Spegillinn - 01.05.1927, Qupperneq 7
SPEGILLINN
43
Marían — Eigandi Magnús Blöndahl.
»Halló! Er það Blöndahl? Munduð þjer
vilja gera svo vel að lána Marían til þess
að —«
»Rifin«.
Skjöldur — Eigandi Runólfur í Mýrar-
húsurn.
»Halló! Er það Runólfur? Fyrirgefið þjer
ónæðið, en ekki vænti jeg að hægt væri
að fá hann Skjöld lánaðan?«
»Því miður liggur hann ónýtur fyrir vest-
an Hauksbryggju«.
Margijet — Eigandi Finnur Finnsson.
»Halló! Er það Finnur? Hvernig er það
með hana Margrjeti yðar?«
»Hvaða bölvaða Margrjeti? Jeg hefi enga
Margrjeti hjá mjer«.
»Jú, jeg meina skipið yðar«
»Nú, svoleiðis. Hún liggur uppi á landj
til sölu. Þjer getið fengið hana keypta, ef
þjer viljið«.
Stefnir — Eigandi Stjórnarráðið.
»Jú, ekki vissi jeg af því, að við ættum
skip, en hver veit um það? Spurðu Þorkel«.
»Er til viðgerðar í Slippnum«.
»Nú vandast málið. Listinn er búinn, en
einhvernveginn verður að bjarga Þór. Jú,
nú hef jeg það. Sendið þið vatnsbátinn.
Verið þið ekki að vekja Þórarinn. Takið
hann upp á mína ábyrgð«. —
í aftureldingu náði vatnsbáturinn hinum
ákveðna stað, og var herskipið nákværn-
lega þar, er til var greint, Vioo úr sjómílu
undan Keflavíkurbjargi. í lyftingu stóð hár
maður og fyrirmannlegur og var það vörpu-
stjórinn. Heilsaði hann glaðlega bjargvætti
sínum og kvað skipsmenn koma bráðlega
til hjálpar.
Gekk nú greiðlega að koma köðlum um
stýri skipsins og var svo haldið af stað. —
Segir fátt af þeirri ferð, nema eðlilega var
gangurinn tregur, þar sem drátturinn var
þungur, en 56 tímum síðar var Þór kominn
heill og óskemdur inn á Reykjavikurhöfn.
Hvernig hefir tekist að greiða úr flækjunni
höfum vjer ekki heyrt, en hitt höfurn vjer
sannfrjett, að í henni hafi ekkert verið
fiskjarkyns, yfir höfuð ekki annað en skip-
ið sjálft.
Nokkurum dögum síðar hjeldu, að sögn,
hinir áður nefndu stofnendur þessa vísinda-
leiðamuirs fund, og mun þaðan komin eftir-
farandi ályktun:
»Með því að tilraun sú, er varðskipið
Þór gerði til vísindalegra landhelgisveiða
mishepnaðist, að því leyti, að enginn afli
fjekkst, verður að álítast ósannað hvort tog-
arar hafa hagnað af landhelgisveiðum, en
þar sem þessi tilraun mun hafa kostað um
150 þús. kr., auk skemda á veiðarfærum,
þykir hinsvegar eftir atvikum rjett að telja
fullsannað, að landhelgisveiðar muni ekki
borga sig fyrir togara, ef eins tekst til fyrir
þeim eins og nú fyrir Þór«.
Þessa ályktun eru önnur blöð, erlend
sem innlend, vinsamlegast beðin að birta.
Frjettaritari Spegilsins
Sttraarkáptii*
handa smámeyjum kaupa allir bestar,
en þó ódýrastar, i
verslun Ben. S. Þórarinssonar.
— Nýtísku litir. —
Sagir,
heimsþekt merki. — Járn- og trjeheflar
i öllum stærðum. — Skaraxir og hamrar,
mikið úrval. — Naglbítar og tengur. —
Hurðarþvingur. — Límknekti. — Lím-
pottar. — Limpenslar. — Skrúfjárn. —
Tólabaukar. — Sporjárn. — Útvegum
hefilbekki og trjesmiðavjelar.
Það besta fæst altaf i
Brynju.
Notið mínar
fyrsta flokks matvörur; lítið
svo í spegilinn yðar og þið
eruð fyllilega ánægð með
árangurinn.
Guðm. Guðjónsson,
Skólavörðustig 22.