Spegillinn - 11.01.1946, Blaðsíða 5
XXI. 1
SPEGILLINN
„Nú er eins og hundur liund
hitti á tófugreni“ mega vesa-
lings kommarnir raula. Alit í
báli og brandi milli Sjálfstæðis-
ins og Moskvamannanna í höf-
uðborginni Og „Þjóðviljinn
veinar: HvaS meinar Sjálfstæð-
ið með þessu — að vera að ráð-
ast á lýðræðið í landinu okkar i
Hvað hafa mínir menn til saka
unnið? Það eru þó ekki nema
fáeinir mánuðir síðan Olafur
Thors og Einar Olgeirsson. og
Bjarni borgarstjóri og síra Sig-
fús stigu dillandi vangadans
frammi fyrir alþjóð í fyrirmynd
ar ástandsstemmningu.
Um nýársdagmn og veginn
Ég sat og var að velta því fyrir mér, hvort
spilamenn hlytu ekki að vera ásatrúar, þegar
dyi’um var hrundið upp án frekari málaleng-
inga og inn vindur sér borgarstjórinn okkar
— hinn glæsilegi, ungi, sem Moggi kallar svo.
„Gleðilegt kjarnorkunýár, Jónki!“, hvæsir
hann út úr sér, „þú getur eins talað við mig
um daginn og veginn eins og einhvern annan,
í þetta sinn.“
„Ókei. Spýttu!“
„Það er nú fyrst og fremst ráðhúsið okkar“,
segir stjórinn. „Ég er hérna með teikningu
af því, sem þeir hafa gert í'E.K.....“
„Svo það er auglýsingateikning? Lofsveið
hreinskilni“, tautaði ég.
„Hún er ekki verri fyrir það. Hér sérðu, að
húsinu er ætlað pláss í miðri Tjörninni...“
„Loksins höfðuð þið mannsmóð í ykkur til
að stynja því upp“, sagði ég.
„Já, það var ekki hægt að bíða með það
lengur. Þú veizt eins vel og ég, að öll bæjar-
yfirvöld, sem hér hafa setið að völdum í
manna minnum, hafa viljað Tjörnina feiga,
enda hefur hún gengið lofsamlega saman, eft-
ir því sem árin hafa liðið, og því ekki að stíga
nú síðasta skrefið....“
„Ég sé eklci betur en hér sé fullt af vatni
kring um hana“, segi ég.
„Vitanlega verður það fyrst um sinn, og
þessvegna eru þarna vindubrýr, sem verða
dregnar upp, ef fjandsamlegir rukkarar sjást
koma lúskándi einhversstaðar. En meiningin
er, að hún fyllist smátt og smátt upp af af-
fallinu frá okkur, og þá bara seljum við
brýrnar.“
„Það megið þið ekki gera, því þá fer heilt
þing og meira til, í það að ákveða þeim stað,
sbr. Ölfusárbrúna, sem verður sennilega að
slá í skeifur, sem enginn getur notað, vegna
j:ess, að rnenn koma sér ekki saman um, hvar
skuli setja hana.“
„Finnst þér þetta eklci nokkuð fallegt ráð-
hús?“, segir stjórinn.
„Elcki verður að minnsta kosti sagt, að það
sé stíllaust“, segi ég.
„Nei, við erum nú búnir að fá nóg af því
í íslenzlcri byggingarlist, og þessvegna var
ai’kítektinn undirstunginn um það að hafa
þarna alla stíla, sem hann gat uppgrafið“.
„Já, það er einhver munur eða þegar hann
Guðjón er að gera danskan stíl. En hvar verð-
ur bíóið?“
„Líklega verðum við að hafa bæði bíó, leik-
hús og banlca, eins og í Hafnarfirði, en ann-
ars var nú meiningin að sleppa við það og
velcja heldur ríkisstjórnina til að lclára Þjóð-
leikhúsið..“
„Afsakaðu, en það er nú kallað að vekja
UaAdWldUurL
Aðalumboðsmaður
fyrir Island:
ölafur Einarsson
vélfræðingur.
Sími 4340.
Poppirsvörur
Rillöng
Bókhaldsbækur
Verzlunin
Björn Kristjánsson
Pappirjdelld
H Benediklsson & Co
Reykjavík
3