Spegillinn - 01.10.1947, Side 17

Spegillinn - 01.10.1947, Side 17
5PEGILLINN 175 'Tflcury Frh. að gráta. Kalli frændi sagði ekkert, en settist út í horn og horfði á okkur öll, en snögglega tók hann vasabók sina og krotaði eitthvað í hana. Hann sýndi okkur það seinna. Systir Túfiks var eina manneskjan, sem var alveg róleg. Hún sat á beinum og' óþægilegum stól, rétt við dyrnar, og renndi brúnu augun- um af einum á annan. Tobba sagði, að í almennilegum fötum yrði hún falleg, og Agga hvarf þá út i nokkrar mínútur og kom aftur með nýj- asta sumarkjólinn sinn og svartan hatt. Þegar aumingja stúllcan skildi, að þessar flikur voru henni ætlaðar, var næstum eins og hún yrði hrædd, þar sem þetta skeði svo óvænt, en Túfik fékk gleðikast og kyssti okkur allar á hendurnar, en systurina á báðar kinnar. Tobba segir, að okkar ósiðlegi varakoss þekkist ekki í Austurlönd- um, heldur nuddi menn þar saman nefjum í kveðjuskyni. En þetta held ég sé misskilningur hjá henni, og að það séu Ástralíumenn, sem eru nefjanuddarar. Ég man eftir að einhver ti'úboði sagði mér frá þessu, en ekki man ég nú annars almennilega, hvar hann hafði starfað. Nú bar fátt til tiðinda svo sem hálfan mánuð. Túfik kom ekki nema einu sinni, og það var til þess að segja okkur, að þar eð hann yrði að greiða fargjald til bílstjóraskólans, nægði sér ekki þessii' níu dalir á viku. Við bættum við hann dal á viku, en þó ekki orðalaust, og Tobba gaf í skyn, hálfönug, að þar sem hann ynni ekki nema fjóra tíma á dag, væri ekki úr vegi, að hann fengi sér einhverja létta vinnu, það sem eftir væri dagsins. En Túfik glennti greipar og yppti öxlum. „Vinir mínir reiðir“, sagði hann dapurlega. „Er það ekki nóg, að ég læra. Ég líka vinna? Gott — ég vinna! Selja blöð. En til þess að selja blöð ég hafa peninga — einn dal — tvo dal — mjög lítið — ég hafa það ekki“. Við gáfum honum einn dal í viðbót og' hann gekk út brosandi og vonglaður. Svo virtist sem við hefðum loksins leyst úr vandamáli hans. Tobba mundi eftir einum sunnudagaskólanemanda sínum, sem hafði grætt svo mikið á blaðasölu, að hann gat keypt sér leigubíl og þannig haft ofan af fyrir fjölskyldu sinni. En allar þessar glæstu vonir ruku út í veður og vind, þegar Hanna opnaði dyrnar næsta morg- un, til þess að taka inn mjólkurflöskurnar, og fann þá heljarmikinn hlaða af dagblöðum frá deginum áður og ofan á þeim bréf áritað til Tobbu og svohljóðandi: Kæra móðir Tobba! Þú sérð nú, að ég er alveg ómögulegur. Ég' vil deyja! Ég hef eitt blað selt, og blaðastrákur vill drepa mig. Ég á engan nema þig og guð — og guð gleyma mér. Túfik. Við misstum alveg móðinn, og' sýnilega hafði Túfik gert slíkt hið sama. f tíu daga heyi'ðum við ekki orð frá honum, nema hvað lítill og skítugur sýrlenzkur drengur sótti til okkar tiu dali á laugardag, og færði okkur um leið eina skó af Túfik, sem þurftu að komast í sóln- ingu. En einn dag hringdi Tobba með miklum asa og sagði, að Túfik væri hjá sér og vildi nú fá okkur í brúðkaupsveizlu. „Hún litla systir hans ætlai' að fara að gifta sig“, sagði hún til skýr- ingar. „Aumingja drengurinn er svo spenntur, að það er nú sitthvað! Hann segii', að þetta hafi þegar staðið í tvo daga, en aðalathöfnin fari fram í dag“. Agga var stödd hjá mér, og var ekki sein til svars: „Spurðu hana, hvort ég hafi tíma til að skreppa heim og fara í eitthvað betra. Ég er alls ekki klædd til að fara í brúðkaup“. Tobba svaraði, að enginn tími væri til þess. Sagðist koma með bíl- inn eftir stundarfjórðung og þá yrðum við að vera tilbúnar. Þrátt fyrir ófullkominn búning sinn lét Agga til leiðast að fara eins og hún stæði, og svo kom Tobba að sækja okkur. Túfik var í bílnurn. Hann var snyrtilega til fara og var í skónum, sem við höfðum látið sóla, með ljósrauða nellíku í hnappagatinu, og var í æsingi, sem hann átti fullt í fangi með að leyna. „Loksins!“ sagði hann, glaður í bragði. „Loksins fá vinir mínir að sjá allar mæður mínar þrjár. Þeir halda, að Túfik sé að skrökva — nú sjá þeir! Og presturinn mun blessa mæður mínar á þessum heilla- degi!“ Tobba hafði klifrað upp í ökusætið, stynjandi af erfiðinu, og tekið stýrið, en í æsingu sinni og barnslegri gleði laut Túfik fram og kyssti þá hönd hennar, sem nær honum var. Litli drengurinn húsvarðarins stóð á gangstéttinni og horfði á, og þegar hann sá þetta, rak hann upp öskur af gleði. Við skildum hann eftir og lofuðum honum að senda okkur tóninn — ekki sem prúðmann- legast — og andlitið á Tobbu var, sem maður segir, allra peninganna virði að horfa á. En hún varð að hugsa um bilstjórnina og gleymdi því brátt öllu öðru. Sýrlendingahverfið var ekki g'læsilegt álitum. Það var uppi í brekk- unni fyrir ofan hverfi rússnesku gyðinganna, og var óregluleg flækja af steinlögðum götusmugum, grómteknum af óhreinindum og ótrúlega bröttum. í einni eða tveim af þessum smugum varð Tobba að snúa bílnum og aka afturábak, af því að bíllinn var kraftineiri þann veg- inn. Hópar barna eltu okkur, hundar lentu undir bílnum og hafa sjálf- sagt drepizt, að minnsta kosti eftir hljóðunum að dæma — en eltu okkur samt með engu minni ákafa stundu síðar. Við háðum orustu við öskutunnu og komum út úr henni sigri hrósandi en rykugar, og loksins, er Túfik sveiflaði hendinni eins og einhver höfðingi væri að skipa fyrir, stönzuðum við á hvössu horni og Túfik hneigði sig meðan við vorum að komast út úr bílnum. Svo stóð hann hjá, sýnilega frá sér numinn af gleði og hrifningu, en Tobba náði í götustein og setti hann undir afturhjólið, en við Agga virtum fyrir okkur umhverfið. Við vorum staddar í götusmugu, sem var svo sem tíu feta breið og lögð, að því er virtist, steinum og blikkdósum, brotnum flöskum og smábörnum í einum hrærigraut. Fyrir framan okkur var tveggja hæða múrsteinshús, með brotnum gluggum og háum .dyraþrepum — reyndar vantaði tvö þrepin. Undir þrepunum voru dyr inn í kjallarann og úr þessum kjallara heyrðust einkennilegii' dynkir og hljóð, sem minnti mest á dýr í dauðateygjunum. Agga greip í handlegginn á mér. „Hvað er þetta?“ spurði hún skjálfandi. Ég fékk engan tíma til að svara. Túfik hafði hrundið upp hurðinni og veik til hliðar, til þess að hleypa okkur inn. „Þau dansa“, sagði hann alvai'lega. „Alltaf mikill dans í brúðkaup- um. Þessi músik er frá Damaskus og sá sem dansar er höfðingi hjá sinni þjóð“. Þegar við heyrðum, að hljóðin voru ekki annað verra en þetta, gengum við inn í kjallarann. Þetta var klukkan fjögur síðdegis.

x

Spegillinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Spegillinn
https://timarit.is/publication/349

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.