Spegillinn - 01.03.1970, Blaðsíða 20

Spegillinn - 01.03.1970, Blaðsíða 20
Samnorræn andremma Einn norrœnn krati með norrænt bros á norrænu þingi fékk sæti við norrænt borðhald og nefndakos og norrœna hundakæti. Af norrænni kurteis' á norræntþref á norrœnu hlýða kunni. Þar norræn froða og norrænt slef norrænum vall úr munni. Og norrænt þing er normalt um flest, norrænt í verki og orðum. En norrænt talað - er norrænan bezt norrænum undir borðum. Þá norrænir frændur sín norræn staup á norrænum hraða svelgja. Af norrænni róstbíf með rádýrshlaup þeir ropandi út sig belgja. Já, norrænan temur sér norrœnt lag í norrænu lífi og önnum. Norrænan byrjar hvern normalan dag með norrænum timburmönnum. Sjá, norræni dagurinn heilsar svo hlýr. Við hefjum vort samstarf að nýju. Og norræna klígjan frá nóttunni flýr í norrænni klósettspýju. En norræni kratinn sitt norræna starf nam í svo fullkomnum mæli. Eftir norrænum leiðum hans naum-ræna hvarf inn á norrænt samdrykkjuhæli. 20

x

Spegillinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Spegillinn
https://timarit.is/publication/349

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.