Spegillinn - 01.02.1927, Blaðsíða 4
8
SPEGILLINN
Nýkomin
f ataef n i.
Glæsilegt úrval.
Árnl l Biarni.
VERSLIÐ I
EDINBORG
e. SkáláskaparmQl.
Kuölöljóð.
Himni sól er sígin af
sortna loftsins gluggar.
Yfir strönd og úfið haf
eigra nætur skuggar.
Og við brattan bergsins stall
bylgjur tungum skvetta!
Ó, að jeg fengi fimm—sex kall
fyrir að yrkja þetta!
Gorgur Kiljan Grlmsness.
Gjaldið greitt.
G. K. G.
Hnðante funebre.
Dapurt er á daginn,
er dregur fyrir sól —.
Dvel jeg yst við æginn
og eygi Norðurpól.
Þar situr gamall selur
og syngur döpur ljóð.
Og harmatölur telur
um tíu glötuð jóð.
Víst þau spikuð vóru,
þótt væri þeim stundum kalt
með æskuærslum fóru
um ísahjarnið svalt.
Nú Árnundi var allur
með yndi hans á brott.
Hann skaut, sá kaldi kallur,
einn kóp með loðið skott,
sóma allra sela,
er svamla’ um norðurhöf.
Hann datt hjá þessum*dela
í djúpsins köldu gröf.
En »Örninn« eðallyndi
að því vitni tók.
Svo skautst hann burt í skyndi
og skrifaði’ um það bók.
Huldist selnum sólin,
hann söng sitt dánarlag.
og fölur fjell á pólinn.
Hann fjekk víst hjartaslag.
* *
*
Hvort heyrirðu’ ekki ópin,
þú Ámundsen í nátt?
Það eru kvæði’ um kópin,
sem koma’ úr norðurátt.
T. & S.
c. Fífl5kaparmQl.
Rthafnaskrá
fyrir hátíðahölðin á Þinguelli á ÍOOQ ára
afmceli Rlþingis, áriö 1930.
(Frh.).
5. dagur.
Kl. 8 f. h. Þingheimur vakinn við kórsöng
barna, sem hafa fengið »kik«-
hósta.
Kl. 12 á h. Messugjörð. Sjera Guðmundur
Einarsson stígur í stólinn og
leggur út af Rjúpnamorðinu í
• Betlehem.
Kl. 5 e. h. .Ritstjóri Vísis heldur fyrirlestur
með leiðrjettingum um hákalla-
og háfaveiðar, heima og er-
lendis, og talar háfamál eins
og innfæddur.
Kl. 8—12. Færeyingar frændur vorir sýna
Jijóðdansa.