Spegillinn - 01.11.1927, Blaðsíða 6
90
SPEGILLINN
Fíuglýsing
frá Úr-, gull-, silfur-, reiQhJála- og
shá-uinnustofunni, item hual-, uíxla-
og fasteigna-sala rikisins.
Sjá, jeg hef snapað sjelegar
silfumælur hjer og þar,
og ef millur meyjar þrá
mun jeg reyna’ að fara’ á stjá.
Reiðhjól fyrir rekk og sprund
reynast dável nokkra stund.
Með afborgunum eg þau fæ
á uppboðunum niðri’ í bæ.
Vetur, sumar, vor og haust
varir fjörið endalaust,
og framhjá haldið ætíð er
ef þú kaupir hring hjá mjer.
Ekta látúns-úrfestar
altaf haldast fallegar.
Verðið líka altaf er
eins og gæðin lægst hjá mjer.
Jeg hefi’ allan ársins hring
ótal klukkur — stóran bing —.
og vasaúrin — veistu hvað —
varla geta færst úr stað.
Eg skal plukka úrið þitt
elskulega hróið mitt.
Fyrir vixla flest jeg sel;
firðum þetta kemur vel.
IFramh. frá bls. 88].
margfaldar gaddavírsgirðingar víðsveg-
ar með ströndum fram, er reka mætti
gemlingana inn í. En sá hængur er á,
að til þessa er engin fjárveiting. Hefði
því orðið að bíða næsta þings, en það
þykir bæði oss og dómsmálaráðherra
helst til mikill dráttur.
Pro secundo:
Hvorki vjer nje dómsmálaráðherra
höfum gengið þess duldir, að svo gæti
farið, að mótþrói risi upp hjá þessum
ölvuðu mönnum gegn því að láta setja
sig á land, því ekki vantar þrjóskuna
hjá svoleiðis piltum. Er þá alls ekki
óhugsandi, að þeir ölvuðu verði marg-
falt mannfleiri og ofjarlar hinum, sem
engan dropa hafa fengið. Getur þá svo
farið, að þeir ölvuðu setji þá óölvuðu í
land og ráði lögum og lofum yfir skip-
inu. Má þá' geta nærri, hvernig fer und-
ir slíkri stjórn, og sennilegast, að þeir
ölvuðu setji skipið í land, í stað þess að
vera settir þangað sjálfir. Segir Þorv.
Pálsson það mjög óvíst, hvort vátrygg-
ingarfjeð fáist greitt, ef sjótjón verður
með þessum hætti, vegna þess að dæmi
slíks muni hvergi finnast.
Pro tertio:
Er það grunur vor og dómsmálaráð-
herra, að þeir ölvuðu, sem settir eru í
land, muni bera þungan hug til þeirra,
er komið hafa þessu til leiðar. Er jafn-
vel alls ekki óhugsanlegt, að af þessu
magnist hatur og fjandskapur til stjórn-
arinnár fyrir tiltækið. Þetta er því
ískyggilegra þegar þess er gætt, hvílík-
ur fjandafjöldi þetta getur orðið, þar
sem megnið af þeim íslendingum, er á
sjó ferðast, geta fylt hann, auðvitað að
undanskildum Felix og Pjetri, sem
aldrei drekka á sjó.
Að öllu þessu athuguðu finst bæði oss
og dómsmálaráðherra það rjett, að til-
laga „Storms" sje samviskusamlega at-
huguð, og höfum komist að svofeldri
niðurstöðu:
Pro primo:
Sje ölæðingum varpað í sjóinn, þarf
enga geymslu nje girðingar, og sparast
við það ógrynnin öll af sementi, gadda-
vír og þingtíma — að vísu tapa þeir
Jón Þorláksson, Helgi Magnússon &
Co. og þingmenn við það, en í það
verður ekki horft, — því komist þeir
ekki á land, er ekki um það að fást, og
hefir farið fje betra, en komist þeir
Enskar úrvalsbækur
gefnar út hjá Tauchnitz í Leipzig
fást ávalt hjá undirritnðum.
Verð hvers bindis aðeins
kr. 2.25.
Innan skamms væntan-
legar miklar birgðir af
ágætum bókum eftir ýmsa
þá rithöfunda, sem vin-
sælastir eru og mest lesn-
ir i enska heiminum, svo
sem, Bernard Shaw, H.
G. Wells, Arnold Bennett,
John Galsworthy, Thomas
Hardy, G. K. Chesterton,
P. G. Wodehouse, W. W.
Jacobs o. fl., o. fl., enn-
fremur ýmsar sigildar
bækur eftir eldri höfunda. umm—m
Pantanir utan af Iandi afgreiddar fljótt og
bókaskrá Tauchnitz yfir 4800 enskar bækur,
send þeim er óska.
Flestar bestu skáldsögurnar, sem koma út
i Englandi, fást í Tauchnitz Edition nokkr-
um mánuðum síðar.
Bókaverslun Guðm. Gamalíelssonar
Lækjargötu 8.
af, er sennilegt, að af þeim verði runn-
ið, og þurfi ekki að skifta sjer af því
frekar.
Pro secundo:
Sje þeim ölvuðu varpað í sjóinn jafn-
skjótt og þeir hafa bragðað öl, er aug-
ljóst, þar sem ekki getur verið um neina
verulega samdrykkju að ræða, að aldrei
getur myndast neinn flokkur, er ógiii
friði og farsæld skipsins.
Pro tertio:
Hvorki vjer nje dómsmálaráðherra
óttumst þá dauðu heldur þá lifandi, og
komist þeir ölvuðu lífs af, mun kalda
baðið hafa kælt svo í þeim blóðið, að
heiftin kulnar og króknar, og fjand-
skapurinn fer burt með ölvímunni.
Fyrir því er það skoðun vor og dóms-
málaráðherra, að „Stormur“ hafi hjer
móti venju, hitt naglan á höfuðið. En
þar sem af því má sjá, að hann getur
þó gert eitthvað gagn, álítum bæði vjer
og dómsmálaráðherrann að banna beri
með öllu Stormsritstjóranum, sem er
ósyndur, að taka sjer far með Esju, því
lögin verða að hafa sinn gang, hver svo
sem í hlut á.
Ölœöisvördur Spegilsins.