Spegillinn - 01.07.1966, Qupperneq 21
visarlífi loknu. Sætti fullyrðing prests-
ins nokkurri furðu, og hefir vafalaust
sett kvíða að hinum nýkjörna bjarg-
vætti Kardemommubæjar, en meðal
annarra bæjarbúa sætti furðu að
myrkrahöfðinginn skyldi velja sér urn-
boðsmann meðal kennimanna heilagrar
kirkju (ef þetta er þá heilagur sann-
leikur).
Eins og frarn hefir kornið í mörgum
blöðum, var kærleikur milli útvaldra
að kosningum loknum, af lakasta tagi,
og taldi hver flokkur um sig, sér ekki
samboðið með öðrum að vinna. Þó
væru allir sammála um að bæjarstjóra
yrði að velja, illan eða góðan. Þegar
buðu sig fram nokkrir misgóðir, að tal-
ið var, en fengu ekki náð fyrir ráðend-
um. Var nú einnig makkað urn atvinn-
una að tjaldabaki á meðal þeirra, er
ekki sóttu um bréflega, en ekki gekk
saman, svo að athygli vakti um alit
land, seinagangur og sundurlyndi þess-
arar viðreisnarbyggðar, og þykir mörg-
um hafa fölnað gamall baráttuljómi,
sem um skeið var vinnandi fólk í öllu
landinu mikið leiðarljós í baráttunni
fyrir bættum hag.
Þar eð nú hefir orðið eining um for-
ystuna í Kardemommubæ, svo að ekki
verður um breytt á næstunni, vænta
þess allir góðir menn að þeir sundur-
leitu útvöldu lægi ófriðaröldur sínar og
geymi til næstu kosninga, en taki til við
að sinna þarfamálum í bróðerni, en láta
ei servizku né persónuheift hver í annars
garð, ráða gerðum sínum, öllum íbú-
um Kardemommubæjar til tjóns. Fjár-
munaleysi ætti ekki að verða einhuga
forystumönnum, framtakssömum, sú
grýla, að ekki verði reynt að koma góð-
um málum til leiðar, þvi ekki kostar
allt stórfé. Einhvers staðar höfum vér
lesið að stór eik geti vaxið af lillu fræi,
eí jarðvegurinn er góður, og tökum vér
undir óskir allrar Kardemommubyggð-
arinnar, að slíkt verði sannað með sam-
eiginlegu átaki íbúanna. Þá mun verða
hátíð mikil í Kardemommubæ.
Heildsölubirgðir:
KRISTJÁN ó. skagfjörð h.f.
JLl Lþt&'
Reykvízkir nota vatnsból Hafnfirðinga sem baSstaS. (Samkv. Álþbl. frétt).
FR/S TUNDA BÚÐIN
SPORTVÖRUR
LEIEIPÖkdG
VELTUSUNÐI T — SÍMI 18722 — SENDUM GEGN PÓSTKR'ÖFU UM LAND ALLT.
S p e g i 'i I s n r\ 21