Spegillinn


Spegillinn - 01.12.1932, Qupperneq 3

Spegillinn - 01.12.1932, Qupperneq 3
21.—22.,'VII. Spegillinn. 163 ^Hííðdal klíppír á símastólkurnar. SímastúiKurnar. [[In mEmonam]. SPEGILLINN heíir beðið mig að reyna að vinda úr mjer nokkur tár yfir síma- stúlkunum, sem verða sálugar þegar þetta er lesið. Sjálfur er hann svo að fram kominn, að hann treystir sjer ekki til þess, og sama get jeg sagt fyrir sjálf- an mig, en hvað um það; ekki dugar að þær liggi óbættar hjá garði, blessan- irnar þær arna, sem nú um mannsaldur hafa tekið svo mikinn þátt í kjörum allra bæjarbúa og óbeðnar fengið enn fleiri til að taka þátt í þeim. Við lát símastúlknanna mun það sann- ast mjer eins og fleirum, að »enginn veit hvað átt hefir fyrr en misst hefir«. Er það í þessu tilfelli vel farið, að mað- ur skuli ekki vita það fyrr, nóg er mað- ur búinn að syndga í munninum við blessaðar stúlkurnar, og ennþá meir myndi maður hafa syndgað, ef maður hefði Jkunnað að meta þær^ rjettilega. Mega þær verða fegnar að fá hvíldina, því valla er vafi á því, að þær verða nýjar og betri manneskjur, er þær fá að njóta sín á heppilegri sviðum. Ef til vill hættir þeim, til að byrja með, til að segja »á tali«, ef einhver vill biðja þeirra, en það mun brátt fara af og þá verða þær vafalaust menn til að gefa sjálfum sjer vitlaust samband, fyrr eða siðar. Átómatus Símonsen. 'iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiHiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuiiiiiiiiHiiiiimiuiiiimiiiimiimmiiiimiimiimmmmiiiiinimiiiiiuiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuiiuiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii Pistlar. Veðrið hefir, líkt og endranær, verið eins og veðurstofan hefir sagt, að það myndi ekki verða. Bregður þó stundum út af því, og er það illa farið. Uppþotið. Lítið hefir enn frjettst hvernig Kristjáni gengur að sansa flibbakommúnistana. Sennilega verða þeir álíka tregir til and- svara eins og til þess að leggja sig í hættu í bardögum og öðrum mannraun- um. Til þess eru þeir flibbalausu brúk- aðir og láta brúka sig með ánægju, því virðinginn fyrir flibbunum er ekki upp- rætt hjá kommúnistum heldur. Hermann segist hafa tekið það upp hjá sjálfum sjer að skipa Erling foringja lögreglu- liðsins. Sýnir þetta (ef það þá bara er satt), að Hermann er slunginn, þó hann fari vel með það. Annars ku varalög- reglan vera i fullum gangi að smíða sjer eikarkylfur, fyrir gamlárskvöldið, og segir Hjeðinn, að þeir muni fá 16 krónur á dag fyrir. í sambandi við þetta mæiti benda á ráð til að losna framvegis við öll uppþot út úr atvinnubótavinnunni. Ekkert annað en láta þá, sem atvinnu vantar, í varalögregluna, úr því það er svo vel borgað, að þeir munu vel við una. Til þess þó, að varalögregluliðið geti sagst hafa tekið þátt í barsmíðum, sem til heyra þeirra starfi, er ekkert annað fyr r þá en að berjí sjer, þegar þeim er kalt, sökum aðgerðaleysis.

x

Spegillinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Spegillinn
https://timarit.is/publication/349

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.