Spegillinn - 01.11.1953, Side 19
SPEGILLINN
175
Alvarlegt ljóð
Pólitískt nöldur, nag og jag
nálega upp á sérhvern dag
nánast tilgreint hvern nýtan mann
nálega gerir vitlausan.
Sér eiga kratar samastaó
hjá Sambandinu, — ég held nú þaö.
Sveit þeirra veröur vart svo bág,
aö Vilhjálmur geti ei notaö þá.
Uppisteit gerir Gunnar M
gerandi Kanann stóraslemm.
Kommarnir rœöa rússnesk plön,
Rannveigarsynir fýla grön.
Viöskiptin eiga, ekki pen,
ákœruvaldiö og Helgi Ben.
Fyllibytturnar fara á túr,
fjármálaráöherra kaupir skúr.
innheimtu í annan heim
TÍMINN
gat þess fyrir skömmu, að bæjarfélag vort lægi á því lúalagi að rukka
dauða menn um útsvar. Vér sjáum ekki, að þetta sé neitt sérlega hættu-
legt, þar sem vafalaust fara allir þeir, sem útsvörin eru búin að drepa,
til Himnaríkis, og eitthvað má Pétur vera orðinn glámskyggn, ef hann
hleypir mörgum rukkurum þar inn fyrir staf. Hinsvegar væri það ekki
amalegt fyrir hina eftirlifandi, ef sá háttur væri tekinn upp að láta þá
dauðu borga skattana.
Herœfingar í haugasjó
hygg ég aö aldrei blessist þó.
Þau eru engu ööru lík
óveörin noröur í Hœlavík.
Þannig er þaö í heimi hér
hitt og þetta, sem miöur fer,
„eitt rekur sig á annars horn“
eins og í ræöu eftir Vilhjálm Þorn.
Dóri.
EINKENNISBÚNINGUR
Georgs Washingtons hins ólýgna var nýlega hreinsaður, en hann er
170 ára gamall og hafði verið óhreinsaður öll þau ár. Varð að hafa alls-
konar varúð við þetta, til þess að fötin dyttu ekki í sundur, og voru
kvaddir til allskonar vísindamenn og efnafræðingar. Oss finnst þetta
heldur óþarflegt umstang, og líklega er Kaninn búinn að skipta það
mikið við Odd í Glæsi, að það hefði verið ómaksins vert að tala við
hann, áður en farið var í vísindamennina, með ærnum tilkostnaði.
FREYMÓÐUR
er nú alveg á gothellunni með að fara í mál við HELGAFELL, út af
ummælum þess um hann og Sjaron Brús, en tekur fram um leið, að ekki
hefði hann farið í mál við SPEGILINN undir sömu kringumstæðum,
og mun valda þessu einhver lítilsvirðing á blaði voru. Vér getum í þakk-
lætis skyni frætt Freymóð á því, að annar þekktur maður — en að vísu
ekki merkari — Ólafur Thors að nafni, hefur einnig farið litilsvirð-
andi orðum um blað vort. Hinsvegar var hann það hugminni, að hann
notaði þinghelgina til þess arna, en það gerði Freymóður þó ekki —
hefur líklega ekki þolað að bíða þangað til hann væri orðinn háttvirtur.
(Sjá mynd á bls. 164.)
Iðnaðarbanki íslands
Ixekjargötu 2, Reykjavík.
Bankinn verður oþinn kl. 10 til 13,30 og 16,30 til
18,15 alla virka daga nema á laugardögum aðeins
kl. 10 til 13,30.
Bankinn tekur á móti innlögum í sparisjóð og
hlaupareikning með eömu kjörum og aðrir bankar.