Spegillinn


Spegillinn - 11.10.1930, Blaðsíða 8

Spegillinn - 11.10.1930, Blaðsíða 8
160 S p e g i 11in n 18., V“ ara, því þar voru, sannast a'ð segja, niarg'r kallaðir en fáir útvaldir. Úrvalsnefncl Spegilsins. Víkingslund Islendinga. Þegar forfeður vorir — sem altaf er verið að hvetja oss til að líkjast — fóru í víkingu og gerðu strandhögg, var það vani þeirra að ræna því, sem fingur á festi, en spilla því, er þeir máttu ei með sjer haía. Þetta gerði bæði Egill Skallagrímsson og ýmsar aðrar íhaldsbullur, sem verið er að segja, að vjer sjeum komnir af, um leið og verið er að fárast yfir úrkynj- un hins norræna öndvegisstofns. Að mínu áliti er þetta ekki annað en böl- sýni, því dæmin eru deginum ljósari, að vjer erum ótrauðir til stórræðanna, er í það fer. Aldrei stal Leifur heppni víkingatrillubáti til að leggja á honum einn saman út á hið opna haf, að haustlagi, og aldrei stal Egill Skalla- grímsson kompás og bensíni, svo sag- an hermi. Og svo minst sje afreka á landi, þá kom hjer fyrir skemstu at- vik fyrir, sem sýnir berlega, að menn geta brotist inn í hús, rjett eins og í gamla daga, nema hvað aðferðin er miklu raffineraðri nú, sem við er að búast með vaxandi siðmenningu. Á síðari árum er það alsiða, að ryk- aðir Reykvíkingar og efnaðir, draga sig út úr bæjarrykinu og hafast við á sumrin í svokölluðum sumarbústöðum í nærsveitunum. — Er þetta stórmikil framför og sýnir eflingu auðvaldsins, ])ótt sumir tel.jí ekki framfarirnar hafa komið mjög niður á byggingarlistinni. Eru sumarbústaðir þessir tilvaldir til að gera innbrot í þá — þ. e. a. s. hvað sportið snertir, því ábati er sjaldan mikill, en það er klaufaskap gestanna að kenna, því þeir koma sjaldnast fyi' en búið er að flytja alt fjemætt burt. Þó var hjer fyrir skömmu gerð und- antekning frá þessu, og var sýnilegt, að hjer var meiri vitmaður að verki en plagar að vei’a. Svo er mál með vexti, M H M Jir. 400,- 7ir. 300,- IHhú \<Tlaumann Mmr Sportvöruhús Reykjavíkur Einar Björnsson. Bankastræti 11. — Sími 1053. — Heimasimi 553. — Box 384 — Reykjavík. að borgarstjóri vor hefir í sumar bú- ið í kastala ali-ramgjörvum inni við Elliðaár. Var kastali þessi upphaflega bygður af Englendingum nokkrum, er stunduðu laxveiðar h.jer um aldamótin, en nú mun hann eign bæjarins, eins og árnar, sem einnig voru um eitt skeið í erlendi’i eign. Var borgarstjóri ný- fluttur til borgar sinnar, er atburður- inn gerðist, en hafði þó enn eigi hirt pjönkur sínar úr húsinu. En er þær skyldi sækja, var vart við mann, er forðaði sjer með miklum hi’aða frá húsinu, og stefndi upp til óbygða. Og er komið var í húsið, sást að þar höfðu gestir vei’ið. Fundust þar meðal ann- ai’s gúmmískór, sem vart mundu hæfa men.nskum mönnum, heldur tröllum eður útilegumönnum, en hins vegar voru sunnudagaskór' borgarstjórans á bak og bui’t, svo og kápa, er hann hafði fengið í tannfje, og fleiri fatn- aður. Nokki’ar niðursuðudósir höfðu verið sprengdar upp með dynamíti og innihaldið jetið, þó hafði gestinum ekki geðjast að innihaldi grísasultu- dósax- einnax', er þar var, og látið það mikið til í friði. Til þess að gera sjer lífið þægilegt, hafði hann sett straum á í’afmagnsofn, er þar var, og var því hlýtt og notalegt í skálanum. — Ber sagnfi’æðingum saman um, að það hefði Egill Skallagi’ímsson aldrei gert, heldur hefði hann tekið einkasölueld- spítu fi’á Kreuger úr vasanum og kveikt í kofanum. Heldur ekki hefði hamx forsmáð grísasultu, því Egill var enginn gx-asbítur, heldur ljet hann ó- vini sína ,,bíta grasið“. Og það var einmitt þessi dós, sem kom upp um fíl- inn, því auðsætt þótti, að hjer hefði vic- laus maður vei’ið að verki, að skilja eftir slíkan höfðingjamat. Enda kom það á daginn, að þegar Sherlock Hol- mesar vox’ir höfðu afvatnað í sjer heil- aixa um hríð, sýndi það sig, að gest- urinn var einn af kostgöngurum Lár- usar doktors á Kleppi. Hafði honum þótt þar matvist ill, og viljað pi’óL'a lií'naðarhætti höfðingjanna, en komist að sömu niðurstöðu sem kellingin, að ,,ekki er alt gott, sem höfðingjarnir boi’ða“. Boryarstjóri Spegilsins. Alþingismannatal Spegilsins fæst hjá öllum útsölumönnum vorum.

x

Spegillinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Spegillinn
https://timarit.is/publication/349

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.