Spegillinn - 18.06.1943, Blaðsíða 4
SPEGILLINN XVIII. 12.
IilllliiiilllllllllllllllllllllIIlllllllllllllIIllllllllllllllllllllllllliilllllilllilli||iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiMlllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllll11111111111111111111111111111111111111 llililllliiiiiiiililiiiiii iiil iii iiiiiilliliiiliiiiiiiliiuiP'llr-
nú liggja á bæn um það, að úr þessu verði tvíburar, því að
hann er eins og fleiri að vilja fá sem mest fyrir peningana.
Annars þekki ég Sjappa vel, enda drakk ég með honum te
í síðustu Ameríkuför minni. Hann er afskaplega blátt áfram,
og alveg eins í daglega lífinu eins og í kvikmyndunum, nema
hvað stóru skórnir voru í viðgerð, svo að hann brúkaði ekki
nema nr. 50, þennan dag, og eins hafði hann skilið yfirskegg-
ið eftir heima á náttborði.
Þá er Lárus búinn að vinna málið gegn því opinbera, og
var tími til kominn, að hann fengi einhverja uppbót fyrir
hitt áfengismálið ,sem hann tapaði forðum. Þykir lögregl-
unni súrt í broti, og að vonum, en ætlar að ná sér niðri með
því að búa til módel af Lárusi og æfa sig að skjóta á það, inni
í Vatnagörðum, að næturlagi.
Hér er mér sagt að hætta.
Hugsuður SPEGILSINS.
Hirðisbréfið.
Þjóðviljinn er daglega að birta valda kafla úr hirðisbréfi
Jónasar til flokksmanna sinna, og hnýtir auðvitað aftan við
það sínum athugasemdum, sem heldur ekki er nema sjálfsagt,
þar sem Jónas gerist torskilinn. Meðal annars segir blaðið,
að Jónas fái heldur ekki inni með afurðir sínar hjá Degi á
Akureyri, og leyfum vér oss að birta mynd af því hér á blað-
inu í dag. En svo kemur Vísir og segir, að þetta sé lýgi —
Jónas sé velkominn með langhundana í Dag. Ekki getum vér
farið að afturkalla myndina, af þessum orsökum, enda rámar
oss eitthvað í að hafa einhverntíma heyrt nefnda ,,Vísislýgi“.
Hreinlætisvikan.
Fyrir allmörgum árum, meðan enn eimdi eftir af dönskum
áhrifum hér á landi, varð oss það að orði í'þessu blaði, í sam-
bandi við „íslenzka viku“, sem einhver framkvæmdamaður
efndi til, að hinar vikurnar í árinu — 51 talsins — myndu
eiga að verða danskar, eftir sem áður. Nú á þetta dönskutal
ekki lengur við, þar sem öll höfuðvígi dana hér á landi eru
fallin, nema hið ágæta blað ísland og svo matséðillinn á Hótel
ísland, og hin göfuga þjóð í vestri (sem einhver skírði svo,
eftir að hafa hlustað á útvarpið hennar) er komin í staðinn.
Forráðamenn yfirstandandi hreinlætisviku munu hafa haft
þetta eitthvað í huga, og þótt nokkuð mikið að hafa 51 skít-
uga viku eftir sem áður, og því tekið það snjallræði, þvert
ofan í alla stjarnfræði og kalendaria, að hafa hreinlætisvik-
una ferfalda að lengd, eða með öðrum orðum heilan mánuð,
reiknandi hárrétt sem svo, að meira er hægt að láta ógert á
mánuði en viku. Svo virðist sem máttarvöldunum hafi ekki
þótt bæjaríhaldið líklegt til stórra framkvæmda, eða að
minnsta kosti viljað lofa því að sjá til við hreingerninguna,
því að síðan vikan hófst, hafa þau alfarið séð fyrir hinum
mesta vágesti vorum, göturykinu, og bæjaryfirvöldin hvergi
þurft nærri að koma, sem líka hentugast var, og vatnsbíllinn
þarf alls ekki að skríða úr híði sínu, fremur en endranær.
Sem sagt er höfuðborgin óvenju hreinleg í hreinlætisvik-
unni, eins og líka vera ber, en ekki eru það mannaverk, held-
ur kemur það að ofan, með rigningunni. Það er náttúrlega
ósköp gott og fallegt af yfirvöldunum að hvetja fólk til hrein-
lætis, en samt myndi það gefa helmingi betri árangur ef
100