Spegillinn - 01.07.1966, Side 17

Spegillinn - 01.07.1966, Side 17
KNATTSPYRNURAUNIR „Sumarsólin íslenzka var bezti liðsmaður Dana“, lásum vér í Mogga daginn eftir landsleik- inn. Já, ekki' er það andskotalaust. Vér héldum nú annars 1 ein- feldni vorri, að sólin skini jafnt á réttláta og rangláta og færi ekki í manngreinarálit, né sýndi hlutdrægni; en svo bregðast krosstré sem önnur. Vesalings íslenzku leikmenn- irnir urðu sem sé að skyggna fyrir augun með báðum hönd- um nærri þvf allan leikinn, nei, fyrirgefið, allan síðari hálfleik- inn. Auðvitað átti sólin að réttu lagi að skína í augu Dananna 1 fyrri hálfleik, en hvers vegna hún gerði það ekki vitum vér ekki. Það var vorum mönnum vitanlega um megn að berjast gegn þessu ofurefli, og má sann- arlega segja, að ekki sé ein bár- an stök hjá knattspyrnumönn- um vorum. Vér leggjum ein- dregið til, að framvegis heyi Islendingar landsleiki í knatt- spyrnu aðeins í sólmyrkva, eða þá a. m. k. ekki fyrr en eftir sólsetur. Þá eru það varnarmistökin, sem beinlínis orsökuðu 8:1 Dön- um i hag. Bakverðir vorir stóðu allt of framarlega á vellinum og framverðirnir vissu hreinlega ekkert hvar þeir áttu að vera og voru því alls staöar og hvergi. Er ekki hægt að reka niður hæla í völlinn og tjóðra mannafjandana við þá meðan þeir eru aö læra að staðsetja sig? Segjum t. d. að Árni Njáls- son væri tjóðraður á vítateigs- horni hægra megin, en Bjarni Fel eins og tvo metra frá horni vinstra megin. Ellert Schram og Magnús frá Akureyri mætti tjóðra miðja vegu milli bak- varða og útherja. Framherjana þyrfti ekki að tjóðra, þeir eru nógu staðir fyrir. Vonum vér að knattspyrnuráð taki málið til í- hugunar. Nú erum vér alls ekki að segja, að landar vorir geti aldrei neitt í fótboltanum, þótt til- raunalandsliðin, sem Knatt- spyrnuráð velur og allir búast við miklu af, reynist tíöast illa. Stundum mæta tilraunaliðin ekki, og inn á völlinn stormar allt annað lið, sem enginn býst við neinu af, en getur svo þeg- ar til kemur dálítið, eða a. m. k. meira en tilraunaliðin. Senni- lega væri bezt að Knattspyrnu- ráð veldi landsliðin samkvæmt stefinu alkunna: Komi þeir sem koma vilja, fari þeir sem fara vilja, mér og mínum að meinalausu. Spartakus. Hcildsölubirgðir: KRISTJÁN Ó. SKAGFJÖRÐ H.F. LÉTT RENNUR CEREBOS SALT S p e g i 11 i n n 17

x

Spegillinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Spegillinn
https://timarit.is/publication/349

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.