Spegillinn - 01.11.1953, Síða 12
16B
SPEGILLINN
DANSKIR
FORNFRÆÐINGAR
fundu það út fyrir nokkru, að
Skrælingjabyggð á grænlandi
væri reyndar minnst 50 árum eldri
en hingað til hefur verið talið.
Brugðu þá danir við títt og veittu
þeim innfæddu kosningarrétt og
kjörgengi til danska þingsins, svo
sem til að reyna að vinna það upp,
sem sagan var búin að tefjast,
fyrir fáfræði visindanna. Var
veitt kosningabrennivín og annað
góðgæti, af þessu tilefni, og var
þó óþarfi, þar sem það kom í ljós, að Skrælingjar voru allir á einu máli
í pólitíkinni, og gæti slíkt verið öðrum til fyrirmyndar.
í NOREGI
UNDANFARIÐ
hefur, hér á landi, verið blásið upp talsverðum áhuga á svokölluðum
starfsíþróttum, og meira að segja hefur verið keppt í þeim opinber-
lega, að minnsta kosti einu sinni. Svo ber það til, að einhver sauðar-
leggjarfjandi tekur sig til og skrifar blaðagrein, þar sem hann bendir
á það, að fyrst og fremst sé nú ekkert nýtt undir sólinni, eins og allir
vita; eins hafi þessi nýjung verið til frá ómuna tíð og verið kallað
vinna. Lukust þá upp augu manna fyrir fánýti nýjungarinnar, og víst
er um það, að síðan hefur enginn nefnt hana á nafn, nema þá í hæsta
lagi í hálfum hljóðum.
SKOÐANAKÖNNUN
fer nú fram meðal styrktarlima Tónlistafélagsins um það, hvaða
músík þeir vilji helzt hlusta á. Hingað til hefur það alltaf kveðið við,
að Kú-klúx-klanið, sem stjórnar félaginu, sé einskonar stórráð fasista,
og hinir limirnir séu hafðir til þess að greiða sitt gjald og þegja síðan.
Hér virðist vera stefnt yfir á lýðræðisgrundvöll, sem vel getur orðið til
þess, að félagið fari að slá sér á jazzinn.
hefur nýlega fundizt 350 milljón ára gömul fisktorfa, steingerð í
klettum nokkrum nálægt Hönefoss. Kalla náttúrufræðingar (Norð-
manna) þetta frumfiska og halda því stift fram, að þarna séu komnar
elztu leifar, sem nokkurntíma hafi fundizt af hryggdýrum í heimi hér.
Oss finnst nú sniðugast, að fiskarnir skyldu finnast einmitt þegar ald-
ur þeirra stóð á heilum milljónatug, en hvað aldurs-heimsmetið snertir,
höfum vér oft fengið sannkallaða frumfiska upp úr niðursuðudósum.
VARÐBERG
er eitthvað að fárast yfir því, að rekstrarkostnaður Fæðingardeildar
Landsspítalans sé óeðlilega hár og engu lagi líkur. Vér fáum ekki séð,
að deildinni eða stjórn hennar geti verið neitt um þetta að kenna, held-
ur viðskiptavinunum, sem halda, að enn sé góðæri í landinu og kunna
sér því ekki hóf í framleiðslunni.
, HÆRINGUR
hefur enn einu sinni verið nefndur í heimsfréttum vorum, er ei>y»">r
bendir á það í blaðagrein, að hann gæti verið fyrirtaks kartöflugeymsla,
en þær hefur þjóðin nú hvað mesta þörf á. Vér sjáum ekki, að hið góða
skip gæti gert annað þarfara í bili og styðjum því tillöguna. Munu
margir hlakka til, er Jóhann Hafstein kastar fyrstu kartöflunni um
borð við hátíðlega athöfn, að viðstöddum Jóni ívarssyni og fleirum
pótentátum.
MENNTASKÓLI
hefur nú verið stofnaður og settur að Laugarvatni, en þar hafði
undanfarin ár verið framin nokkur menntaskólakennsla, en próf síðan
tekið í Reykjavík, og mátti á sínum tíma lesa í blöðum — líklega Tím-
anum aðallega — um hinar átakanlegu hörmungar, sem þessir frum-
herjar sveitalatínunnar máttu þola, þegar þeir komu til höfuðstaðar-
ins til próftökunnar. Mun síðar meir verða komið upp standmyndum
af þessum píslarvottum í salarkynnum skólans, og messa þeirra hátíð-
leg haldin á hverju ári.
í NÍGERÍU,
sem hefur verið helzta viðskiptaland vort með skreið, horfir nú til
vandræða, sökum þess, hve markaðurinn þar er orðinn yfirfullur. Mega
halanegrarnir helzt ekki heyra skreið nefnda, og kveður svo rammt að
þessu, að margir eru hræddir um, að þeir fari að taka upp mannát
aftur, eins og forfeður þeirra iðkuðu og varð gott af.
CHURCHILL,
hinn nýkjörni Nóbelsverðlauna-
gripur, I trássi við Laxness og
Hemingway, var fyrir nokkru
suður á Rívíeru og þreytti þar
frístundamálaralist. Var hann
jafnan umkringdur sérlokkum og
var látið í veðri vaka, að þetta
væri til þess gert, að málverkunum
yrði ekki stolið jafnharðan, kann-
ske jafnvel hráblautum. Sannleik-
urinn var hinsvegar sá, að sér-
lokkarnir voru þarna til þess að
bægja abstraktmálurum en þó
einkum listfræðingum — frá listamanninum.
ÚTVARPIÐ
hefur nú hafið vetrardagskrá sína, en til þess að geta hafið hana í
tæka tíð, neyddist það til að flýta afmælisdegi Sameinuðu Þjóðanna
um einn dag. Flestir hyggja gott til væntanlegra breytinga á dag-
skránni, segjandi sem satt er, að þær geti ekki orðið nema til batnaðar.
I tilrauna skyni höfðu skömmu áður verið framdar skyndibreytingar á
dagskrá; þannig var hinn 1. október Thor Thors látinn koma í staðinn
fyrir 2. sinfóníu Beethovens, eins munu, í tilrauna skyni, öll helztu
svæfingarjárn útvarpsins verða látin koma fram á kvöldvökum.
GRINDVÍKIN GAR,
eða nánar til tekið eigendur Húsatótta þar í vík, eru nú i þann veg-
inn að fara í mál út af ofaníburðartöku úr Stapafelli, sem þeir eiga að
hálfu móti Hafnamönnum, en þeir hafa verið það lakari föðurlands-
vinir að selja sinn hluta fjallsins. Vér sjáum heldur litla von um árang-
ur af slíkum málaferlum — nema helzt fyrir lögfræðingana — því að
þegar hluti Hafnamanna er upp urinn, dettur Húsatóttahlutinn inn á
þeirra land og er þá rétttækur, bótalaust. Ættu Hústættingar því að
gefa fjandann í alla föðurlandsást og flýta sér að selja.