Spegillinn - 01.02.1927, Blaðsíða 7

Spegillinn - 01.02.1927, Blaðsíða 7
SPEGILLINN 11 Fi. Dagbák. Frá Kína. Tíðindamaöur Spegilsins i Hankow símar oss og segir ástandið bölvað. Frá Grikklandi. Tíðindamaður vor i Aþenuborg segir allmikið los komið á stjórnarfarið þar i landi. Frá Hilleröd. »Alt kyrt hjer« simar tíðindamaður vor i þeirri borg. Frá Hvammstanga. Mikið er talað hjer, um þessar mundir, um yng- ingartilraunir þær, er læknirvor befir gert með aðferð próf. Yngimundar Steinachs i Vínarborg. Kveður svo ramt að árangrinum, að áttræðir öldungar dansa polka og >Pas de Chasmofogoy« á trjefótum, og alt eftir þessu. Sveitarstjórn óróleg. Nánar siðar, er árangur sjest. Frá Port-Said. Tíðindamaður vor simar oss, og biður um meiri peninga til að síma fyrir. Vjer tökum málið til íhugunar. Frá Snjóbiinum. (LoftskeytiL »Erum fastir i fönn á Hetlisheiði. Komum vonandi fram i leysingunum i vor. Kær kveðja til vina, vanda- manna og vegamólastjóra«. Frá Kaupmannahöfn. »Odins Tyngdepunkt fundet Gaar Eftermid- dag. Fanden lös i Flydedokken. Hils Nielsen«. Frá Ballerup höfum vjer ekki fengið nein skeyti, þar eð tiðinda- maður vor í þeirri borg liggur sjúkur af gin- og klaufaveiki og er litt haldinn. Frá Stykkishólmi. Hjer er verið að safna fje til kirkjubyggingar. Skal hún kend við hina heil. Spanskflugu, og hafa nokkur æviatriði þessa dýrlings verið leikin til ágóða fyrir kirkjubygginguna. Frá Furðuströndum. Straumar heitir tímarit andlegs efnis, gefið út af andríkustu mönnum þessarar þjóðar, eins og efni ritsins og með- ferð öll á þvi ber með sjer. Er það eflaust besta — og það langbesta — rit sem birtst hefir enn á móðurmáli Spegilsins, að voru eigin mál- rgagni ekki undanteknu. Frá Cuba. Oss er símað frá sendisveitinni íslensk-dönsku í Havana, að negrar þar i borginni hafi jetið tíðindamann vorn. Svo leitt sem þetta er fyrir manninn sjálfan, er það lán í óláninu, að þetta er sönnun þess, hversu alstaðar er gleypt við blaði voru. B. Lgiðrjettingar á ðagbákmni. Frá Grikklandi: Vjer biðjum lesendur vora að vera hughrausta þrátt fyrir skeytið frá Aþenu, því los það í pólitíkinni, er þar um getur, mun ekki vera annað en Pangalos. Frá Kaupmannahöfn: Punktur sá er fanst í Flydedokken reyndist við nánari rannsókn alls ekki vera þyngdarpunkturinn úr þvi góða skipi Óðni heldur suðupunkturinn úr kælirúminu i því billega skipi »Brúarfossi«. (Hitt er rjett hermt að fjandinn sje laus i Flydedokken, og að Nielsen sje beðið að heilsa). Frá Furðuströndum: Hinn útsendi tíðindamaður vor i andlega bransanum hefir játað fyrir ritstjórninni, að hann hafi alls ekki sjeð eða heyrt ritið Strauma. Er oss þvi ljúft og skylt að taka aftur öll um- mæli lútandi að því riti og biðjum vjer lesendur velvirðingar á þessu gönuskeiði samverkamanns vors, og viljum taka fram, að hann hefir verið rekinn frá blaðinu. Frá Snjóbilnum: í því skeyti var tveim síðustu orðunum ofaukið. Lofttruflanir voru allmiklar þetta kvöld því próf. Ágúst H. Bjarnason var að halda fyrirlestur í útvarpið um trú og vísindi og er hugsanlegt að hann hafi minnst á einhvern vísindalegan vegamálastjóra, en eins og gefur að skilja getur það ekki átt við þenna, sem vjer þekkjum. Bagalegar prentvillur höfum við rekist á í síðasta tölublaði Spegilsins. Með forsíðumyndinni átti að standa fyrirsögnin: H i n n mikli fiskidráttur (Jóh. XXI. 8). Ennfremur stendur á 4. siðu fiðurfje, en á auðvitað að vera fjaðurfje. En versta prentvillan og óskiljanlegasta var sú, að krukkurnar hafa lent undir fjaðuránni, en áttu að vera undir fjaðursauðnum lengst til vinstri. C. Uerðlaunaþrautir. . Enginn drekkuv íslending eftir hann er dáinn Vjer greiðum 2 kr. fyrir besta botn á visu þessari og 3 kr. fyrir þann versta. Botnarnir sjeu komnir til ritstjórnar blaðs vors fyrir 2. ágúst næstkomandi.

x

Spegillinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Spegillinn
https://timarit.is/publication/349

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.