Spegillinn - 01.07.1966, Blaðsíða 6

Spegillinn - 01.07.1966, Blaðsíða 6
VIÐ SKULUM ATHUGA MÁLIÐ „Já, ég skal nú athuga málið eftir mánaðamótin" ,svaraði bankastjórinn, og leit á mig rannsakandi. „En ég þarf að borga af húsinu um helgina, bílnum eftir helgi, sjónvarps- víxill fellur tuttugasta, og svo þarf að borga af ísskápnum tuttugasta og fimmta“, sagði ég til útskýringar. „Einmitt það, einmitt, ég skal þá at- huga það“. „Já, og svo er sumarfrí í næsta mán- uði, svo að mér liggur eiginlega mikið á“. „Ég skal þá athuga það“, svaraði bankastjórinn, „annars eru afar erfið- ir tímar“. 6 S p e g i I.: > i n „En í síðasta mánuði sögðuð þér mér að koma núna, það myndi standa bet- ur á í þessum mánuði“. „Var það, já, ég skal þá athuga það, t.d. í næstu viku“, svaraði bankastjór- inn. „Má ég þá kannski reikna með því að fá peningana inn á ávísanareikning- inn í næstu viku“, spurði ég áfjáður. „Já, við getum athugað það, já“. „Má ég hringja, eða á ég að koma aftur“, spurði ég enn. „Ætli það ekki. Við getum í öllu falli athugað það“, svaraði bankastjór- inn eins og annars hugar. „Hvort heldur?" spurði ég enn var- færnislega. Bankastjórinn geyspaði: „Við skul- um athuga það nánar. Það er afar erf- iðir tímar og erfitt að segja nokkuð á- kveðið“. „Það er nefnilega það“, svaraði ég og reyndi að finna ráð til að halda bankastjóranum við efnið. En bankastjórinn gekk fram að dyr- unum til merkis um það, að nú ætti ég að fara ,enda sagði hann: „Það eru margir sem bíða eftir afgreiðslu í dag, ég á því mjög annríkt. Við verðum að athuga málið síðar“. „Ég kem þá aftur á miðvikudaginn“,

x

Spegillinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Spegillinn
https://timarit.is/publication/349

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.