Spegillinn - 01.08.1947, Page 10

Spegillinn - 01.08.1947, Page 10
136 5PEGILLINN Krónuvandræöi Margar breytingar, sem verða í lífi voru og viðhorfi, eru hægfara, þokast stig af stigi eða þróast, eins og það er stundum kallað. Stundum er þróunin örari en annars, en öðrum þræði verður hennar tæplega vart. Svo getur það líka komið fyrir, að hún taki stórt stökk, komi mönnum alveg að óvörum og óviðbúnum, sem oft kemur sér ákaflega illa, því ekki eru allar breytingar 'til batnaðar, eins og hefur verið fundið út fyrir löngu síðan. Upp á síðkastið var farið að bera minna á Blindskers- hjónunum, en á velmaktardögum þeirra var. Ekki má þó skilja þetta svo, að velmakt þeirra væri þrotin, eða farin Veg velflestra innstæðna. Hún lét bara minna yfir sér, enda er slíkt hollt og heppilegt, þegar önnur eins tíðindi og eigna- könnun standa fyrir dyrum, þetta sjaldgæfa fyrirbrigði, sem leiðir ýmislegt óvænt í ljós, og þar á meðal áhyggjuleysi fátæktarinnar, hvað sem það kann nú að vera. En svona geta öfugmælin orðið að veruleika á umbótatímum. Hjónin lifðu fremur einföldu lífi, héldu fáar veizlur en góðar, lásu blöðin og fóru þangað sem eitthvað var um að vera, jafnvel þótt kalt væri og rigning, og ræddu svo málin á kvöldin. En svo kom óvænt frétt og ill að þeirra dómi, sem raskaði sálarrónni í bili. Ég ætla nú samt að neita mér um að segja frá þessu strax, því að hið sérstæða form smá- sögunnar færi þá sennilega út um þúfur, en á því má ég vara

x

Spegillinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Spegillinn
https://timarit.is/publication/349

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.