Spegillinn - 01.10.1947, Síða 6
164
SPEGILLINN
Borgarstjóri
sendir Moskvu-
búum heiliaóskir
Baldur Georgs: Hvað gerir þú?
Formaðurinn: Ég er formaður Apolló-kabarettsins.
Baldur Georgs: En hvað geri þá ég?
Formaðurinn: Þú skemmtir líka.
Baldur: Hvað er bezta skemmtifélagið í bænum?
Formaðurinn: Nú, auðvitað Apolló-klúbburinn.
Baldur: En hvað þá með Reykjavíkur-kabarettinn?
Formaðurinn: Hann er undirballans líka.
Annars mætti breyta ennþá meira til og selja skemmti-
kröftunum aðgang og láta þá sitja niðri í sal, en hleypa
áhorfendum inn á sviðið, einum í einu.
Nú er Alþingi í þann veginn að koma saman. Það mun
verða til lítillar blessunar fyrir land og þjóð, fyrir utan hvað
þrautleiðinlegt það er, að þeir Einar og Brynjólfur hverfi
að því, sem fyrr var frá horfið, að rífast við Bjarna Ben. og
Stefán Jóhann. Það myndi verða miklu frjósamara samstarf,
ef Einar og Brynjólfur byðust til að lækka kaup verkamanna
um fimmtíu prósent og Bjarni Ben. lofaði aftur á móti að
leita hvergi markaða nema í Rússlandi, — og Stefán Jóhann
lofaði því, að ganga með allan sinn her í „Sameiningarflokk
Alþýðu, Sósíalistaflokkinn“. Eysteinn og Hermann færu að
trúa á nýsköpun og gengju strax út úr þingsalnum, ef ein-
hverjum þingmanni hefði orðið mismæli og nefnt orðið
„hrun“. Hermann bæri fram þá þingsályktunartillögu, að
allir þingmenn og aðrir forráðamenn bæði fyrirtækja og
stjórnskipaðra nefnda létu af hendi bíla sína við eyrar-
vinnumenn og braggabúa.
Aldrei hefur verið meiri eftirspurn íbúða en í þessari
vetrarbyrjun. Það er líka eðlilegur hlutur meðan húsaleigu-
nefnd og svartamarkaðir hafa með sér nána samvinnu. Það
myndi mælast miklu betur fyrir, ef stór-húsaeigendur drægju
saman seglin og byggju í tveimur herbergjum í staðinn fyrir
fimm og upp í ellefu. Síðan ættu þeir að borga fólki, sem
vildi flytja inn, nokkur þúsund krónur, sem „ekki þarf að
gefa kvittun fyrir“. Það myndi ríkja miklu meiri ánægja í
þjóðfélaginu á eftir.
Útvarpið'þarf algerlega að breyta um vinnuaðferð á vetri
komanda. Helgi Hjörvar, sem hingað til hefur verið í öllum
dagskrárliðum, ætti nú að fá að njóta svolítillar hvíldar eftir
eigin ósk og bjóðast til að lesa aðeins veðurfréttir og texta
danslaga á plötum. í staðinn fyrir þrautleiðinleg erindi, upp-
lestur á efni, sem allir kannast við, og annað, sem er til mik-
illar armæðu fyrir æskuna í landinu, ætti að útvarpa Kóka-
kóla-dansskemmtunum æskufólksins sjálfs í Iðnó eða í Mjólk-
urstöðinni, einkum þegar Kóka-kólinn er farinn að svífa á
mannskapinn. Eins mætti útvarpa gáfulegum samræðum frá
Hótel Borg á tímanum 11 til hálf-12 á kvöldin. Þetta myndi
auka fjölbreytni og vinsældir útvarpsins að miklum mun.
Dagblöðin ættu öll í vetur að þreyta um tón og reyna,
hvernig væri að skrifa í stíl „Bjarma“ eða „Norðurljóssins“.
í staðinn fyrir „leiðara" og enn leiðara efni gæti Valtýr
skrifað „Minningar frá Möðruvöllum“ í framhaldsköflum.
Víkverja myndi láta mjög vel, jafn víðlesinn og hann er, að
fræða menn um Einsteinkenninguna eða kjarnorkuna.
íþróttafólk hætti að „kynna landið“ og birti ekki lengur
„íþróttaafrek" í blöðunum. Þjóðviljinn léti þjóðina fylgjast
með daglegu ástalífi Elísabetar krónprinsessu, en Morgun-
blaðið bæði afsökunar á að hafa nokkurntíma birt lygagrein-
arnar eftir þá Koestler og Nagy hinn ungverska. Vísir berð-
ist af alefli fyrir landsverzlun og auknum hátekjuskatti.
BORGARSTJÓRI
höfuðstaðar vors hefur nýskeð afþakkað veizlu, sem halda átti í
tilefni af 163 ára afmæli Möskvuborgar, og Stalin og Molotoff höfðu
boðið honum i, til þess ð striða ihaldinu. Höfðu þeir félagar þó keypt
inn vodka fyrir 20 þúsund kall, eins og taxtinn er hér. Bar borgar-
stjóri fyrir annríki, og var enginn fyrirsláttur, eins og sumir telja, því
að um þessar mundir var hann að ganga fram fyrir Búkollu (í eldra
máli kallað að ganga fram fyrir Skjöldu). Einnig var Bjarni Ben. boð-
inn til Parísar um líkt leyti, en fór hvergi, svo sem 2. síðan i Moggan-
um frá þvi tímabili nógsamlega vitnar.
Tíminn færi að trúa á framtíð landsins og afsala sér þátt-
töku í stjórn — og Alþýðublaðið færi að skrifa um hags-
munamál verkalýðsins. Hagfræðingarnir yrðu sammála um
lausn dýrtíðarvandamálanna og kæmu fram með þá einföldu
lausn, eftir allt moldviðrið, og Alþingi samþykkti hana, að
taka fyrir allt vöruverð, allt kaupgjald og allar eignir og
skuldir manna og deila í það með tveimur (eða jafnvel með
vísitölunni, ef hún væri ekki svo stórkostlega svikin, eins og
jafnvel sjálfir hagfræðingarnir eru farnir að benda á). Þá
gæti enginn annan öfundað.
Það bíða óþrjótandi verkefni til frumlegrar úrlausnar á
komandi vetri, ekki aðeins hið eiginlega vetrarstarf, heldur
og sumarstarfið, sem maður komst aldrei til að gera og er í
raun og veru vetrarstarf síðastliðins vetrar, ef ekki eldra.
Vér vonum að umbótatillögur vorar verði teknar til ná-
kvæmrar íhugunar ekki síður en Marshall-áætlunin, sem vér
með Gromikov höfum ekki mikla tiltrú til, enda komin úr
þveröfugri átt, og bjóðum því lesendum vorum með góðri
samvizku gleðilegan vetur!
Þj óðfræðingurinn.