Spegillinn - 01.08.1947, Side 14

Spegillinn - 01.08.1947, Side 14
14D SPEGILLINN undur varlega. Si sona. Og svo slá til. Ánumaðkaveiðarinn renndi sér á bráð sína með leifturhraða, en ánumaðkurinn hefur eflaust hlustað með athygli á tal okkar, því að hann hvarf eins og örskot niður í holu sína og veifaði til okkar með skottinu um leið. — Hann hefur heyrt til okkar, bölvaður, sagði veiðimað- urinn, rjóður af ákafa. — Þetta er bara spennandi, sagði ég. — Spennandi, huh, ég held nú það. Það er enginn spenn- ingur að veiða laxinn á móts við það að veiða ánumaðkinn. f því liggur allt sportið. — Hvernig farið þér að geyma hann, eitthvað verður hann að fá að éta. — í mosa og mjólk. Við kaupum handa þeim fyrsta flokks Búkollumjólk, barnamjólk, læknamjólk. Ánumaðkarnir vilja helzt ekki aðra mjólk. Þangað til hérna rétt um daginn, að þeir litu ekki við henni. Þá kom það líka upp úr dúrnum, að þetta var bara 3. og 4. flokks mjólk, léleg þó. Tíminn sagði það. Ég les ekki annað blað. Svo nú er ég í mjólkurvandræðum. — Heldurðu að Búkolla bæti sig ekki? — Huh, sástu ekki auglýsinguna kunningi, þar sem stóð, að kýrnar hætti að. mjólka í bili, á meðan verið sé að setja niður vélar og svoleiðis. Nei, þá vita ánumaðkarnir mínir betur. Því að þeir þora ekki að drekka mjólkina fyrir sitt litla líf. Annars hef ég heyrt að búið væri að innsigla allar beljurnar á Laxnesi. — Innsigla? Læknabúið væri að innsigla? — Nei, þér misskiljið mig. Ekki læknabúið, heldur að það væri búið að innsigla búið, ég meina beljurnar. Nú, auðvitað þeir sem vinna þarna og aðrir lánardrottnar. Og það kemur í sama stað niður fyrir læknana. Ekki græða þeir á því og ekki líta þeir eftir því, svo að þeir uppgotva það fyrst kann- ske á banadægri, að allt er farið til fjandans, liggur mér við að segja. — Já, jú, ságði ég. — Sjáið þér nú til, hér er einn, nei hann hvarf, þér megið ekki hrista jörðina, hann er svo viðkvæmur milli tólf og eitt. — Veiðið þér ekki laxa? — Nei, djöfullinn hafi það, liggur mér við að segja. Það er ekkert sport í því á móts við það að veiða ánumaðka. Það er sko kúnst, kunningi. Og miklu meira upp úr því að hafa. Ég sel minn maðk á 40 aura stykkið, stríðalinn og gljáandi af spiki. Svei mér þá, maður getur tárast af því að láta vini sína í hendur þessum afglöpum, stangarlandeyðum, sem ekkert kunna með þá að fara. Heldur þú að þeir muni eftir mjólkinni kvelds og morgna? Nei, ó, nei. Og ekki er nú litið eftir þeim, til að sjá hvernig þeir hafi það. Þér ættuð heldur að fara út í ánumaðkaveiðar heldur en laxveiðar, ég segi yður það satt. Þér komið bara heim með öngulinn í rassinum. — Öngulinn í —? — Já, ég sagði það. Þeir kalla það svo, þegar þeir fá ekki neinn laxinn, sem aldrei kemur náttúrlega fyrir sjálfa þá, heldur hina. Því, sem ég hef safnað hér á heilu kvöldi með ærinni fyrirhöfn, eyða þeir á einum klukkutíma í ekki neitt. Nei, mitt álit er, að ánumaðkurinn ætti að vera dýrari en laxinn, þá myndu menn koma sér upp ánumaðkasafni sér til augnayndis og það yrði stofnuð ánumaðkafélög út um allt land og eitt Ánumaðkasamband hér í Reykjavík, þar sem maður kannske slæddist inn sem formaður og svo gæfum við V erðlaunagetrauii Á forsíðu vorri í dag eru mörg þekkt andlit úr verzlunarstétt vorri. Þrenn verðlaun verða veitt þeim, sem þekkja flest andlitin og senda afgreiðslunni ráðningar sínar fyrir lok þessa mánaðar. 1. verðlaun eru kr. 150.00, 2. verðlaun kr. 100.00 og 3. verðlaun kr. 50.00. Verði tveir eða þrír með jafnan fjölda réttra lausna, verður verðlaununum skipt jafnt milli þeirra. Notið eftirlitsmyndina hér að neðan til að tölusetja nöfnin eftir. ö út náttúrlega ánumaðkablað: „Ánumaðkinn“. — En þegar þeir hafa engan ánumaðk, hvernig geta þeir þá veitt lax? — Þeir veiða hann nú ekki hvort sem er. Annars nota þeir sínar flugur, sem þeir kaupa hér í Veiðimanninum, gerviflugur, kunningi, með allavegana litum og allavegana nöfnum, þær heita Royal Scot, Blue doctor, White doctor, Black doctor og allavegana litir doktorar, þó að vísindalega sé sannað, að laxinn sé litblindur. — Já, þér segið nokkuð. — Segi ég nokkuð, já ég hefði heldur haldið það. Einn þeirra segir, að ekki sé viðlit að veiða heiðarlegan lax, yfir 10 punud, í vissum hyl í vissri á í vissum hrepp nema á Black doktor. Annar gefur sál sína fjandanum, liggur mér við að segja, upp á það, að hann veiði aldrei minni lax en 14 punda í sama hyl í sömu á og hann noti alltaf White doctor. Það þýði ekki að bjóða þeim löxum upp á annað. Og svo slást

x

Spegillinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Spegillinn
https://timarit.is/publication/349

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.