Spegillinn - 01.03.1970, Blaðsíða 27

Spegillinn - 01.03.1970, Blaðsíða 27
VESSAR: Júnínótt Bóbó og Edd Redd (Blankholtsáætlunin) Tveir rosknir menn sátu í sáttavímu júnínótt eina fyrir fáum árum. Skipt- ust þeir á um að pára gáfulegar setn- ingar aftan á umslög frá Skattstof- unni. Er þessi örlagaríka nótt var öll og árrisulir Reykvíkingar voru að bursta tennurnar, var merkum áfanga náð í sögu byggingarmála á íslandi. Þá voru hinir rosknu menn að undir- rita samkomulag um merkar nýjung- ar í byggingarmálunum. Þessu plaggi hefur lengi verið haldið leyndu, en vér teljum rétt að birta það hér, því að þar hafa hinir tveir félagar unnið algert brautryðjendastarf, sem hafa mun víðtæk áhrif um allan hinn sið- menntaða heim: Undirritaðir gera með sér svofellt samkomulag til lausnar vinnudeilum og öðrum leiðindamálum: 1. gr. íslendingum ber skylda til að sanna yfirburði sína yfir aðrar þjóðir á einhvern þann hátt, sem eigi verður í efa dreginn. 2. gr. Vænlegast til þessarar sönn- unar er byggingarsviðið, enda sýnir saga vor bezt, að þar er ráðizt á garðinn, þar sem hann er hæstur. 3. gr. Smalað verði saman (guð hvað ég er syfjaður) þekk- ingar- og hæfileikalausum mönnum á sviði byggingar- mála, að undangengnu hæfi- leikaleysisprófi. 4. gr. Verði þeim síðan falið það verkefni að annast algerlega eftir eigin höfði byggingu nokkur þúsunda íbúða, sem síðan verða seldar öruggum vanskilakaupendum. 5. gr. Til þessara framkvæmda verði nefndinni afhent það fé, er hún girnist, en æski- legt er talið, að það séu peningar, sem venjulegir í- búðakaupendur hefðu ann- ars fengið. 6. gr. Skal þessum framkvæmda- mönnum vera heimilt að reka atvinnurekstur í nafni eiginkvenna sinna, án nokk- urrar íhlutunar af opinberri hálfu. 7. gr. Kostnaðarverð hverrar íbúð ar skal talið það, sem þægi- legast er að gefa upp. Það sem fram yfir er í kostnaði, skal afskrifa á kostnað óunn inna verkefna. 8. gr. Söluverð skal þó eigi vera lægra en gengur og gerist hjá glæpahundum þeim, sem lifa á því að byggja og selja. 9. gr. Ef þessi áætlun fer (guð hvað ég er syfjaður), sem vonazt er til, má telja öruggt, að erlendar þjóðir fari að játa fyrir sér yfirburði ís- lenzkrar snilli. 10. gr. Eftirspurn eftir íslenzku vinnuafli, bæði venjulegra hálfvita og lærðra bygging- armanna, mun stóraukast og þjóðin öðlast nauðsyn- lega reisn út á við. 11. gr. Formaður nefndarinnar verður ráðinn að undan- gengnu mjög ströngu hæfi- leikaleysisprófi. 12. gr. Til að forðast óþægindi, er leiða kann af framlögðum reikningum og reiknings- skilum, er nefndinni bannað að leggja nokkur slík gögn fyrir almenningssjónir. 13. gr. Fari kostnaður við nefnda- störf og önnur skrifstofu- störf yfir 50 milljónir króna, skal nefndin starfa áfram af fullum krafti, án nokk- urrar íhlutunar. 14. gr. Bannað er að gera grín að nefndinni. 15. gr. Telji einhver nefndarmanna sig óhæfan til starfa sökum gáfnafars, er honum heimilt að kveðja án skýringa með orðunum: „Þetta var bara fróðleg reynsla". (Ég er al- veg að sofna.) 16. gr. Alþingi samþykki samkomu lag þetta möglunarlaust þeg- ar í stað. Gert í sáttavímu í júní, Bóbó: (Hvenær fæ ég að sofna) Edd Redd: )Ho, ho, ho, ho,) Speglinum tókst að fá leyfi stjórn- valda til að fylgjast með störfum nefndarinnar og verður vonandi fjall- að um þau síðar. 27

x

Spegillinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Spegillinn
https://timarit.is/publication/349

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.