Spegillinn - 01.10.1947, Side 14

Spegillinn - 01.10.1947, Side 14
172 SPEGILLINN Siggi: Þú ert ekki eins vitlaus og ég hef haldið, Tómas. Líklega er það til að kynna heiminum þessa nýju uppfynd- ingu okkar í stjórnmálum, að við sendum þrjá fyrrverandi forsætisráðherra á þing sameinuðu þjóðanna. Sumir voru að segja, að nóg væri fyrir okkur að hafa Thor, eins og Hollend- ingar hafa bara sinn sendiherra einan þarna. En það er víst alveg rétt, sem þeir halda fram, okkar reyndu stjórnmála- menn, að heimurinn getur ekkert lært af Hollendingum í stjórnmálum, sem gátu ekki einu sinni haldið Jövu fyrir Malajönum. Við getum kennt þeim. Og við sendum réttu mennina, forsætisráðherra og glímukappa, því að bæði Her- mann og Ólafur geta brugðið fyrir sig klofbragði og krækju, ef einhverjir Egyptar eða Gyðingar gerast uppivöðslusamir. En ég held að Bjarna Ben. hafi yfirsézt að senda ekki Sigur- jón með þeim. Tómas: Hvaða Sigurjón? Siggi: Auðvitað hann Sigurjón Pétursson. Bæði er hann glímukappi og svo hefði hann getað fengið einstakt tækifæri til að bjóða heiminum Álann, þetta indælismeðal, sem lækn- ar bæði menn og skepnur, magasár og mæðiveiði og sem ís- lenzka ríkisstjórnin bauð Suður-Afríkustjórninni upp á til að lækna mæðiveikina þar syðra fyrir nokkurum árum. Tómas: Ja, þú segir nokkuð. En ætli Ólafur sé ekki um- boðsmaður fyrir Sigurjón eins og Hermann er það fyrir Sigurð Jónasson? En hvað á eiginlega Ásgeir að gera þarna? Ekki kann hann neitt að glíma? Siggi: Því spyrðu svona maður? Veiztu það ekki. Hann á SENDIRÁÐIÐ danska hefur farið þess á leit að fá einn jeppa til kaups eða leigu handa Eskimóum. Er svo að sjá sem nú hafi þessir ágætu frændur vorir í vestri líka fengið bíladelluna, og þénar það þeim til hróss, að þeir skuli ekki byrja á strætóum. Enda þótt svona útflutningur sé bannaður, finnst oss alveg sjálfsagt að verða við þessari bón dana, enda getur það orðið til þess að opna þarna samskonar markað og skipastóll vor hefur haft í Færeyjum. að hjálpa hinum, þegar þeir eru ekkert að gera. Þú talar eins og þú hefðir aldrei drukkið sjúss með bankastjóra, Tómas. Tómas: Ja, hvað margt getur breytzt á voru landi. Siggi: Hvað ertu nú að spekúlera, Tómas? Tómas: 0, ég var bara að hugsa hvað við getum nú mikið á voru landi, að við skulum geta flutt þekkingu til Ameríku með okkar ágætu stjórnmálamönnum, en þurfum ekki leng- ur á neinni kunnáttu þaðan að halda. Straumnum er snúið við frá því sem áður var. Hver skyldi hafa haldið það, að vitið í Ásgeiri, Hermanni og Ólafi yrði útflutningsvara? Siggi: Verst að Ólafur skuli vera farinn. Annars hefði hann gefið okkur fyrir einni upp á þetta. Malakías. um ýmisleg viðhorf til Bjarna Ben. 1. Þjóðviljinn lítur á Bjarna Ben, sem böðul liins kúgaSa og snauSa. Stefna hans öll eitt fúafen, framkvæmd embættis meira en klén. Helzt ætti aS tjóSra Bjarna Ben á bás meSal nauta og sauSa. 2. Mogginn um sama Bjarna Ben: — Borinn er þjóSskörungur. Avaxtar hann sín andleg lén, og ekki eru verkin lieldur klén. Annan eins snilling og Bjarna Ben blessuSu engar tungur. 3. Til Kaupinhafnar flaug Bjarni Ben og bjóst viS sitthvaS aS Iieyra. En enginn spurSi um lians lönd og lén, lét sem liefSi hann enginn sén. Þar þekkti víst enginn Bjarna Ben „böSul“, „snilling“ o. fl. SVB.

x

Spegillinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Spegillinn
https://timarit.is/publication/349

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.