Spegillinn - 01.07.1966, Blaðsíða 10
Draumur oddvitans
Fundinum mætti hann mannsterkur á
að möndla til kaupfélagsstjórann,
sem vissi ei fyrri en longside hann ló,
svo laglega að þessu fór hann.
Hann leit yfir hópinn, og höfuðið bar
þá hátt, sem var líka að vonum.
Ó, fagnaðaryndið, hve farsæll hann var
nú fá þeir á baukinn hjá honum.
En stjórnin, hin gamla, hún stakk bara af
og starfslið til vinnu ei mætti
hann skeytti því engu og skít í það gaf
að skörunga og stórmenna hætti.
Og ný stjórn var kosin í hrífu, en hér
brá horngrýti kynlega viður,
því völdum og upphefð þeir afsala sér,
sem ekki er þó mannanna siður.
Seinfengin varð honum sigursins hvíld
og syrti af óveðurs hrinu.
Nú virtust þau augu svo önug og fýld,
sem áður svo Ijómandi skinu.
En kaupfélagsstjórinn, sem kolfallinn lá,
á kontórinn aftur var snúinn,
og stjórnin, hin gamla, var þverlynd og þrá,
og þar með var draumurinn búinn.
Grímur.
TEDDAZ
Frönsk Transistor-viðfæki með
plöfuspilara og báfabylgjusviði.
Spilara bæði Mono og Sfereo.
h.f.
Laugavegi 132 — Sími 16525
Kötturinn minn
Kötturinn minn er bröndóttur
á bakinu og rófunni
og töluvert er hann skeinuhættur
tittlingunum og lóunni.
Hann liggur í leyni
í garðinum og gerðinu
og hakkar í sig fiskinn
með hækkaða verðinu.
Kisi minn er fuglavinur,
það fæ ég sagt með sanni,
eins og karlarnir sem kjafta
hjá Stefáni fréttamanni.
En nú í sumar lifir hann
í sukki og Ijótum löstum,
já, hann lifir mest á þröstum.
KRYDEPStASPflD
Fæst í næstu
matvöruverzlun
f n n