ólafsvík
þar sem hann flytur nýtt efni í bland
við eldra.
➜ Blómaskreytingar
14.00 Japanskur Ikebana-meistari
verður með sýnikennslu í japanskri
blómaskreytingalist í Norræna húsinu
við Sturlugötu. Nánari upplýsingar á
www.nordice.is. Aðgangur er ókeypis.
Með leyfi AVALON PROMOTIONS & LIBERTY BELL
GRUMPY OLD WOMEN LIVE
Miðasala á www.midi.is og
www.loftkastalinn.is
einnig í síma: 527 1000
erglind Berghreinsdóttir
etta var ótrúlega fyndið og
ég var eftir mig af hlátri.
g vona að þetta verði gefi
ð út á DVD svo ég geti
éð þetta aftur.
Kristín Ásgeirsdóttir
Þetta er frábær sýning, al
lir geta séð sjálfan sig eða
þekkja eitthvað sem kem
ur fram. Ég og dóttir mín
grétum úr hlátri alla sýnin
guna. Enginn má missa af
þessari sýningu.
Svandis Birkisdóttir
Ég fór á Fúlar á móti o
g var með harðsperrur í
maganum lengi á eftir, ég
hló svo mikið.
Hjördís G. Thors
Athuga vel að vera bún
ar að pissa... ÁÐUR en
gengið er til sætis !!! :)
Ingunn Mjöll SigurðardóttirHló á mig gat, þetta var sko ekkert frat,fúl á móti, já ég segi það,
svitakóf, pirringur, hormóna hvað,á Fúlar á móti, þær tækluðu það :)
Axel Axelsson
rábær sýning og bráðfyndin. Allt satt og rétt sem fram om í sýningunni. Látið mig þekkja það að heiman og ðar að.
nda Lorange
urning um að fara í blöðruaðgerð eftir allan krampa-turinn og sixpakkinn breyttist í kút;)
sa María Guðjónsdóttir
ar á móti var snilld! Hef sjaldan hlegið jafn mikið á u leikriti, algjör snilld! Hló á mig gat.
Jóhanna Vídalín Þórð
ardóttir
Þið voruð bara flottar o
g fyndnar. Góð sýning
og kennsla í
því sem koma skal, er a
ð koma eða kannski þe
gar byrjað?
He he!
Sigurlaug Ásta Gréta
rsdóttir
hló mikið og skemmt
i sér vel. Var hálf mar
in á annarri
hliðinni eftir regluleg
olnbogaskot frá eigin
manninum.
Mæli eindregið með þ
essari sýningu.
Gróa Kristjánsdóttir
Geðveik sýning sem þ
jálfaði maga- og andlit
svöðva vel.
Ingibjörg Ingadóttir
Veit ég truflaði sýningu
na töluvert, þetta með
að ná ekki
andanum á köflum er
auðvitað stórhættuleg
t! Endorfín
sem dugði fram á nótt
.
Gísli Gíslason
Vaknaði í morgun en
nþá hlæjandi og við v
erðum það
næstu daga, við hjónin
. Takk fyrir frábæra ske
mmtun.
Sýnt í Loftkastalanum
Miðasala á midi.is
Takma
rkaður
sýning
afjöldi
fim. 1
0 sept.
UPPSEL
T
fös. 1
1. sept
. UPPS
ELT
fös. 1
8. sept
. ÖRFÁ
SÆTI L
AUS
lau. 1
9. sept
. ÖRFÁ
SÆTI L
AUS
fim. 2
4. sept
. ÖRFÁ
SÆTI L
AUS
fös. 2
5. sept
. ÖRFÁ
SÆTI L
AUS