Spegillinn


Spegillinn - 25.05.1929, Blaðsíða 7

Spegillinn - 25.05.1929, Blaðsíða 7
iö., IV S p e g i 11 i n n 19 Nordal. Frá Ijasmyndastofu 5pegilsins. Próf Essorar. I. Velden. Fi. Dagbók. Frá frjettastofu Spegilsins er oss simað: Söngflokkur Sigfúsar lagði á stað til útianda í gær og tók fólkið lagið er það fór og voru 3 blómvendir á eftir primadonnu flokksins. Bærinn er nú ilia staddur ef eittlivað kemur fyrir, t. d. komi Hassel eða Lindberg, þar sem engin er nú sem hann getur reitt sig á til að rietta þeim blómvendi, þar sem hin útvalda conserterar nú með Sigfúsi og hans flokki: Líklega tekur Bæjarstjórn mál þetta og vandræði fyrir. Frá sama stað er oss simað: Kappreiðar á annan i Hvitasunnn fóru prýðilega fram og allir kláruðu hið nýja hættuhorn án þess svo mikið sem skekktist einn klár, og sýnir það snild reiðmanna. Eins og vant or varð »Sjússinn« fyrstur og bendir það á, að gæfa fylgir nafninu, sem ekki má nefna í templarahóp og er svo sagt, að þeir nefni hann ekki annað en prímus er þeir eru á veðreiðunum til virðingar við prímus- inn, sem áður spilaði mikla rullu á kaffikveldum systranna. Frá saina stað er oss símað: Innan skamms verður mikil breyting á útliti bæjarins, þar sem flestir munu nú farnir að sá allskonar blóm- fræi fyrir framan húsin t. d. valmúum og hýasintum. Verður af þessu hin mesta bæjarprýði ekki siður en girðingunni kringum safnhús Einars Jónssonar við Skólavörðuna. Lögreglan hefir nú athugað ruslið, sem víðast hvar er fyrir utan hús bæjarbúa og er nú kominn kraftur á hreinsunarstarfið og garðyrkjuna. Frá »Brautinni« er oss símað: Jámbrautin fyrirhugaða á örðugt uppdráttar, þvi bílum fjölgar nú svo, að menn hljóta að vita að hún sje dauöadæmd. Eftir síðustu bílahrotu með Gullfossi og Lyru, má gera ráð fyrir um 30 drossíum með hverri ferð I sumar. Er illa farið ef járn- brautin lognast út af, því það verður stór skaði fyrir »Brautina« er hún missir aðal ritgerðarefni, en landsmenn tapa þó engu, þótt það hins- vegar sje ófært, að ríkið geti ekki talað með, er um járnbrautakerfi ræðir t. d. er það sendir menn á alþjóðafundi, þar sem allir geta gort- að af járnbrautum m. fl., en sendimaður hefir þar ekkert að segja. Járnbrautarstúf verðum við að fá hið bráðasta svo við í þeim tilfellum getum minnst á járnbraut og þá er tækifærið til að gorta og ljúga meir en helming um stærð og rekstur. Tilkynning. Verið er að athuga lóð undir hið veglega hús Spegils- ins og áætlun byggingar var þegar gjörð, en við endurskoðun á teikn- ingu kom sá galli fram, að gleymst hafði að reikna cement, sem í bygg- inguna þurfti, scm er steinsteypuhús. Var húsið mjög ódýrt eftir fyrstu áætlun og gleypti Spegilsstjórnin við tilboðinu og sló sjer strax vixil, en við síðari athugun kom bobbi í bátinn þar sem húsið verður miklu dýrara eu áætlun sýndi, en slíkt er nú svo almennt, og það eru líka þeir svartsýnu i stjórninni, sem mæla með að byggja ekki fyr en í maí 1930, en fagurt verður húsið, með kalkón, 3 kvistum og kjallara. Tilkynning Hið 999. Alþing Islendinga varð bráðkvatt síðastliðinn laugardag. Mun þess lítið verða minst síðar. Frá Vísi er oss símað: Herra fyrv. sýslumaður Sigurður Þórðarson er byrjaður á skriftamálum sinum hjer í blaðinu og hveðst aldrei hafa dregið sjer vöxtu af búfje. Athugasemd Spegilsins: Það er ánægjulegt að heyra, að gamli maðurinn skuli vera farinn að renna huganum yfir liðna æfi og leita að drýgðum ávirðingum og yfirsjónum, ef að nokkrar skyldu finnast. Má þá nærri geta að jafn vandaður maður muni hafa byrjað skriftamál sitt á þvi sem hann áleit verst og varhugaverðast og halda síðan áfram eftir lækkandi skala. Má telja mjög líklegt að þessi ieit verði afar erfið og hann muni fátt finna, sein til ávirðingar geti talist. Helst væri hugs- anlegt að einhver ofurlítill neisti findist af löngun til þess að vera þeim náunga sínum til bölvunar, sem hann ber einhvern kala til, en smávegis rækni í þá átt getur tæplega til yfirsjóna talist. — Annars er það mjög gleðilegt að það skuli þó vera til einn Farisei á meðal allra þessara ber- syndugu toilheimtumanna.

x

Spegillinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Spegillinn
https://timarit.is/publication/349

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.