Spegillinn - 01.03.1966, Page 24
Afi minn sagði
Þú skaft verða pólitíkus, sagði hann afi minrs
Ég minnist orða afa míns hcitins, en
haim hafði miklar áhyggjur af velferð
minni,
Þú skalt leggja íyrir þig að verða
pólitíkus, sagði hann. Það er bezta at-
vinna. sem hægt er að fá.
Hann var semsé ckkert blávatn, gamli
maðurinn, og hafði sínar ákveðnu mein-
ingar Hanu hélt því fram, hann afi
minn, að á stjórnmálabrautinni væri
frami minn tryggður. Þegar mamma
sayði. að ég vani bæði kjaftfor og fram-
hleypinn og yrði aldrei til nokkurs nýt-
ur, þá sagði afi minn Skammaðu
ekki drenginn, góða mín, hann er ein-
mitt efniviður í stiórnmálamann.
24 S p e g i I I i n n
Og svo lagði hann afi mér lífsregl-
urnar. Námið er ekki aðalatriði gæti
meira að segja verið til trafala. Mjög
menntaðir menn hafa tilhneigingu til
að hugsa sjálfstætt og það er ekki heppi
legt fyrir unga menn, sem ætla að
vinna sig upp. Það er betra til að byrja
með að hlýða forsjá eldri manna. Vertu
góður hlustandi og klappaðu vel og rösk
lega fyrir þér „betri“ mönnum úr sama
flokki. Sittu gjarnan framarlega á mann
fundum flokks þíns, helzt á fremsta
bekk og láttu ánægju þína óspart í ljósi
Það mun endurgoldið.
Þegar þú byrjar á að standa upp á
mannfundum, skaltu gjarnan taka und-
ir orð forystumannanna, hrósa skarp-
skyggni þeirra og hyggindum. Aðui en
varii munu þér verða falin trúnaðar-
störf, nefndarsetur í minniháttar nefnd-
um til'.að byrja með, svo sem skemmti-
nefndum. Þú skalt gjarnan hafa þig í
frammi og biðja um orðið í tíma og ó-
tínia og reifa málin, jafnvel þó þú hafir
lítið vit á því sem er á dagskrá, en það
skiptir minna máli, hvort alltaf er talað
af viti. Aðalatriðið er að láta bera á sér
á stjórnmálavettvanginum
Og enn hélt afi minn áfram: Ekki
mun líða á löngu, þar til þú verður sett-
ur í veigameiri nefndir. Það þýðir, að
þú færð soldinn bitling. Nú geturðu
farið að láta ljós þitt skína, og þú
þarft ekki alltaf að vera nákvæmlega
sammála öllum hinum. Þú gætir t.d.
öðru hvoru skilað séráliti, til að láta
bera á þér, en varastu að brjó.ta of mik-
ið agareglur flokksins, eða foringja hans
Þú vérður að gæta þess að mæta á
spilakvöldum og skemmtikvöldum
flokksins, og þú verður að gæta þess að
hlægja ekki minna að bröndurunum
hjá aðalræðumanni flokksins það
kvöld, heldur en bröndurunum hjá Óm-
ari, Svavari eða Bessa, eða hvað þeir
nú heita. Og ekki máttu láta hjá líða
að dansa við frúr flokksbroddanna, sér-
staklega þær, sem síður eru eftirsóttar til
að dansa við.
Ef þú verður boðinn að flytja ávarp
á spila- eða skemmtikvöldi, þá skaltu
gleypa við því og nota tækifærið og
hrósa flokksforystunni á hvert reipi, þó
að þú sérí hins vegar á allt annarri
skoðun. Þetta mun koma þér vel síðar.
Sæktu stjórnmálanámskeið flokksins
og málfundi, það eykur kynni þín við
þá sem hafa pólitík að atvinnu.
Ef þetta gengur vel hjá þér, sem
ekki er að efa, þá er komið að því að
hugsa hærra. Sækja um pólitískar stöð
ur og kemur þar margt til greina. Sjálf
sagt er að trana sér ' framboð. Til að
byrja með að reyna að konrast á lista
til bæjarsljórnarkosninga, en það er að-
eins áfangi.