Spegillinn - 01.03.1970, Side 3

Spegillinn - 01.03.1970, Side 3
LetÓart Hið norrœna bros breiðist með hraða sólargeislans út í þjóðlífið gegnum gjörvalla fjölmiðlun landsins. Hin samnorrœna víma, sem breiddist út frá þinginu í norrœna leikhúsinu núna á norrœnu dögunum, er hafin yfir alla timburmenn. Kokteillinn, sem drukkinn var, hafði að vísu hugrœn áhrif á þinggesti eingöngu. Efnahags- lega hlýtur þó tilurð kokteilsins að verka mjög örvandi á hvert vinnandi mannsbarn í landinu. Við eigum að leita eftir samvinnu við frœndur okkar á grundvelli hins samnorrœna andrúmslofts (veizlu- skandinavismans) eingöngu. Fáránlegt vœri að eyði- teggja hið góða samstarf, sem náðst hefur á þessu sviði, með því að impra á verzlunarjöfnuði, gagnkvœm- um lendingarleyfum flugrellna og öðrum slíkum hvers- dagshlutum, sem engu máli skipta. Ekki telja frœndur vorir eftir sér að brauðfœða þriðj- ung íslenzku þjóðarinnar í sœnskum skipasmíðastöðv- um ellegar á dönskum pensjónötum. - Er þá ofverkið okkar að kaupa þrisvar sinnum meiri vöru af þeim en þeir kaupa af okkur ? Ó ekkí. Samkvœmt okkar frábœru aðlögunarhœfileikum œttum við að geta gengið bœði í Nordek og Nordkult, þegar tímar líða fram og okkur hefur tekizt að tileinka okkur skandi-naivismann. Okkur er Ijóst, að sundrað og dreift, fiskvœtt bœnda- þjóðfélag eins og við á nokkuð langt í land að sam- lagast hinum háþróaða skandinaviska kratisma, bœði listrœnt og peningalega. Rithöfundar okkar œttu þó ekki að þurfa meira en hundrað ára aðlögunartímabil (miðað við fólksfœð) og ef til vill skemmri tíma, ef slys bœri að höndum í íslenzku valnefndinni, sem kúltúrgreinir íslenzkrar bókmenntir fyrir Norðurlanda- ráð. Unga kynslóðin hér á landi er eins og allir vita mjög bráðþroska, enda er hún þegar farin að laga sig að hinni skandinavisku fyrirmynd og reykir nú orðið drjúgan skerf af hass-ópíum innflutningi dana, sem hafa gefið dópið frjálst bœði fyrir sig og þá um leið fyrir okkur frœndur þeirra hér norður á hjara veraldar. Spegillinii Spegillinn kemur út 10 sinnum á árinu 1970. Áskriftargjald er greitt í tvennu lagi, 190 krónur í hvort sinn og greiðist fyrirfram, í janúar og júlí. I lausasölu kostar blaöið 50 krónur með söluskatti. Samvizka þjóðarinnar Ritstjóri: Jón Hjartarson Aðalteiknari: Ragnar Lár. Filmusetning og prentun: Lithoprent Afgreiðsla, áskrift: Sími 10461 Pósthólf 594, sími 42035. 5 Stúdentspróf ætti að vera inntökupróf í Kvennaskólann. 9 Meinhornið. 10 Andlitij^ níu. 11 Spegils-auglýsingar. 12 Samvinnutryggingar hinar nýju. 13 Hæli fyrir rukkarana. 15 Bonanza, fræknir feðgar í Selárdal. 20 Samnorræn andremma 21 Lesið milli lína. 22 Peningaveskið. hans Gylfa Þonn. 24 Atvinnuleysisstyrkurinn. 26 Vessar: Blankholts áætlunin. 28 Bókavaka. 29 Psálmur af pressunar vélræðum. 30 Stjörnuspá. 31 Geggjaðasta persóna landsins. í næsta tölublaði Speg- ilsins verður væntaniega viðtal við 1. þingmann Spegilsins, Björn ríka á Löngumýri. Einnig er ráð- gert að fjalla þar nokkuð um undirbúning væntan- legra borgarstjórnarkosn- inga. Ef vér verðum í góðu skapi, kemur kannski eitt- hvað um trúðinn og mannapann og um hlaup frá Pontíusi til Pílatusar.

x

Spegillinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Spegillinn
https://timarit.is/publication/349

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.