Spegillinn - 01.02.1927, Blaðsíða 3
S P E G IL LIN N
7
dal, sem auk þess er miklu dýrari en vor
verður. Annars verður ráðlegast að taka
nokkur dæmi, sem kenna mönnum betur
nn alt annað að nota skipulagsskrá blaðs-
ins. Tökum til dæmis, að Reykjanessvitinn
komist í ólag, og menn vilja fá nánari upp-
lýsingar um það í blaðinu, er ekki annað
en vita, hvort ekkert finst um það undir
II- B. e: Vita- og vegamál, því undir þann
kafla heyra allir vitar, svo sem oddvitar,
hálfvitar, veðurvitar, óvitar — alt í faginu
nema ofvitar; þeir koma í Lesbókinni, ef
þörf krefur. Auk þess allir vegir, með til-
heyrandi, svo sem þjóðvegir, sjóvegir, land-
vegir, atvinnuvegir (sem líka gætu heyrt
undir atvinnumál), óvegir, útvegir, farvegir,
— og þó sjerstaklega ófærir vegir — yfirleitt
allir vegir nema auðnuvegurinn, sem heyrir
undir II. B. c.: Verslunarmál, og vegurinn
til lifsins, sem heyrir undir I. A. b.: Evan-
gelíum. Eitt er og nauðsynlegt að benda á
í þessu sambandi, sem ókunnugir geta ekki
varað sig á: undir þenna flokk heyra líka
dissousgas-verksmiðjan Isaga og vjelaverk-
smiðjan Hamar, en það er annars auka-
atriði, og eru lesendur beðnir velvirðingar
á því víxlspori (Krabbagangi).
Ef einhver þarf að vita hvenær Norðan-
póstur á að koma, er reynandi að slá upp
í kaflanum II. B. d.: Póst- og símamál.
Undir þau heyra allir hugsanlegir póstar:
Austanpóstar, Vestanpóstar, Norðanpöstar,
Sunnanpóstar, gluggapóstar, Jobspóstar,
ólukkupóstar og samviskupóstar. Áður en
vatnsveitan kom, heyrðu lika hjer undir
vatnspóstar, hverra Prentsmiðjupósturinn
var frægastur, en nú ætlar Alexander dokt-
or að bæta úr þessu og skaffa loftpósta í
staðinn. Af þeim höfum vjer, sem stendur,
ekki nema einn, sem sje Loft póst Ólafs-
son, sem er í förum milli Prestbakka og
Garðsauka, en það þykir dr. Alexander of
lítið.
Um Grænlandsmálið, sem er nú mjög á
döfinni meðal vor, geta menn helst fræðst
i kaflanum II. A. c.: Fíflskaparmál; um
vigsluneitanir í I. A. a.: Lögmál; um víxla-
afsagnir í II. E. b.: Bankamál.
Vjer þykjumst nú hafa veitt lesendum
vorum allítarlega tilsögn i lestri blaðsins.
Aðalatriðið er þetta: Ef eitthvað mál er,
sem yður finst ekki heyra undir einn flokk
fremur en annan, þá leitið þess í Lesbók-
inni, annaðhvort i dagbókinni, eða leiðrjett-
mgunum á henni. Ef vjer einhvemtíma ger-
umst háfleygir, sem vjer getum alls ekki
ábyrgst að ekki verði — og þjer skiljið oss
ekki, þá er það af því, að atriðið heyrir
undir III. C.: Verðlaunaþrautir. En auðvitað
er vonandi, að andríki vort verði ekki svo
gífurlegt, að háttvirtir lesendur þurfi að fá
heilabólgu af því.
Með mestu virðingu
Skipulcigsstjóri Spegilsins.
b. Euangelíum.
5traumar.
Mánaðarrit all-eigulegt með þessu nafni
hafa nokkrir tiivonandi þjenarar þjóðkirkju
vorrar sent út á markaðinn nýlega. Speg-
illinn tekur fúslega við áskriftuin á þenna
unga og efnilega kollega sinn. Sömuleiðis
látum vjer ekki hjá líða að benda á, að
æskilegt væri að hefjast handa nú þegar
um samskot til brúargerðar á strauma
þessa, því, eftir því sem einn stabíll íhalds-
maður í trúmálum tjer oss, er þar enga
heila brú að finna.
PP1ÍP[
ÓTT alt annað stansi, ganga
klukkurnar og úrin frá Sigurþóri
jafnt eftir sem áður.
Allir hafa tekið eftir því, að þær
trúlofanir verða ábyggilegastar, sem
eru innsiglaðar með Sigurþórs
þjóðfrægu trúlofunarhringum.
Tímínn er peníngar.