Spegillinn - 01.11.1953, Side 9

Spegillinn - 01.11.1953, Side 9
SPEBILLINN 165 HEIHSÆKIR CRIMSBYLÝÐ Mig hafði verið að dreyma steypuhrærivél, síðustu mín- úturnar áður en ég vaknaði, og var því hálf-hrærður í svefnrofunum. Þetta var síminn að djöflast. — Halló! Faraldur hér, svaraði ég, enda þótt ég liefði enn ekki nein sérstök bréf fyrir því, að ég væri raunveru- lega liér. — Föðurlandið calling! sagði ínefkveðin rödd í símanum. — Eg var heppinn að hitta þig lieima. — Fyrir kemur það nú, að ég sé heima hjá mér klukkan fimm að morgni, þó að það sé ekki neinn auglýstur við- talstími, svaraði ég og var fúll. — Þú þarft engan tannbursta að taka með þér, sagði Bjarni, og tónninn var eins og í frambjóðanda, sem er að múta háttvirtum kjósanda með brennivíni. — Þú átt ekki að fara nema til Grimsby, og þar ku þeir vera hræbillegir, sökum söltutregðu undanfarin ár. — Þér gengur hálfilla að muna, að þú ert ekki lengur í utanríkismálunum, sagði ég. — Þú ert verri en liross, sem búið er að taka úr haftinu; það hoppar þó ekki nema stutta stund á eftir. Eða eru Grímsbæingar kannske komnir undir dómsmálin hjá þér? — Til getur það verið, ef við þurfum að lögsækja þá, eins og nú eru einmitt mestar horfur á. En fyrst og fremst eru þetta utanríkis- og verzlunarmál, svo að í þetta sinn ferðu þrefaldur í roðinu á vegum allra þriggja ráðuneyt- anna, og fjögurra þó, ef kennslumálaráðuneytið er talið með, því að nú er meiningin að kenna Bretanum dálítið að lifa. að gera úr honum kartöflugeymslu. Er það skynsamlegasta tillaga, sem enn hefur komið fram um það góða skip, og mætti flikka dálítið upp á sakirnar með því að láta Jóhann alþingismann Hafstein kasta fyrstu kartöflunni um borð, við hátíðlega athöfn, og koma svo á eftir með kokkteilana, sem menn fengu ekki við Irafoss. Að minnsta kosti væri hið góða skip fullgott fyrjr hnúðormakartöflur, og einmitt tilvalið að einangra þær þar og draga skipið út á sjó, að minnsta kosti út fyrir gömlu landhelgina. — Ég get skilið, að þig langi til þess eftir reynsluna af Kananum, svaraði ég og settist framan á. — Hvaða andskoti ertu önugur og fúll, sagði Bjarni. — Þú hefur þó vonandi ekki stigið vitlausu löppinni fram úr bælinu fyrst. Það gæti spáð illa fyrir ferðalaginu. En við megum bara ekki vera að þessu símakellingasnakki, því að togarinn bíður eftir þér, og ekki má fiskurinn skennnast, því að þá verður Doson vondur við okkur og við höfum alveg nóg fyrir af Bretum, sem eru vondir við okkur. Og ég eins og faraldur niður á hafnarbakka, þar sem Ingólfur Bretlandnámsmaöur liggur við landfestar, en nokkrir sterkir kallar stóðu viðbúnir og hífuðu mig um borð í einum kolgrænum hvelli. Þegar þangað var komið, ofhuðu mér mest öll fínheitin, því að síðast þegar ég fór á togara milli landa, var það í kolaboxi, svo að mér ætlaði að reynast erfitt að sanna þjóðerni mitt, þegar í land kom. Þess vegna hafði Bjarni verið svo ráðugur að setja mig á nýsköpunartogara, þar sem ekkert kolabox er til, nema þá í hæsta lagi fyrir kabyssuna. Sjálf ferðin milli landa hafði það fram yfir Sogs- og Laxárvirkjunina að standast áætlun, svo að ég verð fáorður um liana, allt þangað til að morgni hins mikla sigurdags, 14. október. Samkvæmt ná- kvæmum leiðarreikningi vorum við þá, snemma morg- uns, staddir úti í liafsauga, en þegar skip eru þangað komin, sést fyrst til þeirra frá Grimsby. Með öðrum orðum, héðan af vorum við undir smásjá. Þess sáust líka merki á mannskapnum, því að flestir voru með nokkurn glímuskjálfta, sem fór vaxandi, eftir því sem land nálgaðist. Þegar inn í höfnina var komið, sáum við þó nokkra menn standa á bakkanum, berandi ýms kynleg öppöröt og út- biinað. Sögðu þeir fróðustu, að þetta væri sjónvarps-, útvarps- og blaðamenn, og varð ég feginn, að þetta var

x

Spegillinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Spegillinn
https://timarit.is/publication/349

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.