Spegillinn - 01.02.1927, Qupperneq 2

Spegillinn - 01.02.1927, Qupperneq 2
6 SPEGILLINN Ví að kaupa útlenda »dívana« þegar að innlendir bólstraðir legubekkir fást í versl. Áfram, Laugaveg 18, við allra hæfi og af öllum gerðum. Fjórar tegundir fyrirliggjandi. Munið, að ómissandi hlutur á hverju heimili, er legubekkur frá ÁFRAM (sími 919). o©@<o Seljum í heildsölu: allar teg. af sykri, hveiti, hrísgrjón, ávexti, þurra og nýja. Afgreiðum pantanir hvert á land sem er. <o@@<o Verðið hvergi lægra. Símar 807 & 1009 - Sim: Shipping G. Kristjánsson skipamiðlari, Hafnarstræti 17. Hefir ætíð birgðir af g ó ð u m og ódýrum kolum til skipa- og húsanotkunar. Skipulagsskrá Spegilsins. Ef menn halda, að ekkert fyrirtæki hafi skipulagsskrá nema sjóðir, svo sem Hall- veigarsjóður og »Styrktarsjóður misskilinna gáfumanna«, sem heyrst hefir, að í ráði sje að stofna og vjer væntum oss mikils af, persónulega, þá er slíkt algerður misskiln- ingur, því hvaða fyrirtæki þurfa skipulags- skrár við, ef ekki stórblöð eins og Spegill- inn er að verða, og það að maklegleikum. Skipulagsskrár hafa það fram yfir venju- legar hurðaskrár og stjórnarskrána, að að þeim þarf engan lykil, heldur eru þær sjálf- ar lykill að fyrirtæki því, er þær eru samd- ar fyrir. Nú vill svo til, að meðal lesenda blaðs vors eru allir önnumköfnustu menn þjóðarinnar, og það bar við, ekki alls fyrir löngu, að merkur kaupsýslumaður borgar- innar kom inn á skrifstofu vora, til þess að biðja oss fyrir svívirðingu um einn kol- lega sinn, sem hann þóttist hafa farið hall- oka fyrir i viðskiftum. Vjer neituðum þessu auðvitað, því þess háttar á heima fyrir sáttanefnd eða hæstarjetti, en ekki í blaði voru, og sló þá kaupsýslumaðurinn öllu upp í gaman, og sagði, að erindið hefði verið alt annað. Hann sagðist hafa siglt tvisvar sinnum og sjeð framandi þjóðir og siðu þeirra, og benti oss á, að efni blaða erlendis væri miklu skipulegar flokkað en hjer ætti sjer stað. í stuttu máli sagt, árangurinn af samtali voru við þennan íhaldsfrömuð (svo vjer leyfum oss ný- yrði, sem er ekki til í orðabók Björns Halldórssonar) varð sá, að framvegis skip- um vjer niður efni blaðsins eitthvað á þessa leið: Fyrsti partur: Andleg mál. A. Kirkjumál: a. Lögmál. b. Evangelium B. Frœðslumál: a. Skólamál. b. Spursmál. c. Vafamál. d. Leyndarmál. e. Tungumál. C. Lysta- og vísindamál: a. Söngmál. b. Matmál. c. Mál (sem málarar nota). d. Lesmál. e. Skáldskaparmál. Annar partur: Veraldleg mál. A. Stjórnmál: a. Innanríkismál. b. Utanríkismál. c. Fíflskaparmál. B. Atvinnumál: a. Sjóaramál (ef mál skyldi kalla). b. Tímamál. c. Verslunarmál. d. Póst- og símamál. e. Vita- og vegamál. f. Síldarmál. C. Rjettarmál: a. Gesta-, hæsta-, hnefa-, staupa- og hestarjettarmál. b. Dómsmál (þar undir sjúkdómar í rjettarfarinu). D. Fjármál: a. Þjófnaðarmál. b. Okurmál. c. Vjelamál. E. Ahuga- og fjandskaparmál: a. Seðlaútgáfumál. b. Bankamál. c. Slagsmál. d. Þjóðnýtingar- og kynbótamál. e. Umbótamál. F. Heilbrigðismál: a. Þrifnaðar- og óþverramál. b. Sóttvarnarmál. c. Landlæknir. G. Þjóðernismál: a. Vesturheimsk mál. b. Danskislandsksamfundsmál. H. Bindindis- og brennivinsmál. a. Stúkumál. b. Pelainál. Þriðji partur: Lesbók. A. Dagbók. B. Leiðrjettingar á dagbókinni. C. Verðlaunaþrautir. Eins og öllum hugsandi íslendingum er ljóst, er ekki hægt að keyra heiminn og alt sem i honum er, inn undir fastar regl- ur, jafnvel ekki gútemplararegluna, sem í augnablikinu er allra reglna voldugust með þjóð vorri, þegar frá er talin óreglan og ritreglur Morgunblaðsins, kollega vors. Þar af leiðir aftur, að ýmisleg atriði geta orðið efst á baugi með þjóð vorri, Sem hreint ekki er gott að skipa í ákveðinn flokk, en slík atriði verða þá tekin fyrir í Lesbók vorri, sem vjer vonum, að ekki komi til að standa að baki þeirri eftir Nor-

x

Spegillinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Spegillinn
https://timarit.is/publication/349

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.