Spegillinn - 04.08.1928, Blaðsíða 6
118
S p e g i 1 1 i n n
15., III
@§0@0i0g0®0®080llc>80g@
© ®
| Leðurverslun |
j Jóns Brynjólfssonar g
f Reyjavík. J
© @
Q 5ólaleður — 5öðlaleður — Q
© Skinn (allskonar). ©
() Alt tilheyrandi skó- og söðlasmíði. 0
(j Einkasala fyrir:
(r? Fi/S. m. 1. Ballins Sönner, Köben-
(J havn. Framleiðendur hins heimsfræga
© Ballins kiarna. ©
0 og o
Uilh. Peöersen, Maskinfabrik, Höng, ^
() Danmark. Sem býr til allkonar vjelar til (/
ét skósmíðis og skóviðgerðar. Abyrgð fylg- @
() ir hverri vjel. ()
© k
©®o©o©o©o©«o®o®o@oso®©
stafanir, til fyrirhugaðra1 endurbóta á
skólanum utan og innan fyrir hátíðaárið
1930.
Pantað verður 180 þús. kg. af tilbúnu
kítti. Skal það ekki einungis notað með
gluggum og í rifur á veggjum, heldur
skal einnig jafna með því gólfin, svo að
ekki sjáist þar lengur lautir eða hólar
svo að teljandi sje. En um þennan lið
er afarerfitt að gera nákvæma áætlun,
svo að búast má við að þessi pöntun
verði alls ekki nægileg og er þá altaf
hægt að bæta við. Ennfremur skal kítta
í alla útskurði á veggjum og á borðum
og þau einu þess konar listaverk látin
ósnert, sem sjerfræðingar telja að geti
verið eftir Jón Stefánsson. Skulu um
þetta dæma þeir einu listamenn, sem
ekki eru skildir, tengdir eða á einn eða
annan hátt háðir íhaldinu. Allur kostn-
aður við þetta verður tekinn af brenni-
vínssektum.
Þá verða pantaðir 380 strangar af gólf-
teppum frá Bryssel og 560 do. frá Smyrna.
Eiga teppin að vera af mismunandi gerð
og gæðum og verður þannig tilhagað,
að busarnir fái þau lökustu, en fari svo
hlutfallslega batnandi eftir því, sem ofar
dregur í skólanum. Hjá dimittendum
skulu vera þrjú lög af teppum, en hjá
kennurum tíu.
Pappa allan skal taka eftir þörfum
hjá Sveini Jónssyni & Co. Skal hann
þar njóta langrar og góðrar bindindis-
starfsemi, en ekki tekið tillit til póli-
tiskra skoðana. Vel verður hann þó að
gæta þess að hafa altaf til bætur af
sömu gerð, er bæta þarf, svo að þær
verði ekki mislitar eins og nú á sjer stað.
38 smálestir af allskonar farfa mun
þurfa til málningar á skólanum. Þarf
ekki að taka það fram, að þetta er bæði
að utan og innan. Þar sem kíttað hefir
verið í krot og útskurði skal mála vand-
lega yfir. Þó skal sjerstaklega tekið
fram, að yfir þessa áletrun: „Á þessu
borði situr kcerastan mín“, skal þrímál-
málað, vegna þess að þetta er sennilega
ósatt, en aftur á móti skal ekki mála
nema einu sinni yfir þann kennaravitnis-
burð: „N. N. er djöfuis drullusokkur og
delerantvegna þess að þetta gæti
verið satt.
Sjerstakt stórhýsi þarf að reisa fyrir
fatageymslu skólans. Fer sennilega best
á því að það standi á Skólavörðuholtinu.
Til þess þarf að panta ca. 1. milj: stk.
af fatasnögum.
Ógurlega loftdælu þaif að fá til þess
að dæla burt óloftinu á göngum skólans
Því eins og kunnugt er hefur sú sem
nú er, dælt óloftinu úr bekkjunum út í
gangana, þar sem það hefur safnast
fyrir. Þarf hún að vera geysi kraftmikil
til þess að ódauninn leggi ekki inn í skóla
sr. Ingimars, sem engin veit hvar muni
standa, og því öruggast að dælan geti
spúið óþverranum út fyrir landhelgis-
línuna.
Fjögurþúsund og átta hesta Bolinder
þarf að fá í leikfimissalinn til þess draga
ofninn upp þegar eitthvað þarf að hlynna
að honum, og sparast með því bæði
tími og mannafl.
Fjósið skal rífa og setja glerhús í stað-
inn. Mun á sannast, að því meira gagn
verður jað ljósfræðiskenslu þvi meira
sem keinst inn af dagsljósinu.
Sexhundruð þvottaföt 80 spegla og
900 kg. af reykelsi skal panta til salernis-
notkunar.
Þetta ofantalda er að eins Iítið brot
af því, sem gera á, en hjer er ekki
rúm til frekari frásagnar. Skal að end-
ingu að eins bent á að hjer sannast best
þetta, spakmæli Hagalíns: »Ef allt væri
gott, sýndíst engum það gott.« Ef íhaldið
hefði gert skyldu sína við skólann, mundi
minna bera á því hve vel hann verður
úr garði gerður það mikla ár 1930.
Skólaskodari Spegilsins.
BlMskers og bailfaldera.
|t^^ULLFOSS var nýkominn. Tra la la
iMjJ) lalala lala la. — Frú Blindskers
var ag hressa Annettu dóttur sína
með kaffisopa og spyrja hana spjörun-
um úr, um norðurförina og gleðskapinn.
»Við dönsuðum bæði á sjó og landi
eftir því hvar við vorum stödd, en þó
vantaði eiginlega alveg dansstjóra«. —
— »Byrjuðuð þið virkilega strax að dansa,
hjerna í hafnarmynninu?« — Onei, við
byrjuðum fyrir alvöru á ísafirði, við þurft-
um sko fyrst að kynnast dálítið, því
ókunnugir geta ómögulega dansað svo
nokkurt púður sje i«. — »Jeg skil það,
Annetta mín. Á ísafirði hafið þið öll
verið orðin að nokkurskonar stúku. Á
Sigló hefir víst dansinn gengið glatt«. —
»Gefðu mjer kalt vatn, mannua, jeg held
að mjer sje nærri því að verða flökurt«.
— »Svo hafið þið komið til Akureyrar,
þar hefir víst verið gaman að koma«. —
»Já, voðalega, við dönsuðum fram á nótt
og svo fórum við fram að Saurbæ«. —
»Hvað voruð þið að gera þangað, var
nokkuð varið í að flækjast upp í sveit?«
— »Ojæja, við dönsuðum dálítið í hlað-
varpanum og fórum svo aftur til Akur-
eyrar og dönsuðum í samkomuhúsinu«.
— »Er nokkuð fallegt í Eyjafirðinum?
Sumir láta svo mikið af náttúrunni þar«.
— »Jeg man hreint ekki hvort við kom-
um í Eyjafjörðinn og nátturuna ljetum
við skeika að sköpuðu með. En til baka
dönsuðum við voðalega mikið og frá
Stykkishólmi var mest gamanið, því þá
settum við öll upp grímur. Leiðinlegast
þótti okkur að verða að hætta í Eng-
eyjarsundi, en þá sleit Karl síðasta streng-
inn á fiðlunni sinni, annars hefðum við
getað dansað tiu minútum lengur«.
Svo sofnaði Annetta litla en mamma
Blindskers hristi höfuðið. Hún var að
hugleiða hvernig útkoman hefði orðið,
ef Gullfoss hefði farið til Orkneyja og
Noregs og komið við í köbenhavn.
Bob.