Spegillinn - 01.11.1953, Blaðsíða 13

Spegillinn - 01.11.1953, Blaðsíða 13
SPEGILLINN 169 AMERÍSKUR LÆKNIR hefur ritað tvær bækur um kynhegðun karla og kvenna — enda heitir hann einmitt Kynsey — og hafa þær vakið feikna athygli um heim all- an, enda byggðar á afar vísindalegum rannsóknum og játningum fólks- ins sjálfs. Þessar útgáfur hafa haft það í för með sér, að í ýmsum lönd- um hafa hinir og þessir prakkarar legið á því lúalagi að ganga á milli fólks — í nafni vísindanna — og spyrja það spjörunum úr, í bókstafleg- um skilningi. Er sagt, að einkum kvenfólkið sé furðu opinskátt og noti prakkararnir sér svo upplýsingarnar á ýmsan hátt, síðar meir. McCARTHY, hin illræmda kommaæta Vesturheims, er fyrir skömmu gengin i eina sæng — löglega þó — með einkaritara sínum, sem er 43 ára gömul stúlka. Vér neyðumst til að taka aldur frúarinnar með öllum vísindalegum fyrirvara, þar eð henni mun tæplega hafa dugað ofangreindur aldur til þess að komast gegnum allar óamerískar nefndir og aðra þá hreins- unarelda, sem maki hennar mun telja nauðsynlega, til þess að komast í téð ból, öllum að áhættulausu. Neyðumst því til að skella á hana svo sem 20 árum í viðbót. NÝ FRÍMERKI hefur póst- og símamálastjórnin gefið út að haustnóttum i ár, með myndum af islenzkum fornritum, og virðast upp á það sniðin að stríða dönum. Næsta skrefið er talið verða útgáfa frímerkja með mynd af Dawson, til þess að stríða fjandsamlegum Bretum. GOLFMENN allmargir, úr hinum aðskiljan- legu klúbbum lands vors, tóku sig til fyrir nokkru og leigðu hina góðu flugvél GULLFAXA til Skot- landsfei'ðar, í því skyni að þreyta íþrótt sína við betri veðurskilyrði en hér var kostur. Er sagt, að Skotar hafi orðið svo dolfallnir yfir þessum flottræfilshætti, að þeir áttuðu sig ekki nógu snemma og voru búnir að lána komumönn- um velli sína, áður en þeir vissu hvað þeir voru að gera. Höfum vér heyrt, að eitthvert slangur af þeim liggi ennþá í yfirliði í nágrenni vallanna. ATTAVITAR í mannlausum bátum í Reykjavíkurhöfn hafa undanfarið orðið fyrir óþægilegum heimsóknum ófrómra manna, sem hafa stolið af þeim spír- anum, og meira að segja lætur Morgunblaðið þess getið, að „grunur leiki á, að þjófarnir hafi drukkið löginn". Er slíkt mjög vafasamt til- tæki, því að fyrst og fremst er spírinn (sagður) eitraður og í öðru lagi hefur hann alveg andstæðar verkanir á menn og kompása, upp á átt- irnar til að gera. RÚSSAGILDINU befur verið frestað i ár, vegna vínveitingabannsins, sem sett var um síðasta nýár, fyrir eindregnar atvinnubótakröfur sprúttsala landsins. Er ætlunin að halda gildið jafnskjótt sem um hægist í þessum efnum, samanber auglýsingu á reseftalatínu, sem birzt hefur í blöðunum, en þangað til verða stúdentar að búa að rússagildunum, sem MÍR hefur vorið að halda undanfarið. HANS HEILAGLEIKI páfinn hefur fyrir nokkru veitt móttöku 300 fulltrúum úr sprúttsala- stétt, og lagt ríkt á við þá að framleiða göfug vín, en að því búnu lagði hann blessun sína yfir bruggarana, og þótti víst engum af veita. Virð- ist svo sem hans heilagleiki hugsi ekki mikið um sauðsvartan almúg- ann, sém vitanlega hefur alls engin efni á að drekka göfug vín, og vilji bókstaflega þurrka landið, hvað fátækari stéttirnar snertir. ALMENNUR KIRKJUFUNDUR, haldinn í höfuðstaðnum í síðastliðnum mánuði, varð á eitt sáttur um það, að skilnaður ríkis og kirkju væri ekki æskilegur, en á undanförn- um áratugum hefur hann oft borið á góma, og meira að segja virzt eiga talsverðu fylgi að fagna. Vér getum vel skilið þetta, eins og áhuga al- mennings á kirkju og kirkjusókn er nú komið. Er hætta á, að ef kirkj- an ætti að lifa á þeim áhuga einum saman, myndu menn skotra aug- unum oftar til rikissjóðs en heppilegt mætti telja fyrir andagtina. ÚRVALSLIÐ úr knattspyrnufélögum höfuðstaðarins sigraði í haust Þýzkalands- farana svokölluðu, með 2 mörkum gegn 0. Flestum áhorfendum bar saman um, að leikurinn hefði verið heldur daufur og varfærnislegur, og kemur vel heim við þá hugmynd vora, að þetta hafi bara verið plat- keppni, til þess að sýna Adenauer, að það voru alls ekki okkar beztu menn, sem sigruðu þjóð hans. JUNE HAVER — sem er hollivúddsk kvikmyndastjarna og glamurgildra, ef einhver skyldi ekki vita það — tók upp á því í afviknum februario að ganga í klaustur, en „í ágústmánuði fór hún að lifa eins og nunna“, segja blöð- in oss, en það mun þýða á venjulegu máli, að þá hafa allir gestkomandi munkar verið reknir úr klaustrinu. Nú er einhver kengur kominn í klausturlifnaðinn og June litla komin til Ilollivúdd aftur. Eru óvin- konur hennar nú spenntastar að vita, hvort þetta tiltæki hennar hefur nokkurt verulegt auglýsingagildi. DOFTLEIÐIR hafa nýlega haldið sögulegan aðalfund sinn, þar sem gömlu stjórn- inni var steypt af stóli, en stjórn byltingasinnaðra sett í staðinn. Á fúndi þessum kom það í ljós, að félagið hafði haft allverulegt rekstrar- tap á ái'inu og jafnframt bætt hag sinn um 6 milljónir. Virðist hafa verið á námskeiði hjá vélbátaeigendum á Suðurnesjum. HÚSNÆÐISMÁLIN hafa undanfarið verið mjög til umræðu i blöðum vorum, í forföll- um annarra frétta, enda taka nú bæjarstjórnarkosningar að nálg- ast, ískyggilega. Sjálfur hefur bærinn lagt ýmislegt verklegt til þessara mála, og sumt frumlegt, eins og t. d. náttlampana, sem settir voru á Austurvöll, til þess að rónar þeir, er þar kynnu að taka sér náttból, geti litið í Mogg- ann milli dúranna, þegar þeir eiga eitthvað bágt með svefn.

x

Spegillinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Spegillinn
https://timarit.is/publication/349

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.