Spegillinn - 01.11.1927, Blaðsíða 7

Spegillinn - 01.11.1927, Blaðsíða 7
SPB GILLINN 91 FJAUKOMaN OIcEÖingum útuarpað af fjallkonunni. Rthafnask rá fyrir hátíðahölðin á Þinguelii á lOOO ára afmœli Rlþingis, árið 1930. (Frh.) 14. dagur. KI. 8 f. h. Nokkrir ölvaðir menn úr Laug- i ardal settir í land á Þingvöllum. Kl. 12 á h. Felix Guðmundsson og Pjetur Zóphóníasson koma fljúgandi með eina flösku af slafarommi, er þeir hafa fundið í Hegningar- húsinu og afhenda hana áfeng- ismálaráðherra. Hann stingur henni i vasa sinn. KI. 4 e. h. Stór-inkvisitor Halldór Júlíus- son ríður á Þingvöll með vopn- aða sveit Bolvikinga og Hnífs- dælinga. Óhug slær á allan þingheim. KI. 8 e. h. Landlæknir og Hæstirjettur settir í gapastokk fyrir afskifti sin af reseptamálinu á ísafirði, Kl. Kl. Kl. 15. dagur. Kl. 8 f. h. Fiskifjelag íslands opnar sýn- ingu á tveim síldum, sem björg- uðust úr Krossanessbrunanum. Eru þær matreiddar á 107 vegu og er öllum heimill aðgangur að smakka. Enginn snafs. 12 á h. Skipuð sparnaðarnefnd til að athuga, hvernig hin sparnaðar- nefndin verði best spöruð. Leggur hún fram álit sitt áður en hátíðahöldin eru á enda. 4 e. h. Heilbrigðis- og starfsemismála- ráðherra þakkar sendiherranum frá Rockefeller fyrir hinn nýja letigarð, er hann hafi gefið landinu, og sæmir hann stór- riddarakrossi af Fálkanum fyrir. Sendiherrann þakkar sæmdina og kveðst hjermeð ákveða að gefa letigarðinn. 8 e. h. Skólinn á Laugarvatni opnað- ur af Guðmundi á Stóra-Hofi. Böðvar á Laugarvatni þakkar, en væntanlega enginn annar. Áskriftarlistar Spegilsins eru hjá bóksölum og Morgun- blaðinu. Efotoljsai <3>t<3>t<3>t<3>tí>tí>tý>tý>t<^t<3>t<3>t<3>t<3>tá Enginn getur verið Spegillaus!

x

Spegillinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Spegillinn
https://timarit.is/publication/349

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.