Spegillinn


Spegillinn - 27.09.1930, Side 8

Spegillinn - 27.09.1930, Side 8
152 Spegillinii 17., V. vegna blóma þeirra, er hann hefir inni að halda á vetrum. Senda allir betri sveitabændur dætur sínar þangað til náms, en kaupstaðarbúar nota hann lítið og snúa sjer frekar til Sívertsen. Bændakjötiö. í fyrra auglýsti Sláturfjelag Suður- lands, að það keypti ull af meðlimum sínum, en líklega hafa sveitakarlarn- ir ekki þótt góðir til ullar, því nú um daginn skýrir Moggi frá því, að mikið af íslensku bændakjöti sje komið á markaðinn. — Ennfremur talar sama blað um það, að Tryggvi Þórhallsson hafi ekki viljað kaupa kjöt af íslensk- um bændum, heldur hafi hann keypt reiðinnar fyrn af kjöti af dönskum svínum og alikálfum, en íslenska bændakjötið hafi víst ekki þótt nógu fínt. Á þessu hneykslast svo Moggi, og er svo að sjá, sem hann álíti ekki þetta bændakjöt svo gróft, að ekki mætti svæla því í sig, ef þetta baunverska svínakjöt væri ekki komið inn í land- ið til að spilla fyrir markaðinum. En Alþýðublaðið tekur þessari fregn með miklum fögnuði, og tekur hana þeg- ar upp til þess að gleðja lesendur sína. Spegillinn er, eins og allir vita, social-kommunistiskt-framsóknar- og stjórnar-blað og erum vjer því afskap- lega sammála samherjum vorum, bols- um, að þetta sje mikið gleðiefni, og ber margt til þess. í fyrsta lagi er gott til þess að vita, að þarna er komin ný vara á markaðinn, og það vara, sem ómögulega getur verið dýr, því hing- að til hefir þessu altaf verið fleygt eins og hrossakjötinu í gamla daga. Það er því alveg víst, að þetta getur orðið mörgum flokksbræðrum vorum björg í búi, því bændakjöt er þó altaf lullgott handa alþýðumönnum. Það er alt annað þótt sjálfur forsætisráðherr- ann vilji ekki leggja sjer það til munns. í öðru lagi þykir oss mjög vænt um, að þessi vöruframleiðsla skuli koma niður á bændum, því þeir verða aldrei jafnaðarmenn hvort sem er, — sem ekki er von —, og er því ekki hægt að hafa meira gagn af þeim á crli>(?^!)cn!)^a6n!)cn5)(7^S) (sr^Ðfer^ Hr. 400,- Hr. 300,- íríha °ílaumarm Sportvöruhús Reykjavíkur Einar Björnsson. Bankastræti 11. — Sími 1053. — Heimasími 553. — Box 384 — Reykjavik. MMMMMMMMMMMMM5 ÖBrv)&\)Cn!)én!)(7^DéHi)tr\b^\)^!)6r\)^Dun5)(7^ <sr^b(írAi) enb(snbCnb6r\)Crli)(SnS&4b(?>l)&rv)un!)én!)(?vb(?vb(3 annan hátt en þennan. Þá má ekki glevma því, að þetta er gleðilegt tákn tímanna, því það bendir til þess, að íslendingar sjeu nú loks að læra að semja sig að siðum þeirra öndvegis- þjóða, sem „Kannibalar“ nefnast, og er vonandi, að sú stefna haldi áfram að þvóast. En þess má geta, að Kanni- balar hafa, að því er vjer höfum heyrt, mjög svipað stjórnarfyrirkomulag og sömu siðferðisskoðanir og vjer jafnað- armenn berjumst fyrir. En það hafa nú reyndar Eskimóarnir líka, og jeta þéir þó ekki bændakjöt, en þeir jeta selkjöt, sem einnig er gróft, svo mað- ur ekki nefni hvalaþvestið, semerallra kjötva grófast; enda segir Knud Ras- mussen, að Eskimóar hafi algerlega kommúnistiskt stjórnarfyrirkomulag og eru því öllu fremri en venjulegir Tímabolsar. Svo er það, að vjer jafn- aðarmenn viljum berjast fyrir því, að jarðirnar verði teknar af bændunum, en bað hefir því miður ekki fengið góð- an byr ennþá, og höfum vjer því ekki þorað að setja það mjög á oddinn að f.vo stöddu, heldur ætlað að bíða betri tíma. En Ólafur Dan. segir, að það sje sama í hvaða röð tölustafir sjeu lagð- ir saman; það ætti því að vera alveg eins mikið þjóðþrifaverk að taka bændurna af jörðunum, og hlýtur að hafa nákvæmlega sömu afleiðingar. Vill Spegillinn því beita sjer fyrir því, að hin síðarnefnda leið verði heldur valin, því samkvæmt þessari fregn virðist hún vera mjög auðveld, og er auk þess miklu öruggari og hættu- minni, því bændurnir gætu kannske látið sjer mislíka, og hætt að kjósa jafnaðarmenn á þing, ef jarðirnar væru teknar af þeim, en jarðirnar myndu ekkert gera, þó að bændurnir væru teknir. Að svo mæltu viljum vjer skora á alla góða menn að nota sem mest af þessari nýju vörutegund, svo hægt sje sem fyrst að bæta nýjum birgðum á markaðinn. Alþýðumenn, kaupið kjöt af íslensk- um bændum! Virðingarfylst. Sláturfjelag Spegilsins.

x

Spegillinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Spegillinn
https://timarit.is/publication/349

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.