Spegillinn - 01.11.1953, Page 10

Spegillinn - 01.11.1953, Page 10
166 SPEGILLINN Aðalfnndwinn stóð í 12 klst. ekki neitt verra, því að ég hafði búizt við herliði, gráu fyrir járnum. Þegar fyrsta trossan var orðin landföst, sáust þrír menn koma gangandi, sem sýnilega áttu erindi við okkur. Var þar kominn landi vor, Þórarinn Olgeirsson og ineð honum sjálfur íslandsvinurinn Doson, fyrrum járnaruslari og nú tilvonandi stærsti fiskgrósseri heims, feitur og pattaralegur og bar þess sízt merki að hafa vakað undanfarnar nætur, enda hafði hann sof- ið svefni hinna réttlátu, eins og ekkert væri. Á eftir þess- um tveim, drallaði sá þriðji. Sá virtist eitthvað eiga bágt með að ganga og riðaði í liverju spori. Að vísu bar hann poka um öxl, en það var ekki nema smá-skjatti og gat tæplega réttlætt svona göngulag. En brátt var mér sagt, að þetta væri í rauninni merkilegasti maðurinn þarna, sem sé Mr. Beevis, fjármálaráðunautur Dosons, í pausanum væri peningarnir, sem liann ætlaði að gefa okkur. Eg liugsaði mér, að ég skyldi helzt halda mig að þessum manni, ef þess væri kostur og um leið varð mér liugsað til Eysteins, að svona poka ætti hann að bera til allra mannfunda, þá yrði ekki mikill vandi að halda stjórninni við völd. Mér datt jafnvel í hug að selja Bjarna hugmyndina, og jafn- framt benda honum á, að ef statusinn væri eithvað bág- borinn, mætti komast af með grjót í pokann, og myndi gera sama gagn, ef þjálfaðir stjórnmálamenn færu með hann. En nú tekur ýmislegt að gerast. Ég kemst auðvitað frá borði, því að fyrst og fremst veifaði ég diplómatapassanum, en auk þess hafði ég í jakkahorninu nælu með mynd af Bjarna í, sem kom í góðar þarfir, einkum síðar meir. Ég lineigi mig fyrir þeim þremenningunum, ekki sízt poka- manninum, sem þó var minnstur fyrir mann að sjá, en þeir segja gladdtúsíjvi og skælbrosa yfir allt andlitið, en þar með er talsvert sagt, hvað Doson snertir. Strax er slegið upp kampavínsgilli, þar sem ég var vitanlega heiðursgestur- inn, en blaða- og útvarpsmennirnir fengu líka að vera með, og allir voru glaðir og kátir, allt til miðnættis, en þá hófst löndunin. Ekki skal ég neita því, að ég hafði búizt við nokkrum ófriði í sambandi við hana, og því liafði ég, í varúðar- skyni, vafið handleggina snærmn, eins og forfeður mínir gerðu áður fvrr, þegar þeir ætluðu að fara að glíma við bjámennina, sem danskir kaupmenn fluttu stundum með sér í rúglestinni, til þess að hræða þjóðina. En þessi varúðar- ráðstöfun var óþörf, því að eini ófriðurinn þarna var, að nokkrar blækur grettu sig eitthvað, en þá komu bara nokkrar löggur — sem hér eru kallaðar bobhíar — og leiddu ófriðarseggina burt. Nú- tóku uppskipararnir að hamast og aldrei hef ég séð aðra eins vinnugleði, nema ef vera skyldi í bæjarvinnu, en þar er hún af öðrum ástæðum.

x

Spegillinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Spegillinn
https://timarit.is/publication/349

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.