Stúdentablaðið

Árgangur

Stúdentablaðið - 01.12.1925, Blaðsíða 8

Stúdentablaðið - 01.12.1925, Blaðsíða 8
2 STÚDENTABLAÐ 1925 mönnum þegar ljóst 1911, enda er alls ekki ofmælt að stofnun Háskólans væri fagnað af alþjóð sem reglulegri frelsisgjöf. Og þó að raddir léti þá til sín heyra, einkum ut- anlands frá, um það, að þjóðin færðist hér efnalega of mikið í fang, þá var það raun- ar fátækt landsins einni að kenna að Há- skólinn var ekki gerður miklu ríflegar úr garði. Síðan 1911 hefir safnast mikill auð- ur í landi hér, sem vonandi kemur einnig að haldi Háskóla vorum, þó síðar verði. Menn mega ekki láta villa sig þær tilraun- ir, sem því miður hafa fram komið á síð- ustu árum í þá átt að hnekkja Háskólan- um. þær eru ekki gerðar að alþjóðar vilja, þær eru aðeins staðfesting fornar reynslu, þeirrar, að peningaráð og víðsýnt mannvit eiga ekki ætíð samleið í þessum villugjarna heimi. það þarf varla að óttast það, að slíkar tilraunir verði endurteknar; svo óvinsælar hafa þær orðið. Og þær verða síðar ennþá óvinsælli. Háskóli íslands var stofnaður af van- efnum fjár. það er satt. En hann var stofnaður af trú á framtíð þjóðarinnar, tní á þrek hennar, trú á hennar fornu rót- grónu menning, trú á köllun hennar til þess að varðveita og göfga í langri og glæsilegri framtíð norræna menning og norræna kynerfð. Háskólinn átti að verða arinstöð allra góðra krafta í baráttunni fyrir því að þessi trú mætti rætast, og er þegar margs að minnast, sem hann hefir unnið eða látið vinna í þessa átt. það er gaman að geta þess hér, í þessu sambandi, að einn af kennurum Háskólans, próf. Guðmundur Hannesson, hefir nú nýlega, fyrstur manna, fært sönnur á það — sem áður var að vísu trú og hugboð okkar bestu skálda og spámanna — að þjóð vor er langsamlega kynbornust norræn þjóð, sem til er. Hún hefir ekki aðeins varðveitt best menningararf norræna kynsins og ávaxtað hann dyggilega, — hún hefir líka varðveitt best kynerfð sína. Henni er því að vísu sjálfskipað í öndvegi meðal þeirra þjóða sem rekja ætt sína að norrænum uppruna. — Háskóli vor hefir ekki brugð- ist því trausti, sem hugsjónamenn vorir og þjóðskörungar hafa til hans sett fyr og síðar. Og hann mun ætíð eiga sinn ágæta þátt í því, að þjóð vor skipi með sæmd þann sess meðal þjóðanna, sem hún er rétt borin til. II. í nær 400 ár varð þjóð vor að senda úr- valið af gáfumönnum sínum og foringja- efnum til náms í önnur lönd — einkum til Danmerkur — vegna þess að hún var of fátæk til þess, að geta annast mentun þeirra sjálf. þessi menningarlegi útburður óskabarnanna er ein allra sárasta ógæfan, sem þjóðin varð að þola á liðnum öldum. Enginn getur gert sér nógu átakanlega grein fyrir þeirri hugraun, sem göfugustu feður og mæður þjóðar vorrar hafa mátt líða kynslóð eftir kynslóð, er þau urðu að senda sonu sína í andlegagislingtil erlendr- ar bjóða, er jafnframt hélt oss í stjórn- legri og efnalegri ánauð, svo næst stapp- aði fullum þrældómi. Lá það þá ekki æði nærri, að foringjaefnin yrðu gerð að böðl- um á sína eigin þjóð? Sú varð líka löng- um raunin. Vald Dana hér á landi eignað- ist á þennan hátt margt handhægt verk- færi. Slíkt var heldur ekki að undra, eins og í garðinn var búið. Hitt er miklu merki- legra hve vel og drengilega flestir þessara danskmentuðu manna reyndust þjóð sinni í siálfstæðismálum hennar. Eg held að fátt sýni betur þrek kynsins og kraft hinnar þióðlegu menningar en það, hve vel menta- menn vorir stóðust þessa raun. það er ekki ótítt, að heyra menn tala með eftirsjá um Garðsstvrk íslenskra námsmanna við Hafnarháskóla. Vafalaust var bað þó rétt og nauðsvnlesrt að honum var slept 1918 — frá pólitísku sjónarmiði nauðsynlegt, og frá hálfu þjóðmenningar vorrar bæði nauðsynlegt og rétt. það er

x

Stúdentablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.